Ungi hermaðurinn - 15.02.1910, Blaðsíða 4

Ungi hermaðurinn - 15.02.1910, Blaðsíða 4
12 Ungl hermaðurlnn. höfðu ráðiö meS sór aS fara og tína ber. Mig langaöi mjög til aS mega vera meS, en eg óttaðist að faðir minn mundi ekki leyfa þaS. Eg sagði honum þó frá þessu og fekk loks leyfi að fara með dreng- junum. Eg róði mér varla fyrir gleði og hljóp inní eldhús og fekk stóra körfu til að tína ber í, svo bað eg móður mína að gefa mér dálítiö af brauði í nestið. Eg var altilbúinn, með körfuna á handleggnum. Þegar eg gekk gegnum hliðið, var faðir minn þar og kallaði til mín, eg gekk til hans og hann tók f hönd mór og sagði með mestu hóg- vœrð: Jósep, til hvers feröu?, er það til að tína ber, eSa til að leika þór? AS tfna ber, svaraði eg. Ef svo er, þá vil eg segja þór eitt, og þaS er, að þeg- ar þú hefir fundiö góðan berjarunn, skaltu ekki yfirgefa hann til þess aS leita annars betri, þó þú sjáir að önn- ur börn gjöri það og hlaupi alt í kring úr einum stað í annan, hrifsi sitt berið f hverjum stað og eyði þannig miklu af tímanum án þess að finna svo sem neitt. Ef þú fylgir þeirra dœmi munt þú koma heim meS tóma körfu þína, en ef þú vilt fá ber, þá vertu kyr á þínum stað. Svo fór eg með hinum og við áttum skemtilegan dag. En það var einmitt eins og faðir minn hafði sagt; naumast bafði einn fundið berjarunn fyr en allir þyrptust þangað, þeir stönsuðu eina og tvœr mínútur og hlupu svo í annan stað. Þegar kvöld var komið voru drengirnir uppgefnir af sífeldum hlaupum, en höfðu svo sem engin ber. Orð föður míns fóllu mór ekki úr minni, og því var eg rólegur við minn runn; þegar eg fann einn var eg þar kyr þar til engin ber voru eftir í honum, þá leitaði eg mór aB öSrum og fór eins að, og þegar kvöldið kom hafði eg körfuna fulla af berjum, sem var meira en öll hin börnin höfðu fundið að samanlögöu. Eg var langtum óþreyttari en hinir og því mikið glað- ari og ánægðari. Eftir aS eg kom heim frótti eg, að faðir minn væii oröinn veikur, hann skoðaði þó í körfuna mína, sem var full af þroskuðum hindberjum og sagði: Vel gjört Jósep, þú hefir gjört eins og eg sagði þór. Haltu áfram á sama hátt; vertu kyr á þínum stað. Fám dögum eftir þetta dó faðir minn og eg varð sjálfnr að fara að vinna fyrir mínu lífsuppeldi svo mikið sem eg gat. Orð föSur míns festu djúpar rætur í hjarta mínu, og aldrei hefi eg gleymt þeim síðan daginn, er eg fór á berja móann. Eg var kyr á mínum stað. Þegar eg hafði þolanlega góða atvinnu yfirgaf eg hana ekki, til þess, í óvissu, að leita að annari betri. Eg sá, að ung- ir menn eyddu vikum og mánuðum til að leita og leita að öðru betra, og þeir sögðu við mig: Komdu með, vór vil- jum gjöra góða uppskeru á stuttum tíma, þá hristi eg bara höfuðið, og var »kyr við minn runn«. Svo bauð yfir- maður minn mór að gjörast meöeigandi fyrirtækisins; eg þáði það boð og var þar þangað til hann dó, þá varð eg sjálfur eigandi alls fyrirtækisins. Sú regla, að eg ávalt var stöðugur við starfa minn kom fólki til að hafa góða tiltrú til míu. Þannig sjáið þór, að eg skulda alt Bem eg á og er, þeirri lífsreglu sem fað- ir minn gaf mór, þ. e., að vera kyr við minn runn, — vera staðfastur. -----4------

x

Ungi hermaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.