Ungi hermaðurinn - 01.12.1927, Blaðsíða 4

Ungi hermaðurinn - 01.12.1927, Blaðsíða 4
92 Ungi hermaðurinn. JÓl fátæku stúlkunnar. »Mamma«, sagði María litla, »jólin byrja víst annað kvöld. Eða er ekki svo mamma?« «Jú, það er víst rjett«, sagði fátæka ekkjan og varp öndinni mæðilega »En jólin eru nú ekki framar neinn merkisdagur fyrir mig. Við eig- um engan matarbita, og þú verð- ur víst að fara út á morgun og betla eitthvað handa okkur að borða«. Um nóttina dreymdi Maríu að hún væri á ný í þeirra fyrri bústað. Það voru jól. Þegar hún kom inn í stóra, skrautlega salinn, fjekk hún ofbirtuTí ’augun af ljósadýrðinni á jólatrjenu. Faðir hennar sat þar með útbreiddan faðininn, til að bjóða litlu stúlkunni sinni »gleði- leg jól«. Móðir hennar tók hana einnig í faðm sjer. — Eða þá jóla- gjafirnar seinna utn kvöldið —' dýru og fögru jólagjafirnar, fallega stóra brúðan og alt hitt! Ó, hve hún var hamingjusöm. Hvað hún saknaði þess alls, þeg' ar hún vaknaði og varð þess vör, að þetta hafði aðeins verið draum- ur. Hún mintist þess nú, hve hamingjusöm hún hafði verið um jólin, áður en faðir hennar dó. En þegar hann var ný dáinn, kom maður með stóra bók og reikn- aði og taldi — einn, tveir, þrír. —• Stóru brúðuna hennar hafði hann líka tekið, eins og alt annað. Hún mundi glögt, að móðir hennar vafði hana innan í stórt sjal og bar hana í flýti niður á skipið- Svo komu þær til Stokkhólms og þar beið þeirra dapurt líf.----- Það var áköf fannkoma. Heldri maður kom fótgangandi eftir stræt' inu og gekk hratt. Lítil stúlka á' varpaði hánn: »Gefið mjer fáeina aura!« »Ekki núna, en einhvern' tíma seinna«, svaraði hann og gekk hratt leiðar sinnar. »Ó, hvað mjer er kalt«, kveinaði litla stúlkan, — »og jeg hefi enn ekki fengið nema 2 aura!« Hún settist í garðshlið til þess

x

Ungi hermaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.