Vetrarblaðið - 04.11.1916, Side 5
VETRARBLAÐIÐ
3
Nú eru ýras ráð til að herða og
styrkja líkamann, svo að þeir sem
hraustir eru, eiga kost á að verða enn
hraustari og þeir sem eru heilsuveilir,
geta fyrir þau ráð náð góðri heilsu.
Þess eru mörg dæmi, að veikluðu
fólki, hefir tekizt fyrir dugnað og góð-
an vilja að herða og stæla líkamskrafta
sína.
[síkaminn vEikist af hrEufingarlEysi.
beikir barnanna.
Ef spelkur eru bundnar um heilbrigð-
an lim í nokkrar vikur, verður hann
stirður og megrast, og vöðvarnir missa
þróttinn og rýrna stórum.
Lífið er stöðug hreyfing. Allar sellur
þurfa að neyta sín og starfa með viss-
um hvíldum hver á sinn hátt til þess
að líkamanum líði vel. Og ekkert fjörg-
ar betur líffærastarfið í heild sinni, enn
starf vöðvanna, hreyfingarnar. Við þær
örvast blóð- og lymfurásin, og um leið
andardrátturinn, og þar af leiðir aftur
aukin efnaskifti í sellum allra líffæra.
Þetta finna börniu ósjálfrátt og eru á
sífelldu iði og þurfa altaf að vera að
leika sér. Enginn skyldi heldur hindra
þau í því, heldur stuðla sem mest til
þess að þau hreyfi sig og þá helzt
undir beru lofti, þegar þess er kostur.
Fullorðna fólkið á að greiða fyrir leikj-
um barna, leiðbeina þeim og kenna
þeim skemtilega leiki. Við það þrosk-
ast um leið skilningur þeirra og gáfur.
[iEikfimi og aörar tþrottir.
í flestum skólum er nú tíðkað að
kenna leikfimi, þ. e. að æfa vöðvana
og liðamótin eftir röð og reglu. Þvi
miður hættir mörgum að gleyma leik-
fimisæíingunum þegar skólanum sleppir.
Margir fullorðnir skoða sig upp úr þvi
vaxna að fást við leikfimi og íþróttir;
fyrir það eldast þeir fyrir tímann og
gigtin heimsækir þá. Og ekki er kven-
fólkinu síður en karlmönnunum þörf á
að styrkja vöðvana, hvort sem er með
göngulagi eða íþróttaæfingum; siður en
svo. Flestar örðugar fæðingar stafa af
kyrsetum og hreyfingarleysi, og margt
afkvæmi veiklast af sömu ástæðum.
SJcautaferðir og sTcíðahlaup jafnast á
við beztu líkamsæfingar. Margar fleiri
íþróttir mætti nefna, sem hollar eru og
styrkjandi, en það yrði of langt mál að
fjölyrða um þær.
,flf huErju kEmur kuEfiö og hóstinn?4
»Það kemur af leti og því er nú ver.«
Þetta vísubrot má til sanns vegar færa.
Ef menn nentu því að fórna svo sem
þriðjung stundar á degi hverjum, til að
herða og styrkja líkamann, þá er eng-
inn vafi á því að heilsufar mundi batna
að stórum mun.
Þvi miður er húsakynnunum viðast hvar á
voru landi svo ábótavant, að naumlega verður
komið við likamsrœstingu. Það er sorglegt til
þess að vita, að þó baðstofa sé á hverjnm bæ,
þá bera þær ekki nafn með rentu, og er það
leiðinleg afturför frá þvi sem fyr hefir tiðkast.
Yonandi breytist þetta til batnaðar i framtiðinni,
svo að regluleg baðstofa kemst upp á hverju
heimili auk svefnskála og iveruherbergis. Bað-
klefi þarf hvorki að vera stór né kostnaðarsam-
ur 'til aö koma að tilætluðum notum.
Steingr. Matthíasson.
(Heilsufræði).