Nýjar kvöldvökur - 01.07.1917, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1917, Blaðsíða 29
UMSKIFTINGURINN. 171 teig. »Eg botna ekkerf í þessu öllu saman. Skiljið þér það?< Kerling dreypti á glasinu og hristi höfuðið vandræðalega. »Hvaða erindi gat þessi maður átt hingað? Ekki hefir það verið þjófur, því engu hefir verið stolið. Nei, i al- vö'ru að tala, er þetta gáta, sem eg fæ ekki ráðið. Hvernig var hann útlits þessi náungi? Var hann svo líkur mér, að hann gæti blekt yður, jómfrú góð?« »Jómfrúin reis á fætur og svaraði skjótlega: »Hann var alveg eins og þér.« »Hvað sagði hann, þegar þér opnuðuð dyrnar?« »Rað er eg búin að segja yður. ílann sagðist hafa gleymt Iykiunum heima, þegar hann hafði farið á stúdentafundinn, og eg segi yður alveg satt, að málrómurinn var alveg eins og yðar. Rér megið ekki reiðast mér, herra Reinert, en eg get ekki sannara orð talað en það, að hann var að öllu Ieyti alveg eins og þér, þegar þér hafið fengið yður ofurlítið í staupinu.« , »So-o« Reinart lagaði gleraugun vandræða- legur á svip. »Hvernig er eg þá?« Jómfrúin brosti. Hún kynokaði sér við að fara lengra út í þá sálma, en Reinert bað hana að segja sér nákvæmlega frá öllu, því þá yrði auðveldara að ráða þessa gátu. Hann kvað það gegna furðu, að nokkur maður gæti verið svo líkur öðrum sér óskyldum, að skarpskygnt fólk viltist á þeim. Hann mintist á skarp- skygni jómfrúarinnar til þess að gleðja hana og koma henni til að Ieysa frá skjóðunni, enda kom það að haldi. »Ójú, göngulagið var dálítið stirðlegra, augun undarlega sljó, röddin hægari og dá- lítið óskýr og svo var hann ákaflega rauður í andliti.« »Rað er auðheyrt að þér hafið ágæta eflir- tekt,« sagði Reinart og glotti. Skömmu síðar gekk jómfrúin til herbergja sinna. Hún tvílæsti dyrunum, leit undir rúm- ið og rannsakaði hvern krók og kima í her- berginu, áður en hún lagðist til svefns. En Jakob Reiuert gekk lengi um gólf í vinnustofu sirini og var að hugsa um, hver þessi einkennilegi gestur mundi hafa verið. Þegar gamla Bornhólmsklukkan sló hálf- fimm og hann var búinn að drekka átta staup af portvíni, fór hann loks að hátta. Pá var hann kominn að þeirri niðurstöðu, að komu- maður hefði verið einhver af vinum hans, sem tiefði verið að leika á kerlinguna að gamni sínu, og bjóst við að fá bráðlega skýringu á því máli. sk * * Það var liðinn hálfur mánuður síðan Jakob Reinert las upp sjónleik sinn á stúdentafund- inum og ráðskona hans hleypti hinum dular- fulla gésti inn í herbergi hans. Enn var alt á huldu um heimsókn þessa, enda var hún Jak- ob að mestu leyti úr minni liðin. Hann var sem sé farinn að hugsa um að semja stóran sjónleik. Hann varð brátt svo hugfanginn af þessu nýja viðfangsefni sínu, að hann sinti engu öðru. Hann leitaðist við að skapa persónur, og sýna sálarlíf þeirra undir ýmsum kringumstæðum, skrifaði »uppkast« og einstakar málsgreinar á víð og dreif. Hvar sem hann var staddur, var hann alt af að hugsa um leikinn. Hann hætti að heimsækja kunn- ingjana, en var þó sjaldan heima. Fór hann mjög einförum og reikaði oft um afvikna staði, niðursokkinn í efni og allan tilbúning hins nýja leiks. Pegar ráðskonan, fómfrú Hansen, sem hafði verið framúrskarandi hæglát upp á síðkastið, mintist eitihvað á þessa kynlegu heimsókn, hristi hann höfuðið og sagði, að þau fengju vafalaust bráðum ráðningu á þeirri gátu. Auð- vitað hefði það verið einhver vinur hans, sem hefði ætlað að leika á þau. Nú hefði hann vissulega um annað að hugsa en slíkan barna- skap. Hann kvaðst vera að semja sjónleik einn mikinn. »Og það er nú sjónleikur, sem skal hleypa öllu í bál og brand, jómfrú góð,« sagði hann. »Pegar hann verður leikinn í fyrsta sinni á konunglega leikhúsinu, skuluð þér sitja við hlið mér á áhorfendapalli, og þér 22*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.