Templar - 30.12.1918, Blaðsíða 1

Templar - 30.12.1918, Blaðsíða 1
TEMPLAR. XXXI. Reykjavik, 30. des. 1918. 12. blað. Bannlös; í Hamborg. »Reformatorn« frá 20. f. m. skýrir frá þvi, að fyrsta verk verkmanna- og hermannaráðsins i Hamborg, er það tók við völdun- um, hafi verið að úrskurða algert áfengisbann þar í bænum. Bandaríkin í Nordur-Ameríku hafa bannað allan útílutning á áfengi til þeirra Ianda, sem hafa lögleitt algert áfengisbann, og þess vegna hefur verið haft strang- ara eftirlit með íslenzku skipunum í New-York upp á síðkastið en áður hefur átt sér stað. „Templar“ blað Good-Templarreglunnar á íslandi, gefinn út af Stórstúku íslands af I. 0. G. T. Einarður málsvari stærsta og merkasta málsins, sem nú er uppi með þjóðunum. Flytur sannar og glöggar fréttir af bind- indis- og bannmálinu heima og erlendis. Allir, sem vilja fylgjast með í framgangi þessa máls i heiminum verða að kaupa Templar, sín vegna og málefnisins. Ritstjóri Jón Árnason, Lindargötu 3, Rvík. Afgreiðslu- og innheimtum. Sveinn Jónsson, Kirkjustr. 8B, Rvík. Kjartan Magnússon Stefnuskrá Good-Templaru. '1. Algerö afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. tl. Ekkert leyfi 1 neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva tildrykkjar. ill. Skýlaust forboÖ gegn tiíbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð sainkvxmt vilja þióðarinnar fratnkomnum i réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing- um, sem svo óheyrilegur glaepur verðskuldar. SV. Sköpun heilsusamlegs altnenningsálits á máli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannáat eru kunnir. V. Kosinng góðra og ráðvandra manua til að framfylgia lögunum. VI. Staðfastar tilraunir ti! að írelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrdtt fyrir allskonar mótspyrnur og öröug- leika, þar til vér höfum bcrið sigur ór být- om um allan heim. ísland Yiöurkent fullvalda ríki. Síðan síðasta blað kom út, hefur sá 'mikli viðburður gerst, að ísland er við- urkent fullvalda ríki — það gerðist 1. þ. mán. Enda þólt »Templar« sé óvilhallur í stjórnmálum og haii því ekki látið þau til sín taka, þá er þó áslæða til að minnast þessa merka viðburðar í sögu islenzku þjóðarinnar. í meira en heila ö!d hafa íslendingar barist fyrir frelsi sínu og unnið að því að fá viðurkenningu sem fullvalda þjóð er ráði öllum málum sínum. Hún misti fullveldið 1262, en fékk það aftur 1918. En engin réttindi eru svo góð eða hagfeld að ekki megi eyðileggja liinn góða árangur, sem þau geta haft i fram- tíðinni. Skilvrðin fyrir því að hagfeld réttindi komi að gagni, eru þau, að þeir, sem hafa stjórn ríkisins á hendi séu góðir menn og vitrir, menn, sem láta hag og heiður þjóðarinnar sitja í fyrirrumi fyrir öllu öðru, og umfrarn alt verða þeir að hafa óbifaðan viljakraft og siðferðis- þroska, sem enginn getur borið brigður á. En þetta eitt út af fyrir sig er ekki nóg. — Góðir, löghlýðnir og hollustu- samir borgarar er annað skilyrðið fyrir framtíðartilveru eins ríkis og ber ekki síður að leggja álierzlu á það, er um fáment og ungt þjóðerni er að ræða, eins og hér á sér stað. Mörg eru verkefnin, sem liggja fyrir íslendingum að ráða fram úr i fram- tíðinni, en allra þj'ðingarmesta málið er án efa uppeldið og uppeldismálin, sem mjög hafa verið vanrækt hér frá upp- hafi. Mun »Templar« ef til vill fá síðar tækifæri lll að tala um þau nánar. »Templar« óskar íslandi allra heilla og vonar, að hið mikilvæga spor, sem þjóðin hefur stigið, flytji hana nær því marki, sem henni hefur verið sett og geri hana færari um að inna það ætl- unarverk af liendi, er henni ber sem einstakling meðal þjóðanna. Ij.á.tnir Templarar úr inflúeuzunni. í siðasta blaði var getið nokkurra Templara, sem látist höfðu úr inflúenz- unni eða »pestinni« svo nefndu. Vér leyfuin oss að geta hér nokkurra, sem þá voru ekki kotnnar upplýsingar um: Eiríkur Helgi Eiríksson vélstjóri, andaðist 15. nóv. þ. á. Hann var um mörg ár félagi stúk. »Einingin« nr. 14, og tók þátt i störfum hennar þegar hann var heima, sem oftast nær var frá þvi i nóvembermánuði og fram í febrúar ár hvert. Hann var áhuga- samur félagi og lét gott af sér leiða. verzlunarm., Mjóstræti 2, var félagi í stúk. »Verðandi« nr. 9. Hann andaðist 16. nóv. þ. á. Hann var lengi félagi í stúkunni og var áhugasamur um mál- efni hennar. Hann var í unglingastúku áður en hann gekk i undirstúkuna. Fórður G. Jónsson bej'kir, var félagi stúk. »Skjaldbreið« nr. 117. Hann dó 10. nóv. þ. á. Hann tók um nokkurt skeið þátt í störfum stúlcunnar og lét málefni hennar til sín taka. Jón Erlendgson hringjari, andaðist 7. nóv. þ. á. Hann var félagi i stúk. »Skjaldbreið« nr. 117 í mörg ár, og lét sér mjög ant um hag stúkunnar og störf. Hann gengdi um langt skeið embætti i stúkunni og tók bæði umdæmisstúku- og stórstúkn-stig. Hann var mjög hrifínn af Reglunni og störfum hennar, og undi þar vel hag sinum meðan hann hafði heilsu til þess að taka þátt i störfunum. Hin síðustu árin var hann svo lasburða, að honum var nær ókleyft að mæta á fundum, og gat því ekki notið þeirrar gleði sem hann hafði af því að vera i Reglunni.

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.