Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Qupperneq 37

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Qupperneq 37
N.Kv. PITCAIRN-EYJAN 117 urnar höfðu sagt mér. Mc Coy áleit, að við ættum að láta þær afskiptalausar. — Það er affarasælast úr því sem kom- ið er, sagði liann. — Við skulum láta þær sjá um sig sjálfar og sjá svo sjálfir um okk- ur. — Hvað segirðu? sagði Matt. — Við ætlum ekkert að hafa saman við þær að sælda, það sem eftir er ævinnar. -— Vertu rólegur, sagði Mc Coy. Held- ur þú að þær verði lengi þarna? Þær átta sig, ef við förum eftir því, sem þær segja. Það er Maimiti og Taurua sem hafa leitt þær út í þetta og nokkrar af konunum fylgja þeim. Við skulum aðeins láta þær eiga sig. Þær munu bráðlega koma aftur til okkar. Quintal fékk eitt æðiskastið. — Eg vil ekki láta þær sjálfráðar, sagði hann. — Þið skuluð ekki ímynda ykkur, að ég sé fífl. Ég sæki einhverjar þeirra nú þegar. — Nei, það máttu ekki gera, sagði Mc Coy. Hagaðu þér nú ekki eins og bjáni. Þær eru allar með byssur og flestar þeirra kunna eins vel að fara með skotvopn og hver okkar. Þær eru ekki lömb að leika sér við, þegar þær eru í þessum ham, en ef við híðum rólegir koma þær aftur af fúsum og frjálsum vilja. — Vert þú rólegur fyrst þú ert ánægður með það, sagði Quintal. Síðan reis hann á fætur, fór út og stefndi í áttina til dalsins, án þess að hafa fleiri orð um þetta. ■— Heldur þú, Alex, að þær muni reyna að ráða niðurlögum hans? spurði Mc Coy. — Eftir því sem Maimiti hafði sagt, ef- aðist ég ekki um að þær rnundu gera það. Við höfðum alltof lengi hagað okkur eins °g okkur sýndist og ekkert tillit tekið til þeirra, og hlutum því að skilja, að þannig gæti það ekki verið til langframa. — Eg tel alveg víst, að þær skjóti ekki, nema því aðeins að hann reyni að klifra yfir girðinguna, en það ætti hann ekki að reyna, því að hún er um tíu fet á hæð. — Við verðum að fara og sjá, hvað ger- ist, sagði Mc Coy. — Mig langar líka til að sjá víggirðinguna sjálfur. Síðan iögðum við af stað þvert yfir dal- inn upp á syðri fjallshrygginn. Við sáum Quintal ekki fyrr en við komum í efri hluta Autédalsins. Hann stóð utantil í kjarrinu og horfði á víggirðinguna. — Hamingjan hjálpi mér! hrópaði Mc Coy þegar hann sá mannvirkið. Við stóðum þarna þrír saman og horfðum yfir dalinn. Nokkrar af kounum unnu í görðunum um það bil 100 metra frá okkur og aðrar lengra í burtu. Þær sáu okkur ekki, því að við földum okkur inn á milli trjánna. — Hvenær hafa þær gert þetta? spurði Quintal. Þeir voru báðir jafn undrandi af að sjá víggirðinguna, og ég hafði verið, þegar ég sá hana fyrst, hvorugur þeirra hafði búizt við að sjá svo rammgert virki. — Það skiptir engu máli, sagði Mc Coy. — Þú séð, Matt, að það er þarna, og ef þú ert ekki blindur og skilningslaus, þá kemur þú heim með mér og Alex. Þú munt aðeins bæta gráu ofan á svart, ef þú reynir að ráð- ast á þær. Komdu nú og láttu þær afskipta- lausar. En það var engin leið að fá Quintal til að hætta við það, sem hann á annað borð hafði hugsað sér að gera. Hann vissi að hann var sterkur, en hann var svo heimsk- ur að trúa því, að konurnar mundu ekki þora að veita honum mótstöðu, jafnvel þótt þær væru með byssur í höndunum. —- Bíðið þið hérna og standið við, sagði hann. — Ég kæri mig ekki um aðstoð ykk- ar, ef það er það, sem þið eruð hræddir við. Quintal hafði ekki þvegið sér í marga

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.