Trú - 01.01.1906, Page 4
84
T R Ú.
T R U
kemur lít einu sinni í mánuði. Hvert blað kostar 5 aura. Argangur
inn 50 aura hér á landi. I Ameríku 3 cent hvert blað, en 25 cent ár
gangurinn. Borgist fyrirfram. Borgun fyrir blaðið sendist í póstávís
unum til S. O. Johnson. Útgefandi og ábyrgðarmaður
Samuel O, Johnson, trúboði.
Reykjavík (P. O.)
Island.
að orði í 8. nr. Trúar þ. á., þar sem sagt er: „Megi þvf
nú prestar og prédikarar og hverra helzt trúboðsflokkar sem
hér eru á íslandi biðja Guð að hjálpa því, áður en það er
eilíflega of seint".
Nú kom sá atburður fyrir, að Drottinn af náð sinni inn-
blés einum trúuðum manni, að fara til flestra presta og trú-
boða hér í bænuin til að sameina sig hina svo nefndu al-
heims bænaviku, til að vera sem eitt hjarta og ein sál, eins
og stendur í Postgj. 1. Kap,. 14. v, og 2. kap. 1. v.: „Þess-
ir allir voru með eindrægni stöðugir á bænaákalli". „En er
hvítasunnudagurinn kom, voru þeir allir með einum huga til
samans."
Þessir, sem við lesum um þarna, voru sannarlega í ein-
um anda, svo Drottinn fengi að verka eftir sinni eigin vild,
en ekki eins og mennirnir sjalfir vilja hafa það, því við
sannarlega munum þá eftir þessari grein: „Leitum um fram
alt guðsríkis og hans réttlætis, þá mun og alt þetta veitast
yður“. En það er ekki að sjá, að þeir hafi munað eftir
þessari grein, þegar á átti að herða. En ekki vantaði það,
að allir, utan einn, lofuðu að koma á fyrsta fundinn, sem
átti að verða að kveldi þess 5. janúar 1906, en sá fundur
átti að eins að vera til reynslu, hvort þeir væru allir viljugir
að taka höndum saman og vinna í nafni Drottins að eins
fyrir sálnafrelsi, en ekki að bntka neinar sérskoðanir, og hlytu
þeir því að leggja alt svoleiðis til síðu, meðan á þessum
samkomum stæði. En daginn, sem þessi reynslufundur atti
að verða, sagði einn presturinn, að hann mundi ekki koma,
því hann þyrfti að gegna öðrum störfum, svo sem skíra og
gifta, og þetta vonar maður að hafi verið góðar og gildar