Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Qupperneq 48

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1956, Qupperneq 48
128 PITCAIRN-EYJAN N. Kv, eftir að það var dáið getið þér hugsað yður hvernig ástandið hefur verið. Nú sá hann Minarii koma skríðandi með langan hníf í hendinni. Eg var miklu þreknari og hélt að ég væri margfelt sterkari en hann, samt sem áður átti ég fullt í fangi með að halda hon- um er æðisköstin gripu hann, og veinin, sem hann rak upp, voru ekki lík hljóðum í manni. Einu sinni losnaði hann og barði höfðinu í vegginn, svo að honum lá við roti. Þá notaði ég tækifærið til þess að koma honum í rúmið, og þar hélt ég honum, þar til dagur rann. Hann fékk áköf krampaköst, og ef þér liafið nokkurn tíma séð mann í slíku á- slandi, þá munið þér geta skilið hvað ég varð að reyna. Þegar tók að birta dró mátt úr honum, og ég varð þess var, að hann féll í ómegin. Eg var gersamlega uppgefinn. Það var tæp- ast, að ég gæti dregizt yfir að borðinu og setzt þar. Mig sótti ákafur svefn, svo að ég Iagðist fram á borðið og vissi ekki af mér, fyrr en ég vaknaði við það, að einhver rak upp hræðsluóp. Áður en ég gat áttað mig, var Mc Coy kominn út um dyrnar og á leið niður stiginn til húss Christians. Ég fór á eftir honum, en ég er ekki fall- inn til hlaupa, og ennfremur var stígurinn blautur eftir rigninguna. Ég datt hvað eftir annað, og loks er ég komst að húsi Christi- ans, var Mc Coy á harðahlaupum í áttina til strandarinnar. Ég hrópaði til hans. — Will, komdu hingað! Hann leit ekki einu sinni við, en hljóp áfram og hvarf að lok- um. Sjógangurinn var ennþá meiri en daginn áður. Þegar ég kom fram á klettabrúnina og leit niður fyrir, sá ég á eftir Mc Coy, þar sem hann hrapaði niður hengiflugið. Ég sá hann hverfa niður í öldurótið, síðan sá ég honum skjóta snöggvast upp aftur, en svo hvarf hann mér alveg. Ég liorfði lengi niður í sjávarlöðrið, en sá ekki meir til hans. Tuttugasti kafli. Næsta dag fann ég lík hans. Því hafði skolað á land vestan til við hús herra Christ- ian. Það var svo lemstrað, að varla var hægt að trúa því, að það væri af manni. Þér getið gert yður í hugarlund hvernig mér var innanbrjósts, er ég tók það upp og bar það upp úr fjörunni. Síðan gróf ég líkið í litlu dalverpi, spölkorn frá þeim stað, þar sem því hafði skolað á land. Að því loknu fór ég þangað, sem við geymdum vínbirgðir okkar. Það var í þröngri gjá ekki langt frá húsi Mc Coy. Ég tæmdi tvær tunnur, er voru fullar af spíri- tus, síðan barut ég í þúsund mola allar þær flöskur, sem við höfðuin fyllt af víni. Því næst hraðaði ég mér þangað, sem bruggun- artækin voru geymd. Ég greip þau, hljóp fram á bjargbrúnina og fleygði þeim fram af. Þegar ég sá þau hverfa í hafið, hrópaði ég: Guði sé lof, nú er allt búið. Þegar ég hafði grafið Mc Coy fannst mér, að ég mundi geta sofið í heila viku sam- fleytt, en kom mér ekki að því að fara inn í hús herra Christians, eða neitt af hinum húsunum. Ég fór þangað, sem hús blökku- mannanna stóðu. Þau höfðu verið reist í fallegu rjóðri við stíginn, sem lá niður að Bountyflóanum. Mörgum kvöldum hafði ég eytt í þessum húsum áður en samkomulag- ið spilltist milli okkar. Mér var hlýtt til blökkumannanna, einkum Minarii og Teta- hiti. Það mátti leita lengi, án þess að finna betri menn en þá, hvort sem væri meðal hvítra manna eða dökkra. Ég var með þeim (Framhald.)

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.