Ungi hermaðurinn - 01.06.1922, Qupperneq 7
Ungi hermaðurinn.
47
°g sterkur. Og ástæðan til þess
að hún fær staðist í hinum mörgu
Þrautum lífsins er sú, að hún á
elskuríkt hjarta og sterkan vilja.
Brennanöi tár.
Maður í Englandi, sem hafði
verið mikill drykkjumaður, sagði
einu sinni félögum sínum æfisögu
aina.
Meðal annars sagði hann:
Eg var drykkjumaður, en mér
ekki vel við að fara einn í
^eitingahúsin og svo tók eg litlu
8Wlkuna mína, sem eg elskaði
^eir en alt annað, með mér.
Eg bar hana vanalega í fang-
inu.
Kveld eitt þegar við vorum á
heimleið sagði hún: »Pabbi, farðu
Þangað ekki aftur!«
»Þegiðu«, sagði eg stuttlega.
Eftir svolitla stund sagði hún
viknandi: »Elsku góði pabbi,
Serðu það ekki«. »Eg sagði þér
að þú ættir að þegja*. Við héld-
óna áfrarn, og litlu síðar fann eg
^rennandi tár falla niður á hend-
lQa á mér. Eg skildi, að elsku
lega barnið mitt grét yfir mér,
°g þetta tár gekk mér til hjarta.
% fór ekki í veitingahúsið kvöld-
ið eftir og heldur ekki neitt ann-
a& kvöld síðan. Það var litla.
atúlkan mín sem bjargaði mér
frá drykkjuskapnum og hjálpaði
mér til að verða frelsaður maður.
Engin má segja að börnin geti
ekki komið neinu til leiðar.
Áhrif þessa barns hjálpuðu vesl-
ings drykkjumanni til að verða
góður faðir.
Hún mamma á mig.
Kona nokkur spuroi lítinn dreng,
hvort hann vildi koma með sér,
en hann svaraði: »Nei«. »Af
hverju viltu það ekki?« spurði
konan. »Af því að hún mamma
á mig<, svaraði hann.
Það var skynsamlegt svar.
Skyldum við geta lært nokkuð
af svari þessa barns? Þegar
Satan og óguðlegir tnenn freista
okkar tii þess að ganga með
þeim á syndarinnar vegi, þegar
heimurinn freistar okkar og seg-
ir: »Kom«. Þá skulum við svara
ákveðin: Nei, eg geri það ekki,
Jesús á mig!«
»Þér eruð ekki yðar eigin, þér
eruð dýru verði keyptir*, segir
postulinn.
Hvers erum vér þá?
Vér erum Krists, sem hefir
keypt oss og endurleyst með
sínu dýrmæta blóði. Og fyrst
vér erum hans, ber oss að þjóna
honum og þóknast honum.