Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 5

Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 5
SUMARLILJAN. 3 kringja breska herdeild í Mefeking, sem er lítið þorp og stendur á einni af hinum stóru hásléttum Suður-Af- ríku. Það voru alls 700 enskir her- menn, sem þarna voru króaðir inni ásamt 8000 íbúum, sem flest var kon- ur og börn, svo nærri getur að eigi var miklu til að dreifa á móti Búum, er um þorpið settust með ofurefli liðs, því það hafði töluvert mikla hernaðarlega þýðingu fyrir Búaher- inn að ná því á sitt vald. Og 700 hermenn á mílulöngu svæði var ekki þéttskipuð varnarlína. Rað leið heldur eigi á löngu þar til að skörð fóru að koma í hana. Dag frá degi fjölgaði þeim, er féllu og særðust. Englendingarnir biðu og vonuðu að þeim kæmi hjálp, en hún kom eigi. Engir voru til Iengur er gætu komið í stað þeirra er féllu og útlitið var hið versta. Af og til komu sendiboðar frá Búum, með á- skorun til höfuðsmannsins að gefast upp og eftir hverja neitun hertu Bú- ar á umsókninni. F*á kom höfuðs- manninum (Sir Baden Powell, þá ó- berst) gott ráð til hugar. Hann safnaði saman í eina sveit öllum drengjum úr bænum, lét þá fá einkennisbúning (Skátabúninginn, sem nú er), hélt með þeim æfingar, kendi þeim að njósna, hjúkra særð- um og margt fleira. Eftir dálítinn tíma gátu drengirnir farið að koma í stað hinna föllnu. Peir voru al- staðar: Efst uppi í háum trjám á verði. Smádeildir smugu í grasinu alveg að virkjum Búanna, þeir þeystu á reiðhjólum í skothríðinni, með skilaboð milli virkjanna. Pessi hug- rakka og karlinannlega framkoma þeirra vakti aðdáun allra, og þeir áttu ekki minstan þátt í því, að Mefeking varðist svo frækilega þar til eftir marga mánuði að liðstyrkur Ioksins kom frá Bretum. Höfuðsmaðurinn stöðvaði einn dag 12 ára gamlan dreng, sem kom á reiðhjóli í þéttri hríð af sprengikúl- um, er rifu og tættu upp veginn kringum hann, kallaði til hans og mælti: »Drengur, þú verður skotinn til bana, þá og þegar, ef þú ekki heldur kyrru fyrir meðan slík skot- demba líður hjá. Drengurinn stökk rösklega af hjólinu og svaraði: Nei, herra höfuðsmaður, eg fer svo hart að enginn getur hæft mig.« Drengir þessir hirtu yfirleitt ekki um hættur, en voru æ reiðubúnir að gjöra það gagn, sem þeir gátu fyrir land sitt, jafnvel þó um lífið væri að tefla. Peir voru ekki einungis röskir drengir, þeir voru menn i orðs- ins fylsta skilningi. Drengirnir lærðu að rata ókunna vegi, bæði á nóttu og degi, að átta sig eftir sól og stjörnum, þekkja á áttavita og nota uppdrætti. Péir urðu að vera syntir sem selir, kunna að nota vel augu og eyru svo ekk- ert færi óathugað fram hjá þeim. Peir elduðu og tilreiddu mat sinn sjálfir og hirtu um sig að öllu leyti. Powell kallaði þessa drengjasveit sína Scouts (njósnara.) Að stríðinu loknu fengu þeir allir heiðursmerki fyrir

x

Sumarliljan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.