Sólöld - 20.07.1918, Blaðsíða 3
1. Árgangur.
WINNIPEG, 20. JÚLI 1918
No. 1.
BARNAVERDIR
Góðir hundar eru ágœtir barnaverðir. pað er
eins og sumir hundar séu blátt áfram skapaðir til
þess að gæt.a lítilla barna. pegar foreldrar barn-
anna fara eitthvað frá þeim eða hafa af þeim augun.
Til eru margar sögur—og þær sannar—um það að
hundar hafa bjargað börnum frá hættum og lífs-
háska- Blað sem gefið er út ; Bandaríkjunum, og
heitir “Mállausu dýrin okkar, ” segir frá sannri
sögu eftir ritstjóra blaðs í Alabama. Sagan er
svona: “Nágranni minn er lyíjasali, liann á hund
sem er hér um bil tveggja ára gamalk Ilann á líka
skemtilegan dreng þriggja ára. Litli drengurinn
og hundurinn eru dæmalaust góðir vinir. Ilvar
sem annar er þar er liinn lílta.' Fyrir nokkrum
tíma fór litli drengurinn ofan í lyfjabúð að finna
pabba sinn. Margar járnbrautarlestir fara hér
fram hjá síðari hluta dagsins og bað drengurinn
pabba sinn að lofa sér að fara út og horfa á þær
þegar þær fóru fram hjá. Pahbi hans lét það eftir
honum og hann fór út og horfði á lestirnar stund-
arkorn; hann stóð rétt hjá stéttinni og hundurinn
hafði nákvæmar gætur á honurn og var alveg fast
við hliðina á honum. Alt í einu fór ákaflega hrað-
shreið fólksflutningalest fram hjá; lest sem ekki
stóð neitt við en brunaði áfram fjörutíu mílur á
klukkutímanum. Eins og annar óvit.i fór litli dreng-
.urinn lengra út frá stéttinni og ætlaði nær járn-
brautinni. pegar liann hafði gengið fáein fet.
áfram tók liundurinn í handlegginn á Jionum með
tönnunum og liélt svo fast að hann lcomst ekki einu