Væringinn - 07.03.1938, Page 3

Væringinn - 07.03.1938, Page 3
VÆ RINGINN Mánudaginn 7. marz 1938. Viðtalo (Einn af blaðamönnum þessa blaðs fór á fund prófessors Hugsan, hins inikla fræði- manns, til þess að bafa tal af lionum, og fer hér á eftir frásögn iians). Vér hringjum lieim til prófessorsins með það fyrir augum, að fá viðtalstima bjá honum. Þjónustustúlka, — þvi prófessorinn er ókvænt- ur, — kemur í simann. „Er prófessorinn beima?“ spyrjum vér. „Augnablik, ég skal gá.“ Litlu seinna kemur karlmaður i símann. Röddin er mjúk og viðfeldin, en nokkuð ó- styrk og ber það með sér, að hlutaðeigandi er annars bugar, — utan við sig. „Halló, er það prófessorinn?“ spyrjum vér, þó vér séum nokkuð vissir um að svo sé. „Prófessor, — nei, hér er enginn prófessor.“ Það er undrunarhreimur í röddinni. Vér verðum meira en lítið bissa, en segjum þó i afsökunarrómi: „Á? — fyrirgefið þér, — en á ekki prófessor Hugsan lieima þarna?“ „Ha, — hver, — æ-jú. Það er lika alveg satt; ég var nú rétt búinn að gleyma því!“ „Já, þelta er blaðið „Væringinn“. Haldið þér, að þér vilduð leyfa oss að tala við prófess- orinn?“ ,Jú, gjörið þér svo vel, þetta er hann.“ Oss rekur aftur i rogastanz, en látum þó á engu bera. „Komið þér sælir, j)rófessor. Vér ætluðum að spyrja, livort þér gætuð ekki veitt oss viðtal, sem fyrst?“ — — Ekkert svar. — „Halló, prófessor!!“ „Ha, — já, viðtalstíma, jú, ætli það ekki. Gætuð þér ekki komið klukkan 4 í gær, þá hafði ég ekkert að gera. — Já, — nei, — það er lika satt — i gær var í gær —, fyrirgefið þér. Getið þér þá komið í kvöld klukkan 0. Ég get því miður ekki veitt vður langan tíma, — ckki nema svo sem 5 daga, því að ég er að vinna að ritgerð, sem á að vera búin eft- ir 5 mínútur,-------en þá skuluð þér bara koma,“ segir prófessorinn og er liinn alúð- legasti. „Þakka yður fyrir, prófessor, og verið þér nú sælir “ „Sjálfsagt, góði minn, ég skal hafa yður í hyggju.“ Vér leggjum heyrnartólið á og hugsum með oss: „Prófessorinn virðist vera dálítið utan við sig.“ (Vér höfðum sem sé ekki liaft tal af prófessornum áður, svo að vér urðum hissa á hinum og þessum tilsvörum lians). Kl. 6 á slaginu hringjum vér dyrabjöllunni bjá prófessor Hugsan. Þjónustustúlka lýkur upp og vísar oss inn í lestrarstofu prófessors- ins. Þar situr maður önnum kafinn við skrift- ir, og verður vor ekki var. Vér ræskjum oss — ofurkurteislega — og maðurinn lítur upp. Hann er frekar grannur og óásjálegur, grá- hærður og skegglaus, með gullspangargler- augu, sem sitja fremst á nefinu. „Prófessor Hugsan?“ segjum vér spyrjandi og hneigjum oss. — „Já, einmitt! — Gleður mig mikið. Gjörið þér svo vel, að fá yður sæti, prófessor. Hvað get ég gert fyrir yður?“ Prófessorinn er hinn alúðlegasti, en Iiefir auðsjáanlega misskilið orð vor, svo vér lend- um í verstu klípu, en stömum þó hikandi: „Vér áttum við, hvort þér væruð ekki pró- fessor Hugsan.“ „IJa! — jú, — hvernig læt ég, — auðvitað! Fyrirgefið þér; ég misskildi yður víst.“ Vér brosum góðlátlega og segjum: „Þér lofuðuð blaðinu „Væringinn“ viðtali nú kl. 6.“ „Jú, — jú, — alveg rélt, — gjörið svo vel að visa því inn.“ Vér höfum vist orðið dálítið sauðarlegir á svip, því að prófessorinn segir liikandi: „Sögð-

x

Væringinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Væringinn
https://timarit.is/publication/540

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.