Vetrarblaðið - 04.11.1916, Side 13
VETRARBLAÐIÍ)
9
Verðlaun verða því félagi veitt sem
sigurinn hlýtur. Iþróttafélag Reykja-
víkur ætlar að æfa fjóra 5 manna flokka
í vetur fyrir hlaup þetta.
Upp á Oræfajökul.
Þann 7. júlí í sumar gekk hr. verk-
fræðingur Guðmundur Hlíðdal, ásamt
tveimur fylgdarmönnum, upp á Hvann-
dalshnúk á Öræfajökli, sem er hæsti
tindur á íslandi; mun Hliðdai vera fyrsti
Islendingur er það hefir gert.
Þeir félagar hófu jökulgönguna frá
Sandfelli í öræfum kl. 4*/2 e. m. og
komu á hnúkinn kl. 1280. Gekk þeim
ferðin vel þó ekki hefðu þeir annað af
þeim áhöldum er venjulega eru notuð
við slik tækifæri, en broddstafl og alpa-
taug. Var jökullinn svo harður að brodd-
ar mörkuðu varla. Þar sem brattast var
urðu þeir að höggva sex spor í ísinn og
tók það V2 tíma.
Eins og fleBtum mun kunnugt er uppi á
jöklinum stór hjarnfönn, en upp úr henni
standa nokkrir hnúkar. Norðvestan er
Hvanndalshnúkur 6752 fet, en á syðstu
röndinni eru 2 hnúkar er heita »Knapp-
ar« (5603 og 5900) og vestur af þeim
Rótarfjallshnúkur 5890 fet.
Sá er fyrstur gekk upp á öræfajökul
var Sveinn Pálsson, gekk hann upp á
»Knapp« 11. ágúst 1813. Fyrstur upp
á Hvanndalshnúk var Hans Frisak (10/7
1813), næstur honum var Engleudingur
F. W. Howell, hann gerði tvær tilraunir,
fyrri tilraunin (12/8 1890) misheppnaðist,
en næsta ár gerði hann aðra tilraun
og komst upp 17. ágúst. J. P. Kock
Grænlandsfari gekk einnig á Hvann-
dalshnúk er hann var. hér við landmæl-
ingar. Prófessor A. Heusler mun einnig
hafa gengið á jökulinn en hvort hann
hefir verið á toppnum er ókunnugt. “
Brot.
Nú hefir sumarið kvatt landiö.
öll náttúran er er eins og stirðnað
bios.
Þú, sem harmar sumarið, hefurðu
notað alt sem það bauð þér? Hefurðu
nokkurntíma horft af háu fjalli yfir
landið algrænt 0g vafið í sólskini, og
fundið augað stækka af fegurðinni. Hef-
urðu nokkurntíma fundið brjóstið lyftast
af lifandi fjallalofti og fundið hugann
renna 'Saman við brosandi náttúruna.
Hefir nokkurntíma gripið þig titrandi
gleði yfir fegurð fósturjarðarinnar og
þér hefir fundist þú eiga alt landið í
kring ura þig? Ef þú hefir ekki fund-
ið þetta, þá hefurðu látið sumarið fara
frá þér án þess að þiggja það bezta,
sem það býður. En mundu að það
kemur annað sumar á eftir þessu. Láttu
það ekki fara eins.
Vér Islendingar byggjum eitthvert
fegursta og fjölbreyttasta land í heimi,
samt eru undarlega fáir, sem finna það
sjálfir, hve landið er fagurt. Þeir sam-
sinna þvi ef þeir heyra einhvern halda
því frara. Það er fjöldi manns sem
hefir jafnlítinn smekk fyrir alla uátt-
úrufegurð og kálfar fyrir listaverk.
Vísið börnunum veg til náttúrunnar,
þá munu þau sjálf læra að meta feg-
urðina og elska landið, sem fóstrar þau.
Lofið börnunum að leika sér. Heftið
ekki gleði þeirra þótt aldurinn hafi inn-
rætt yður ímugust á öllum brekum. Sjáið
um að þau verði hraust og sterk. Bann-
ið þeim ekki að hlaupa og hlægja. Veit-
ið þeim tækifæri til að þroska líkamann.
Gleymið ekki að þér eruð að ala þau upp
fyrir þjóðina og þjóðin þarf að fá hraust
börn.
Gefið ekki visin strá i mælirinn.