Vetrarblaðið - 04.11.1916, Blaðsíða 12

Vetrarblaðið  - 04.11.1916, Blaðsíða 12
6 VETRAKBLAÐIÐ bregðist vel við og kaupi þær bækur sem sambandið gefur út. Munu allir játa að hér er tilfinnanlegur skortur á íþróttafræðBlubókum. Það eru slikar bækur sem eiga að glæða áhuga manna fyrir íþróttum og leiðbeina mönnum, því hér eru ekki íþróttakennarar á hverju strái. Þeir menn eiga allar þakkir skilið, sem unnið hafa að glimubók þessari. Þeir hafa unnið að því að ein þjóðleg- asta íþrótt vor mætti á lofti haldast. Gamall glímumaður. Lanöið og þjóöin. -----— það er líkt um landið og leiksvið með tilteknum útbúnaði, leik- tjöldum, húsmunum, ljósfærum o. s. frv. Leik8viðið afmarkar að nokkru leyti eðli þeirra sjónleika sem þar geta farið fram, svo að vel sé. En af þeim leik- um, sem þar má sýna, geta sumir verið góðir. en aðrir ómerkilegii. Þar má leika vel og illa, eftir þvi hver leikar- inn er. Vér höfum hlotið að erfð eitt hið einkennilegasta leiksvið, sem nokkur þjóð hefir fengið. Saga vor sýnir, að hér má lifa lifi svo merkilegu, að aldrei fyrnist. En vér þurfum ekki að leita lengi til að finna að landið býður þjóð- inni ótal tæki, bæði til íþrótta og alvarlegra starfa, sem hún hefir ekki notað, og margt hefir verið látið ógert sem landið virðist skapað til. Leik- sviðið hefir ekki skapað leikarann. Hér eru til dæmis fjöll með einhverri fegustu útsjón í víðri veröld. Þó hafa íslendingar ekki verið neinir fjallgöngu- menn, og eg hygg, að það hafi verið útlendingar, sem fyrstir gengu upp á sum hæstu fjöllin hér á landi, Á norð- ur og austurlandi er venjulega ágætt skíðafæri á vetrum. Ýmsir ganga þar á skíðum af nauðsyn. En skíðalist hefir aldrei verið til hér á landi, er berandi sé saman við list frænda vorra Norð- manna í þeirri grein. Líkt mætti segja um skautaferðir. Víða eru hér heitar laugar — ágætt tækifæri til að læra sund. Forfeður vorir voru miklir sund- garpar. En vér höfum til skams tíma verið ósyndir, allur almenningur. Land vort er eitt hið einkennilegasta og fjöl- breyttasta land að náttúru, og jarðsaga þess er stórmerkileg. Þó eru íslending- ar ekki alment hneigðir til náttúru- skoðunar ------------- Guðm. Finnbogason (i »Skírni«). Víðavangshlaup verður haldið fyrsta sumardag næst- komandi. Er hér með skorað á öll íþróttafélög bæjarins að taka þátt í hlaupi þessu og fara þegar að æfa sig. Öllum skólum er og heimilt að taka þátt í hlaupinu, samkvæmt leyfi I. S. í. Mönnum er engi vorkunn að æfa sig fyrir hlaup þetta, þótt að vetrarlagi sé. Menn geta æft sig á skíðum og skautum, því alt sem miðar að því að styrkja vöðvana og liðka er óbeinlínis æfing fyrir hlaup þetta. Þess gerist engi þörf að hlaupa úti fáklæddur og léttskóaður. Það er eins gagnlegt að hlaupa alklæddur i þungum stígvélum. Það eykur þolið og styrkir vöðvana. Erlendis eru svona hlaup haldin á hverju vori. Þykir ætíð mikið til þeirra koma því að þátttakendur skifta oftast mörgum hundruðum. Er vanalegt að láta þá hlaupa yfir grafir og garða og hvað sem fyrir er, svo að hlaupararnir eru oftast all-skringilegir útlits er þeir korna á áfangastaðinn,

x

Vetrarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vetrarblaðið
https://timarit.is/publication/523

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.