Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Page 12

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1923, Page 12
122 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Vitfirringurinn frá St. James. Eftir Philip Galen. Fjórtándi kapítuli. Ráðagerðir. Dag þennan fjekk jeg aðeins tækifæri í fimm mínútur til að tala við undirgreifann frá Dunsdale. Var það, þegar hann var á gangi niður í garðinum, í hinum fyrirskipaða dag- lega tíma. Hina hluta dagsins varð hann að halda síg í herbergi sínu, því forstjórinn hafði sett hann f stofufangelsi. Ressa stuttu stund, sem við gátúm talað saman, mintist Sidney ekki einu orði á sinn eigin hag, en ræddi aðallega um klípu þá, er Chappert væri kominn í. Hann bað mig að reyna að gera eitthvað fyrir hann. Og fjekk mjer 10 sterlingspunda-seðil. Svo fljótt sem mjer var unt hitti jeg Chapp- ert. — Hann var hnugginn mjög, því forstjór- inn hafði e'gi aðeins ávítað hann hatðlega, heldur einnig sagt honum, að hann mundi verða rekinn úr vistinni. »Chappert«, mælti jeg, »þú hefir gert Mr. S dney í nótt ómetanlegan greiða. Ress gjald- ið þjer nú.« »Pað geri jeg sannarlega. — Hvernig kom honum til hugar að fara út úr herberginu. — Jeg hefi orðið að líða mikið fyrir góðvilja minn í hans garð,« »Satt ér það, og honum fellur það mjög illa að hafa orðið þess valdandi.« »Jeg vil ekki að hann beri þungar áhyggjur þess vegna. — Mjer þykir vænt um hann, og vildi gjarnan gera meira fyrir hann, ef jeg væri þess megnugur.* »Ress æskir hann ekki, en hann sendi mig til yðar, og vonar að þjer nefnið þetta ekki við neinn,« »Hann getur verið öruggur fyrir því. — Jeg er engin kjaftakerling.« »Pað er ágætt. Sidney sendi yður þetta smáræði og þakklæti sitt,« sagði jeg og rjetti honum 10 punda seðil. »Nei, herra minn. — Haldið þjer að jeg taki 10 sterlingspund fyrir ekki neitt. — Jeg gerði þetta ekki í gróðaskyni.« »Vel mælt,« mælti jeg og Ijet seðilinn aftur í vasann. »En jeg hefi einnig annað að bjóða yður, sem jeg vona að þjer neitið eigi að veita viðtöku. Rjer eigið konu og þrjú börn.« »Já.« »Rað er því óbætanlegur skaði fyriryður, ef þjer missið atvinnuna?« »Jeg er nú í raun og veru alls ekki hræddur um að verða rekinn úr vistinni. Forstjórinn rekur eigi mann, sem hann getur notað, fyrir svona smáræði. — Og ef hann gerir það, — þá er jeg nærri því ánægður með að fara hjeðan.« »Jæja, — en ef svo skyldi samt fara, að þjer mistuð stöðuna og eigi hefðuð aðra, sem þjer æsktuð eftir að fá, — þá er jeg hjer með brjef til málafærslumanns í London, sem tekur á móti yður samstundis, og lætur yður vita hvað þjer skuluð gera. Einnig getur verið, að ýmislegt verði orðið á annan veg um þær mundir, og þá getið þjer efalaust fengið ágæta stöðu á ágætum stað.« »Hvaða breytingar eigið þjer við, herra minn? — Er það eitthvað viðvíkjandi, »Vitfirringnum frá St. James'?« »Rjer megið ekki spyrja mig, því jeg hefi eigi leyfi til að svara þeirri spurningu.* »Jæja, herra minn, en jeg verð þá að geta mjer til svarið. En þjer leyfið mjer þó að

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.