Ungi hermaðurinn - 01.05.1921, Qupperneq 8
40
Ungl hermaSurinn.
Þetta lífsins land
Lýðnum búið er
Vegu Guðs er gekk á jörðu hér.
Sjá það sólar-land
Sjúlfur Jesú vann
Fyrir mig, er krossinn hér bar
hann!
Blessuð Drottins borg,
Bráðum fyrir mig
Perluhlið þín himuesk opna sig!.
2.
Jesú, kalla jeg á þig,
Jesú, vek af svefni mig
Jesú, hreinsa hjarta mitt,
Svo heiðrað fái eg nafnið þitt.
Upp eg því næst sest um sinn,
Sé og tek svo klæðnað minn,
Skai þá merkja skrúði sá
Skart mitt efsta degi á.
Ofan úr rúmi eg svo fer,
Áform mín þvi fel eg þér,
Lifandi Je3Ú, líknargjöf,
Leið mig eins frá minni gröf.
Þá er eg klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól;
í Guðs óttanum gefðu mér
Að ganga í dag svo liki þér.
Lát mig ekki líta af þér,
Ljúfi Jesú,‘ ver hjá mér,
Oska eg þess, að elskan þín
Eilífiega sjái til mín.
flendur og andlit hygst eg þvo,
Háls og eyru líka svo,
Jesú blessuð benjalind
Burtú þvær eins mína synd.
Sannan gef mjer sálarþrótt,
Svo sem annað frá þér gott,
I lifl og dauða láttu mig
Lofa um eilifar aldir þig.
Frá sunnudagaskólanum.
Sunnudagaskólalexíur.
5. Júní Jóh. 21. 1 —17. vers
12. — P- g- 3. 1 -10. —
19. — P. B. 8. 26 -40. -
26. — II Tím. 1. 1- - 8. —
Vikuleg biblíuvers til að
læra utan að.
Sd. 5. júní: Lærisve nninn, sem
Jesús elskaði sagði viðPjetur:
»Það er Drottinn*.
Sd. 12. júní: Silfur og gull á eg
ekki en það sem eg hef það
gef eg þjer. »1 nafni Jesú
Krists frá Nazaret, statt upp
og gakkc.
Sd. 19. Júni: »Skilurðu það, sem
þú ert að lesa«.
Sd. 26. júní: »Þjer er frá barn-
æsku kunnug heilög ritning,
sem getur uppfrætt þig til sál-
uhjálpar með trúnni á Jesúm
Krist«.
Útg. og ábm.: S. Grauslund.
Isafoldarprentsmiðja.