Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1925, Síða 3
XVIII. árg. Akureyri, júní 1925. 6. hefti. Flagð undir fögru skinni. Eftir Marie Corelli. (Framliald). XVI. Mjer er næstum ómögulegt að lýsa því æsta og órólega hugarástandi, sem nú tók að leggj- ast á mig með degi hverjum. Jeg þóttist nú eiga vissa uppfylling óska minna, en samt varð skapið óstöðugra en vindurinn og jeg var aldrei ánægður tvo tíma samfleytt. Jeg tók þátt í öll- um þeim skemtunum, sem þá tíðkuðust meðal ungra manna, er fleygja sjer eins og angur- gapar út í foræði lífsins, aðeins til þess að tolla í tískunni. Jeg gerðist mesta spilafífl ein- göngu vegna þess, að margir »helstu« menn- irnir meða’l »the upper ten« töldu það merki manndóms og karlmensku að gefa sig allan við spilunum. »Jeg hata þá piltana, sem tíma ekki að tapa fáeinum pundum í spilum,* sagði einn af þess- um »heldri«, titluðu beinösnum við mig. ^Pað' ber vott um bleyðimensku og smásálarskap.* Jeg Ijel leiðast af þessum »nýja« siðalær- dómi, og þar sem jeg vildi hvorki vera kend- ur við bleyðimensku eða smásálarskap, þá leið varla svo nokkurt kvöld, að jeg tæki ekki þátt 1 »Baccarat« eða öðrum áhættuspilum og tap- aði góðviljuglega þeim »fáu« pundum, sem raunar skiftu hundruðum, hvað mig snerti og vann svo aftur stöku sinnum, svo að allmargir »aðalbornir« slarkarar og hávelborin spilafífl ^omust í »drengskaparskuld« við mig og láta menn sjer annara um að borga þær skuldir á rjettum tíma en nokkrar aðrar skuldir, enda þótt þær sjeu óborgaðar enn, hvað mig snertir. Lika veðjaði jeg hiklaust um alt, sem annars er hægt að veðja um, sótti misindissamkomur og Ijet hálfberar koniaksangandi dansmeyjar og auðvirðilega söngknæpuloddara vjela af mjer gimsteina fyrir nokkur þúsund pund — alt til þess að standa ekki fjelögum mínum á baki í »smekkvísi« og »heimsþekkingu«, því að þetta var kallað að »vera með« og álitið ómissandi skemtur.um heldri manna. Hamingjan góða! — Hvílíkir gagnslausir þojparar! — Og samt um- gengumst við beztu og merkustu menn lands- ins — hinar fegurstu hefðarkonur í London brostu við okkur, smjöðruðu fyrir okkur og buðu okkur á heimili sín — okkur, sem vor- um ataðir í löstum og ólifnaði — okkur, þess- um »ungu heldri stjettar mönnum«, sem hver ærlegur skóari, er vinnur baki brotnu fyrir dag- legu brauði, hefði mátt hrækja á, ef hann hefði þekt líferni okkar eins og það var — hefði mátt hrækja á okkur með fyrirlitningu og gremju yfir því, að slíkir mannhundur skyldu fá að leika lausum hala! Rímanez tók einstaka sinn- um þátt í skemtunum okkar, en þó mjög sjald- an, og tók jeg eftir því, að hann slepti þá lausum taumunum að segja mátti og var ólm- astur okkar allra. En aldrei var hann rudda- legur — eins og vid, þó að hann slepti sjer. Hlátur hans, djúpur og þýður, misti einkis af hljómfegurð sinni og var alls ólíkur hinum »siðfáguðu« asna hrinum okkar. Framkoma 11

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.