Nýjar kvöldvökur - 01.07.1917, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1917, Blaðsíða 39
ÞÓRÓLFUR. 181 Pað var ekki mikil skíma um morguninn eftir, þegar sumir fóru á fætur. Þeim var ó- rótt í rúmunum. En það sást lítið fyrir dimm- veðri. Ró var hann dálítið bjartari og hægri og birti eftir því sem á daginn Ieið, Regar glórði fram í »Hafmeyjuna« þóttust menn sjá, að hún hefði dregið. Og er birti ti! fulls, sáu menn að hún var á leiðinni í land, — í síðasta sinn. Ströndin lá þarna á þessu svæði í boga. Skarst þar fram langur og grýttur tangi ofan innan við »Hafmeyjuna.« A þeim tanga braut brimið ægilegast og þyngst. Það var alt einn samfeldur brimgarður langt fram í ála. Fjaran nötraði þar undan hrönnunum, skalf eins og jarðskjálftakippir ryktu í björgin. Pangað fóru allir bátar, sem Iosnuðu upp á vík inni. Og þangað bar nú »Hafmeyjuna.« Menn vissu, að hún mundí fara í spón langt fram á grynningunum. Pað er ekki fagurt að sjá bát á reki til lands í ofsaroki og stórsjó, þegar ein einasta alda getur mulið í smáagnir rambygð og traust för, stærri og smærri; og því síst, þegar manns- líf er innanborðs. En það er stórfenglegt. Og mikilleikinn dregur að, ekki síður en feg- urðin. Sjómennirnir gengu í hópum ofan á bakk- ana fyrir ofan tangann. Pað komu raunar fleiri en sjómenn, en þeir voru fyrstir og og flestir. Pað var auðséð á þeim, að þeim var órótt innanbrjósts. Peir fundu það, þó enginn hefði talað um það, að nú var einn af þeirra bardagabræðrum að þoka . úr lífinu — þoka fyrir þeirri voldugu hönd, sem hafði oft snert við þeim sjálfum. Og það var ekki einn einasti í þessum hraustlega, alvarlega hóp, sem skyldi ekki hversvegna Pórólfur varð eftir í bátnum sínum. Peir áttu margir för, sem þeir höfðu flotið á út og inn fyrir brimgarðinn. Peir þektu ástina til þess, sem hafði geymt líf þeirra mitt í tryllingsdansi brotnandi hranna. Og þeir voru ekki komnir til að bjarga. Hér var ekkert annað að gera, en að hirða leifarnar af bát og manni, ef það skolaðist á land. Pað var nú komið allgott veður, — hæg- ur storniur og hríðarlítið. En því gleggra sást brimið. Pað var ógurlegt. Peim, sem stóðu í fjörunni sýndist koma blámalituð, tindalaus fjöll líðandi utan að tanganum Pessi fjöll urðu hærri og hærri, teygðu úr sér til himins, þangað til eggin sprakk fram og mjallhvítt grjótmulið veltist niður hlíðarnar. En þetta voru bara öldur, — bara himingnæf- andi, löðurtyptar öldur. »Parna er Pórólfurl* hrópaði einhver. Pórólfur sást standa á þilfari bátsins og veifa sjóhattinum til lands oft og lengi. »Hann er að kveðja okkur,« sagði Jóhann gamli. »Eigum við- ekki að svara, piltar ?« Samstundis blöktu yfir höfðum þessara manna margir tugir sjóhatta með hinstu kveðjuna út yfir brimgarðinn. Pað leysti enginn þeirra sjóhattinn af sér. Peir slitu hann allir þá. Þórólfur hafði hlaupið niður, er hann sá kveðjuna. Skömmu eftir þetta kom risaalda. Hún bar hæst fram undan »Hafmeynni.« Nú vissu allir, að þetta var síðasta aldan, sem bryti á henni heilli. Pegar þessi ferlíkis holskefla var orðin svo þunn að hún hlaut að springa, þá gnæfði hún rett yfir »Hafmeynni.« Og þegar hún sprakk, steyptist hún yfir hana. Það var líkt og tiöllaukinn faðmur breiddi sig yfir bátinn. Menn sáu hann þrýsta honum að sér — inn í sig, — velta honum við og á kjöl- inn aftur, og aftur á hvolf. Svo hvarf alt í fossandi löðrið. Sumir sneru sér undan, þegar hrönnin féll yfir bátinn. Sumir feltu tár. Skamt fyrir ofan, þar sem holskeflan sprakk, var feikistórt sker eða drangur. Pegar sléttist úr löðrinu, sáu menn »Hafmeyna« í tvennu lagi. Hún hafði lent á skerinu og klipst sundur í tvent. Afturendinn marraði í kafi vegna vélarþyngsl- anna og bar seint upp. En framendann rak hraðfara að landi. En hann smámuldist á leið- inni, liðaðist sundur innan um skerin og klungr- ið. Þegar hann kom upp í fjöruna var hann í óteljandi pörium.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.