Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Blaðsíða 8
118 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. skotið honum og fjelögum hans skelk í bringu, og þeir hefðu því hætt við ráðabrugg sitt. En alt í einu veitti jeg því eftirtekt að eitt- hvað var á ferli hinumegin við fljótið. Gat jeg eigi betur sjeð, en að þar væru margir ríðandi menn á ferð. Innan skammrar stundar sá jeg að svo var. — Eigi gat jeg sjeð, hve^ margir þeir voru, en flokkur þessi var allstór. Nániu þeir staðar á að giska hálfa euska mílu frá borgarhliðinu í Mains. Rví næst stigu þeir af baki og var farið með hestana til baka, sömu leið og þeir höfðu komið úr. — Róttist jeg þegar vita að hjer væri Ulrik á ferð og hefði eitthvað í hyggju gagnvart Gústafskastala. — Ró jeg gæti eigi greint hve margir þeir voru, þóttist jeg þess fullviss að liðsafn þetta væri eigi færra en 100 manns. Jeg kallaði nú á hinn næsta af hermönnum þeim, er á verði stóðu, og benti honum yfir um fljótið þangað, sem hinn grunsamlegi hóp- ur var saman kominn. »Sjer þú nokkuð athugavert?* spurði jeg. Hann horfði yfir um og þagði um hríð. »Jeg sje aðeins hermannaflokk; það glampar á vopnin í tunglsljósinu. »Hvað heldur þú að það boði?« »Konungur mun hafa sent hermannaflokk éitthvað, og nú munu þeir vera á heimleið, en ætla að hvíla sig þarna.« »Álítur þú að sænsk hersveit muni fara að hvíla sig rjett fyrir utan borgarmúrana f Mains? — Rar sem konungur þeirra og landsmenn halda til!« »Satt er það, að það er eigi líklegt.« »En ef svo er eigi, þá hlytu það að vera óvinir,« mælti jeg. Vörðurinn horfði um stund yfir um áður en hann svaraði mjer. »Ef til vill,« sagði hann því næst. »En jeg get eigi skilið, að óvina hersveit skuii voga sjer svo nærri öruggasta vígi Svíakonungs. — Og hvaða erindi geta þeir átt?« »Eitthvert það, er þeim virðist brýn nauð- syn fyrst þeir leggja svo mikið i hættu.« »Hvað getur það verið?« »Það munu næstu klukkustundir fræða okk- ur um,« svaraði jeg. — »Eu jeg álít að erindi þeirra sje eitthvað í sambandi við Gústafs- kastala.* »En þeir eru hinsvegar við fIjótið.« »Rjett er það.« »Okkur virðist því eigi stafa hætta af þeini.» »Bíðum og sjáum hvað setur.« Rað leið heldur eigi á löngu fyr en okkur var augljós fyrirætlun þeirra. Fjöldi báta lagði frá landinu hinu megin og stigu allir mennirnir um borð. Bátarnir stefndu yfir um til okkar. »Við verðum að gera Hall flokksforingja aðvart,« mælti varðniaðurinn. • Rað er ekki hægt,« svaraði jeg. — »Hann mun nú fyrir alllöngu lagstur undir drykkju- borðið og sofnaður. Á hann megum við ekki treysta. Við verðum sjálfir að bjarga okkur.« »Nú já, er því þannig varið?« svaraði vörð- urinn. — »Hm!« »Jeg álít ráðlégast,« mælti jeg, »að þú fáir þjer bát og róir yfir um til borgarinnar til að leifa hjálpar. En við skulum samt bíða litla stund og sjá hvernig óvinirnir ætla að haga gerðum sínum.« »En jeg get eigi skilið hvað þeir ætla að gera hjer.« »Hertaka Gústafskastala!« »Ómögulegt!« hrópaði vörðurinn undrandi. — Pað nær engri átt!« »Svo mun þó vera.« »Hertaka kastalann. — Hvað ættu þeir svo sem að gera með hann?« »Hafa hann á sínu va!di!« »En konungur niun óðara taka hann af þeiin aftur.« »Eigi er það víst.« • Einmitt það!« sagði vörðurinn háðslega, — »Satt að segja held jeg, að þú sjert ekki með fullu ráði í kvöld. Heldur þú, að Gústaf Að- ólf Svíakonungur mundi láta kastalann vera á þeirra valdi, án þess að gera tilraun til að taka haun aftur?«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.