Vörður - 01.01.1918, Blaðsíða 3
V Ö R Ð U R
■27
Gott ar!
Allur fjöldi heimila getur alls ekki veitt börnum þá
fræðslu, sem heimta ber fyrir 14 ára börn. Þar aö auki
hafa fæst heimili ástæöur til aö stunda slika kenslu.
Þaö getur því ekki verið um aö ræða að færa til
skólaskylduna. Hitt gæti komið til mála, að bæta henni
við. En undir 8 ára skólaskyldu, myndi mörgurn þykja
hart að búa.
Æskilegt er að unglingar á 16 til 20 ára aldri njóti
fræðslu, sem að notum gæti komið. Væri þvi sjálfsagt að
fjölga unglingaskólum. En það er ekki nægilegt. Fjöl-
mörg heimili mega ekki missa unglingana frá heimilis-
störfum.
Námfúsir unglingar eru margir svo fátækir, að þeir
geta ekki kostað sig í skóla, þyrfti því að veita svo rífleg-
an námsstyrk, að félitlir unglingar yrðu ekki útundan.
Það mun verða happadrýgst að lofa unglingafræðsl-
unni að vera frjálsri eins og nú er, en hlynna að henni
svo sem kostur er.
Að leggja niður barnafræðslu en taka upp unglinga-
fræðslu er afturför.
„2. Hvern veg þá skyldi liaga skólum handa mönn-
um á skólaskyldualdri, og einkum hvernig kensla í öll-
um þjóðlegum, íslenskum fræðum megi njóta sín sem
best, og söngur og íþróttir og annað það, sem fegrar
lífið og gleður mennina.“
Niðurlag þessa liðs er skáldlegt mjög og sver sig í
ættina. Og vandi er að taka á fiðrildinu, án þess að eitt-
hvað verði eftir á gómunum. En bent skal á það, að haga