Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 14

Sumarliljan - 01.06.1919, Blaðsíða 14
12 SUMARLILJ AN. iiiiiiiiitiiiiiimiiiiniiiiini innnnnnnni............nnnnnnnn.................................... óákveðna lyndiseinkunn. Andlitsfaliið er oftast það, sem mest er farandi eftir, en hér er ekki rúm til að út- skýra það. Reynið sjálf við þann næsta, sem þið sjáið. (Að mestu Ieyti þýtt.) SKÁTAR. Hverjir eru þeir eiginlega þessir Skát- ar? spyrja menn. Jú, það eru drengir, sem ganga í fylkingum um göturnar og eru í einkennisbúningum. Meira vita fæstir. En þetta er ekki nóg. Því að í raun og veru eru Skátarnir drengir, sem alstaðar eiga að koma fram til gagns og góðs. Þeir ganga f einkennisbúningum til að fólk geti þekt þá, og snúið sér til þeirra, ef þarf. En til að geta gert verulegt gagn, þurfa skátarnir að kunna dálítið. í flestum Skátafélögum eru tekin tvö próf, minna og ’meira próf. Undir minna próf þarf að læra dálítið: fyrst í hjálp, ef slys verða, sporrekstri og eftir- tekt, að kveikja eld með aðeins tveimur eldspítum, kunna að élda hafragraut, te eða cacaó kunna Skátalögin og merkin, geta hlaupið 2000 m. á 12 mín., eiga 50 au. í sparibauknum og hafa verið mán- uð í félaginu. Eftir þetta próf fær Skátinn borða á vinstri handlegginn með áletran: Vertu viðbúinn. Þá er hann annarsflokks-Skáti Aðeins annarsflokks-Skátar fá að taka meira próf. Þar þarf að geta: synt 100 m. eða hlaupið 2000 á 8 mín; sent og tekið á móti með einu flaggi, eftir Morse- stafrofi og tveimur flöggum orðsend- ingu með 16 stafa hraða á' mínútu, fara tvær mílur gangandi eða ríðandi og gefa nákvæmar skýrslur um leiðina, sagt hvernig skuli haga sér við allskonar slys búið til tvo rétti matar. Auk þess þarf hann að að eiga 1 kr. í sparibauknum, Hafa koinið með einn nýliða í félagið og kent honum lögin og fl. Þá verður hann fyrstaflokks-Skáti og fær alt skjald- armerkið. Flokksforingjar bera þetta skjaldarmerki á hattinum. Enn meiri kunnáttu og merkja geta Skátarnir aflað sér innan félagsins, og er það full kunnátta i ýmsum greinum svo sem: Hjálp i viðlögum: Fyrsta hjálp, stöðva blóðrás, binda um sár og beinbrot, bera særðan, búa um hann þar til næst í lækni. Byggingarmerki: Fyrir handlagni í hverju setn að hagleik og smíði lýtur, svo sem eftirlíkingar á húsum, skipum, brúm o. fl. Skotmerki: Hæfa skotspón á 20—100 metra færi og dæma um fjarlægð á 50—60 m. með minna en 15°/o skekkju. Vopnamerki: Kunna að berjast með stöfunum, hnefaleik, glímur og skylmingar. Flaggamerki: Senda og taka á móti með Morseflaggi eða rauðu og hvítu ineð 24 -stafa hraða á mín. Sendaoglesaljósmerki. Vegvísaramerki: Þekkja helstu staði og byggingar, þar sem hann á heima á */■> mílu hringsvæði og kunna draga uppdrátt af landiuuogvegum með ‘/ioooo. Sjómannsmerki: Hnýta alla venjulegahnúta í myrkri. Róa, seglbúa, stýra bát, nota sjóupp- drátt, þekkja á áttavita. Stýra eftir sól og stjörnitm. Segja um

x

Sumarliljan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarliljan
https://timarit.is/publication/537

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.