Templar - 01.11.1925, Side 3
TEMPLAR
3
Frá stúkunum.
Br. Quðm. G. Kristjánsson fór af stað frá
heimili sínu ísafirði í byrjun fyrra mánaðar
í regluboðunarferð fyrir Stórstúkuna. Hann
hjelt fyrst til Hólmavíkur í erindum Um-
dæmisstúkunnar nr. 6 og heimsótti st. Von
nr. 195. F*ví næst fór hann til Breiðafjarðar
og heimsótti stúkur þar, m. a. st. Árroði nr.
200 í Flatey. Hann kom aftur á kjöl st.
Hildur í Stykkishólmi, og er umboðsmaður
hinn sami og áður, br. Guðm. Jónsson.
Flutti br. Guðm. G. Kr. fyrirlestur í Stykkis-
hólmi, og var hann vel sóttun í Grundar-
firði flutti br. G. G. Kr. fyrirlestur og stofn-
aði nýja stúku 2. Nóvbr. með 28 fjelögum,
og heitir hún Sóley nr. 202. Var mælt með
br. Birni Jónssyni bónda í Gálutröð sem
umbm. stórtemplars. — í Ólafsvík stofnaði
regluboðinn nýja stúku 6. Nóv. með 23
fjelögum, Hvítablómið nr. 203. Er hún
stofnuð upp úr st. Jökulblómið og Mjöll.
Br. sr. Magnús Guðmundsson er æ. t.
þessarar nýju stúku, og var niælt með br.
Sveini Einarssyni fiskimatsmanni sem umbm.
stórt. — Býður »'Templar« þessar nýju
stúkur velkomnar í hópinn. -— 15. þ. m.
flutti br. Guðmundur fyrirlestur í Borgarnesi
fyrir fjölmenni og var, er síðast frjettist, að
hressa upp á st. Borg nr. 181.*— Næst
heldur hann til skólasetranna á Hvann-
eyri og Hvítárbakka.
Um víða veröld.
Sviþjóö. Par var mikið um dýrðir 1.
Oktbr. s.l., hátíðahöld um alt landið, í
minningu þess, að þann dag voru liðin rjett
125 ár-frá fæðingu Per Wieselgren, en hann
var brautryðjandi bindindishreyfingarinnar í
Svíaríki. Wieselgren var dómprófastur í
Gautaborg, merkur rithöfundur, ótrauður
bardagamaður. Hann var gæddur afarmiklu
starfsþreki og var í stultu máli sagt hinn
mesti afreksmaður. — Æfisaga þessa ágætis-
manns fæst hjá Oskar Eklunds Bokförlag,
Drottninggatan 55, Stockholm, og kostar
aðeins 50 aura. — Per Wieselgren: Samlade
Skrifter í Nykterhetsfrágan, útg. av Studen-
ternas Helnykterhetssállskap i Uppsala, fást
hjá sama forlagi og æfisagan. Kosta kr. 7
óbundin, en 11 kr. í bandi. Er verkið í
tveimur bindum, 856 bls. alls.
Whisky-auglýsinííum ei viötaka
veitt. í enska tímaritinu »Efficiency
Magazine,« er sjerstaklega leggur ráð á um
að efla starfsþrek þjóðarinnar, segir svo:
»Vjer veitum Whisky-auglýsingum eigi
viðtöku. Nóg er fyrir af fylliröftum á Stóra-
Bretlandi. Pað er eigi þörf að fjölga þeim.
Vjer þurfum á góðum heilum að halda. Og
það eru eigi til tíu menn svo vitrir á Stóra-
Bretlandi, að þeir megi við því að spilla
gáfunum með whisky-drykkju,*
* Samkvæmt skeyti frá br. Guðm. 18. þ. m. var
Borg komið á kjöl 17. þ. m. með 20 fjelögum
og mælt með br. Sveini Níelssyni sem umbm.
stórtemplars.
Belgía. Kaþólski lýðvaldsflokkurinn í
belgíska þinginu hefir tilkynt, að hann muni
innan skamms leggja fram frumvarp um
algert áfengisbann.
Ungverjalandi Bindindishreyfingin
magnast nú með Ungverjum. Nýlega hefir
verið spurt um skoðanir allra opinberra stofn-
ana eða þeirra, er að þeim standa, í áfengis-
málinu, sjerstakl. um vínsölubann.
Austurriki. Par er útlit fyrir, að
bannmálið verði eitt af aðalmálunum, sem
næstu þingkosningar snúist um, og er við
búið, að svo verði víðar. Nú sem stendur
eru 77 bannmenn á þingi Austurríkismanna,
en þingmenn eru alls 140 að tölu. —
Johnson-Pussyfoot fer til Austurríkis úr næstu
jólum, til þess að undirbúa kosningabaráttuna
fyrir bannflokkinn. Kosningar fara fram 5.
Maí n. á.
Rúmenía. Stjórnin hefir lagt frumvarp
fyrir þingið um takmörkun vínveitinga og
vínbruggunar, og er takmarkið, sem að er
kept, fullkomið áfengisbann. Ætlun stjórnar-
innar er, að aðflutnings- og tilbúningsbann
áfengis gangi í gildi að 12 árum liðnum.
Ford Ogf bannið. Henry Ford segir,
að það sje ekki snefill af ráðvendni í þeirri
hreyfingu, sem sje grundvölluð á þeirri
ímyndun, að lög, sem eru til gagns, bjeu
heimskuleg og gagnslaus, af því að þau
svifti nokkra menn tœkifœri til þess að
rœna samborgara sina. Þjófar og kauplæð-
ingar eru af sama flokki. Þeir hafa sams-
konar rangsnúinn skilning, að þau lög, sem
aftra atvinnu þeirra, sjeu meingerð við þá
og móðgun. Spurningin er þessi: Viltu skipa
þjer í flokk með þjófum og smyglurum eða
vera hinum megin?
Bandaríkin. Roger W. Babson, ein-
hver mesti hagfræðingur Ameríku, lætur svo
um mælt fyrir skömmu, að hinn stórkost-
lega aukni fjárafli Bandaríkjanna síðustu árin
sje álengisbanninu og engu öðru að þakka.
Innlög í sparisjóði árið áður en bannlögin
gengu í gildi námu 10,6 miljónum, en nú
stappar nærri, að þau sjeu ferfalt meiri eða
38,9 miljónir.
Henry Ford, bifreiðakóngurinn mikli, er
eindreginn bannmaður. Hann segir að and-
staðan við bannlögin sje einkum meðal yngri
innflytjenda, en sannir Bandaríkjamenn vilji
fyrir hvern mun halda lögunum. Það sje
metnaður þjóðarinnar að skara fram úr öðr-
um. Hraðinn aukist í öllum greinum. Menn
þurfi að vera fljötir að hugsa og hugsa rjett.
Hann bendir á þá ógurlegu hættu, sem sje
því samfara, að druknir menn aki á reið-
hjólum, stýri bifreiðum og flugvjelum. Kröf-
urnar hækka með vaxandi framförum, og
fyrsta krafan er: burt með áfengið!
Nýju skipulagi var komið á bannlagaeftir-
litið 1. Septbr. síðastl. Bandaríkjunum er
skilt niður í 24 sýslur eða deildir með þessu
nýja fyrirkomulagi. Yfirumsjónin er í hönd-
um Lincoln C. Andrews ofursta, sem er
stjórnardeildarforseti í fjármálaráðuneytinu í
Washington. Hann hefir leitað samvinnu við
stóriðnrekendur og sjálfboðalið það, er nefn-
ist »þúsund manna sveitin«. Hafa þeir lofað
að styðja bannsýslumenn (24) stjórnarinnar
með ráðum og dáð. í þúsund manna sveit-
inni er meðal annara Elbert H. Gary dóm-
ari og John D. Rockefeller yngri.
Horfurnar á að framfylgja banninu með
góðum árangri í Bandaríkjunum eru nú betri
en nokkru sinni áður.
Noregur. Margar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að smygla áfengi á land í
Þrændalögum og á Mæri. Bar eigi á neinu
langa hríð, með því að yfirvöldin í þessum
stöðum hafa tekið rösklega á málunum og
sökudólgana engum vetlingatökum, þar til
um daginn, að lögreglan þar í Þrændalög-
um fjekk pata af því, að smyglskip hefði
komið frá Danmörku. Afengið var sett á
land hingað og þangað, en lögreglan náði
því hjer um bil öllu eðaum 16 þúsundum lítra.
Skipið (Glygg I.) var upptækt gert og vjel-
báturinn »Stanley« og kauplæðingar átta
settir í steininn í Kristianssund. — Afengið
var keypt í Kaupm.höfn af Schau & Co. í
Fredrikshavn, en skipið tók það skamt frá
Læsö. —
Svo fór um sjóferð þá. —
Undirbúningur er þegar hafinn undir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna um bannið næsta ár.
Var fundur haldinn í lok Október mánaðar.
Komu þá saman forvígismenn bannflokksins.
Þar var meðal annars rætt um og af-
staða tekin til málsins, hvort berjast skuli
við næstu atkvæðagreiðslu aðeins fyrir
brennivínsbanni, þ. e. banni sterkra drykkja,
eða fullkomnu áfengisbanni (totalforbud). Eru
horfur á, að ofan á verði að halda sjer að-
eins við aðflutningsbann S sterkum drykkj-
um.
Pussyfoot á NorBurlöndum. Góð-
ur gestur kemur til Norðurlanda nú f haust,
þar sem er bannpostulinn ameríski, W. E.
Johnson, venjulega nefndur Pussyfoot. Hann
er á ferð um víða veröld, stöðugt f þjón-
ustu Alheimsfjelagsins gegn áfengisbölinu.
Öfundum vjer frændur vora á Norðurlönd-
um af því að sjá hann og heyra, en unn-
um þeim þó með gleði ágæts árangurs af
för hans. —
England. Um þessar mundir og fram
undir Jól er verið að koma skipulagi á öfl-
uga bannboðun á Stóra-Bretlandi. Eru að
verki fjölmargir áhrifamenn, margir fyrver-
andi ráðherrar og aðrir mikilsmetnir stjórn-
málamenn, leiðtogar margra kirkjudeilda og
iðnrekendur. Gera menn sjer miklar vonir
um þátttöku og áhrif stóriðjuhölda. —
Kaupsýslumenn og verksmiðjueigendur á
Englandi hafa gert sjer mikið far um að
kynnast áhrifum bannsins í Ameríku á at-
vinnulíf þjóðarinnar. Skýrslur þær, er sendi-
menn þeirra hafa gefið, eru mjög uppörv-
andi fyrir bannflokkinm — Ennfremur taka
mörg trúboðsfjelög og fjöldi annara manna,
er láta sig miklu skifta þjóðfjelagsmál, þátt
í þessari miklu herför á hendur Bakkusi og
þjónum hans. Forgöngu hefir hið mikla
bindindisfjelag, The United Kingdom Alli-
ance. Taldir eru meðal þeirra, er að þessu
vinna, fulltrúar skipasmíðastöðva Clydes og
Tynen og verksmiðjuiðnaðar, t. d. í Manch-
ester, Sheffield og margra fjelaga í London.
Góðum mönnum á Englandi hrýs hugur við
drykkjuböli þjóðarinnar. — Arið 1924 kost-
aði sopinn Englendinga 315 miljónir, 858
þúsundir sterlingspunda.