Templar - 08.07.1918, Blaðsíða 2
22
„Tomplar“
kemu út 1- sinnum á þessu ári. Vcrð árgangsins er
kr., i Ameríku 75 cents. Ótsölumenn fá 25'/» i sölu-
laun.
Afgreiðsla og innheimta er á I.augaveg 2, Box 164,
Reykjavik.
Útgefandi: Stórsttika íslands I.O.G.T.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jón Árnason, prentari.
Box 221, Revkjavík.
ismennirnir fram skýrslur sínar yfir
starfið siðastliðið tímabil og má kelzt
geta þess, sem einna merkast er, en það
eru þau atriðin, sem snerta fjárhaginn.
Tekjur Stórstúkusjóðs.
Allir skattar námu kr. 1376,25, seld
rit kr. 136,20, innheimtar skuldir kr.
205,90, ýmsar tekjur kr. 103,00 og fallið
frá ferðakostnaðarsjóði kr. 255,70, aðr-
ar tekjur kr. 33,70. Tekjur alls kr.
2110,76.
Gjöld Stórstúkusjóðs.
Ógreiddar skuldir frá fyrri reiknings-
tímabilum kr. 51,14, þinghald 1917 kr.
500,40, laun starfsmanna kr. 525,00,
skrifstofukostnaður kr. 365,24, Hástúku-
skattur kr. 110,98, innheimtulaun og
ýms gjöld kr. 78,19. Gjöld alls kr.
1630,95. í sjóði kr. 479,81.
Tekjur Útbreiðslusjóðs.
Ýmsir gefendur kr. 2560,20, afborgun
af skuldabréfi kr. 400,00, erfðafé kr. 2,52,
frá áskrifendum Templars kr. 632,35.
Tekjur alls kr. 3595,07.
Gjöld Útbreiðslusjóðs.
Greitt ferðakostnaðarsjóði kr. 643,76,
vextir kr. 50,21, til Regluboðunar kr.
800,00, til Templars kr. 1122,35, inn-
heimtulaun kr. 71,79. Gjöld alls kr.
2688,11. í sjóði kr. 906,96.
Ferðakoslnaðarsjóður.
í sjóði í ársbyrjun kr. 1030,85, ferða-
kostnaður greiddur 1917 kr. 220,10, fall-
ið til Stórstúkunnar kr. 255,70. í sjóði
kr. 555,05.
Peningaeign Slórstúkunnar.
Stórstúkan átti þvi í peningum alls,
er þingið kom saman:
í Stórstúkusjóði . . . . kr. 479,81
í Útbreiðslusjóði. ... — 906,96
í Ferðakostnaðarsjóði. . — 555,05
Samtals kr. 1941,82
Landsbankaskuld Stórstúkunnar.
Á stórstúkuþinginu i Hafnarfirði var
skuld Stórstúkunnar við Landsbanka
íslands kr. 6000,00 og með því að sýni-
legt var, að skuld þessi hefði lamandi
áhrif á störf Stórstúkunnar og einkum
vegna þess að Alþingi hafði neitað henni
um styrkinn, þá gerðu nokkrir góðir
vinir Reglunnar samtök um að greiða
skuldina og var hún að fullu greidd er
stórstúkuþingið kom saman.
Fjárhagsástæður Stórstúkunnar hafa
því sennilega aldrei verið jafn-glæsileg-
ar og einmitt nú.
Efnahagsreilcningur
Stórstúkunnar var samtals kr. 9927,60,
og eru það skuldlausar eignir hennar.
Stór-Templar lauk skýrslu sinni á
þessa leið:
»Vér höfum átt i orrustum hér á þessu
ári sem fyr. Vér höfum alls staðar bor-
TEMPLAR.
ið sigur úr býtum vegna þess að vér
eigum góðan málstað. Bannvinafélög
risa nú upp til verndar bannlögunum.
Vér höfum notið góðrar samvinnu þeirra
og megum vænta góðs af þeirri hreyf-
ingu framvegis.
Enginn stjórnmálaflokkur í landinu
berst gegn bannlögunum, en ungur flokk-
ur, sem virðist framgjarn, hefur tekið
verndun laganua á stefnuskrá sína.
Vér megum gleðjast yfir því að Al-
þingi hefur sett á stofn tolleftirlit, þótt i
smáum stíl sé enn þá. Mjór er mikils
vísir.
Og enn er þess að minnast, að stór-
þjóðir heimsins stefna nú óðum að því
að útiloka alt áfengi. Bandaríkin verða
innan fárra ára alþur. Víða um heim
er áfengi að verða ófáanleg vara. Mál-
efni vort vinnur hvern sigurinn öðrum
glæsilegri. Bakkusi er steypt af stóli.
Hann er alt af að tapa.«
Þingið hefur ætíð ýms fyrirfram á-
kveðin mál til meðferðar og er eitt
þeirra samþykt reikninganna og að gefa
starfsmönnunum kvittun fyrir gjörðum
sínum hvers um sig, einkum þeim þeirra,
sem hafa ákveðnum störfum að gegna
milli þinga. Þetta var einnig gert nú.
Regluhagsnefndin kom með nokkrar
tillögur um útbreiðslu, um siðbókina
o. fl.
Um bannlögin og framkvæmd þeirra
var nokkuð rætt og tillögur samþyktar
þar að lútandi. Fá stúkurnar tækifæri
til að kynna sér það nánar, þegar þing-
tíðindin koma út.
Ýmsar breytingar voru samþyktar á
aukalögum Slórstúkunnar og eru þessar
helztar:
Ársfjórðungsskatturinn til Stórstúk-
unnar verður 50 aur. af hverjum karl-
manni eldri en 18 ára og 30 aur. af
hverjum kvenmanni og unglingi innan
18 ára aldurs. Áður var skatturinn 25
og 20 aur.
Stiggjöld: Fyrir umdæmisstúkustig
skal greiða 3 kr. og stórstúkustig 5 kr.
Áður voru stiggjöldin 1 kr. og 2 kr.
Lægstu ársfjórðungsgjöld félaga í und-
irstúkum skulu vera 50 aurar kvenna
og unglinga innan 18 ára aldurs og 75
aurar karlmanna eldri en 18 ára. Áður
voru þessi gjöld ákveðin 30 og 50 aur.
Inntökugjöld skulu lægst vera 2 kr.
kvenna og unglinga innan 18 ára aldurs
og 3 kr. karlmanna yfir 18 ára. Ungl-
ingar, sem æskja inngöngu úr barna-
stúkum í undirstúkur skulu greiða 50
aura, eins og áður. — Áður var lág-
mark inntökugjalda kvenna og unglinga
1 kr. og karlmanna yfir 18 ára 2 kr.
Breytingarnar verða birtar stúkunum,
þegar þær hafa náð staðfestingu Alþjóða-
Æðsta-Templars. Hann á að staðfesta
öll aukalög stórstúknanna.
Merkasta verkefni hvers þings er kosn-
ing framkvæmdarnefndarinnar, en liana
skipa 9 menn (hinir kosnu embættis-
menn). Voru þeir allir endurkosnir:
S.T. Pétur Halldórsson, bóksali
S.Kanzl. Þorv. Þorvarðsson, prentsmstj.
S.V.T. Ottó N. Þorláksson, stýrim.
S.G.U.T. Jón Árnason, prentari
S.G.Kosn. Sigurður Eiríksson, regluboði
S.Rit. Jóh. Ögm. Oddsson, kaupm.
S.G. Þórður Bjarnason, stórkaupm.
S.Kap. Einar H. Kvaran, skáld
F.S.T. Guðm. Guðmundsson, skáld.
Skipaðir embættismenn eru:
S.Dr. Ágústa Magnúsdóttir, ungfrú
S.V. Sigvaldi Bjarnason, trésm.
S.Ú.V. Gisli Hinriksson, kennari
S.A.R. Torfi Hermannsson, kennari
S.A.Dr. Emilia Indriðadóltir, ungfrú.
Sem umboðsmanni Alþjóða-Hástúk-
unnar var mælt með Guðm. landlækni
Björnssyni. Fulltrúi til Alþjóða-Hástúk-
unnar var kjörinn Einar H. Kvaran og
varafulltrúi Páll Jónsson.
Fjárhagsáætlanir Stórstúkusjóðs og
Útbreiðslusjóðs fyrir næsta ár voru sam-
þyktar.
Samþykt var að gefa »Templar« út
næsta ár með sama fyrirkomulagi og
þetta ár og var núverandi ritstjóri end-
kosinn í einu hljóði. Á fjárhagsáætlun
Útbreiðslusjóðs var veitt fé í þessu skyni.
Þessi eru helztu atriðin í fjárhagsá-
ætlunum, auk þess er nú var nefnt.
Til regluboðunar voru veittar 2500
kr. (við Faxafla 400 kr., ausfanfjalls 300
kr., Austur og Norðurland 1200 kr.,
á Vestfjörðum 300 kr., til Umdæmisst.
nr. 1 300 kr.), til Unglingareglunnar kr.
410,00, til flugrita kr. 170, til eftirlits
1000 lcr.
Tekjur Úlbreiðslusjóðs:
Tekjuliðir eru þessir helztir: Frá Stór-
stúkunni 1000, ýmsar gjafir alls 1050
kr. (inn á þann lið eru nú þegar komn-
ar 1400 kr.) afborgun af skuldabréfi kr.
400, erfðafé og seldar eignir kr. 1500,
tekjur af »Templar« kr. 593,04.
Ýmsar tillögur höfðu komið fram frá
nefnd unglingareglumála og voru þær
samþyktar. Álit manna, að meiri á-
herzlu beri að leggja á þá grein starf-
seminnar í framtíðinni en hingað til.
Fjármálanefndin var kosin þannig:
Pétur Zóphóníasson,
Páll Jónsson,
Flosi Sigurðsson,
Sigvaldi Bjarnason,
Guðm. Gamalíelsson.
Fastar nefndir skipaðar samkvæmt
lögum. Öll mál, sem Stórstúkunni ber-
ast, ganga fyrst lil einbverrar hinna föstu
nefnda, sem gerir tillögur um þau.
Á lokafundi stórstúkuþingsins bárust
Stórstúkunni gjafir frá stúkum og ein-
stökum félögum, er námu um 1400 kr.,
svo þegar þinginu var slitið, þá átti
Reglan á 4. þúsund króna til umráða.
Þinginu var slitið þriðjudaginn 11. f.
m. kl. 7 síðd. og bafði það því staðið
í fjóra daga og voru haldnir sjö fundir.
Álit sumra þeirra manna er, sem á
þinginu voru, og mætt hafa á mörgum
undanförnum þingum, að fá eða jafnvel
ekkert þeirra hafi staðið þessu þingi
jafnfætis. Það hafi ef til vill einna bezt
sýnt það, hve djúp áhrif Reglan og störf
hennar hafa á félagana, einkum þá fé-