Ungi hermaðurinn - 01.12.1924, Page 4
Ungi hermaðurinn.
9f
blikkdós. Hann sýndi nú systur
sinni, sem horfði á hann með
undrunarsvip, innihaldið — marga
smásilfurpeninga, sem ljómuðu í
tunglsljósinu.
Undrun og gleði systurinnar
varð enn meiri, þegar þau voru
búin að telja peningana og það
kom í ljós, að það voru samtals
11 krónur.
Þessa peninga hafði hann unn-
ið sér inn um sumarið með því
að fara sendiferðir fyrir gamla
konu, og bann hafði ásett séi' að
kaupa fyrir þá bækur; því að
hann var hneigður til að lesa
góðar og nytsamar bækur. En
nú hætti hann alveg við það, til
þess að geta glatt systkini sín
með jólagjöfum. — Að það var
gleði og undrun á heimilnu, þurf-
um vér ekki að segja.
Þessi drengur varð að góðum
og nýtum manni, sem ætíð, þeg"
ar hann átti þess kost, reyndi
að vera til hjálpar og blessunar
fyrir aðra.
Og stúlkan, hvað haldið þi^
hafi orðið af henni?
Hún gaf Jesú hjarta sitt og
varð Hjálpræðisherkona. — Þar
vitnar hún um hinn mikla barna-
vin og leiðir sálir til hans.