Þjóðmál - 14.11.1973, Qupperneq 7

Þjóðmál - 14.11.1973, Qupperneq 7
ÞJÓÐMÁL 7 4) A3 vera forystuafl fyrir stjórn- málahreyfingu félagshyggjufólksins í landinu. Reynslan hefur sýnt, að íslenzkt þjóðfélag hefur tekið mestum stakka- skiptum, þegar jafnaðar- og samvinnu- menn hafa tekið höndum saman. Að koma á varanlegum tengslum milli allra þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnað- ar, samvinnu og lýðræðis er eitt helsta stjórnmálaverkefni samtímans. Sam- tenging þeirra, sem aðhyllast sömu grundvallarhugsjónir er forsenda varan- legrar umsköpunár þjóðfélagsins. 5) Að standa vörð um sjálfstæði ís- lenzku þjóðarinnar. Andstaða við her- veldi og samstaða með smáþjóðum og friðaröflum eru þau markmið, sem ís- lendingum sæma best i samfélagi þjóð- anna. Jöfnuður, friður, réttlæti og lýð- ræði með þjóðum heims eru raunhæf- asta tryggingin fyrir sjálfstæði Islend- inga. III. Þótt Framsóknarflokkurinn hafi um skeið veitt forystu vinstri stjórn, hefur fráhvarf frá kjarna stenfunnar haldið áfram. Á undanförnum árum hefur jafnt og þétt eflst að völdum 1 flokknum fá- mennur hópur manna, sem skeytir lítt um grundvallarstefnu og sýnist í verki vera sumum þáttum hennar beinlínis andstæður. Þessir nýju hersar eru i dag hin raunverulega forysta flokksins. Þeir eiga lykilmenn í æðstu stöðum og þeir ráða málgagni flokksins, húseignUm hans og skrifstofuliði i Reykjavík ásamt ýmiss konar aðstöðu, sem reynist áhrifa- mikil við stjórnarstörf. Þessi hópur telur sig í reynd lítt bundinn af kjarna- þáttum í stefnu flokksins. Hann telur einkarekstur æðri samvinnustarfi. Hann lítur á byggðastefnu fyrst og fremst sem lofotðaglámur, en ekki róttækt þjóð- félagslegt verkefni. Hann hlúir að vafa- samri gróðamyndun og fjármálaspekúla- sjónum á fjölmörgum sviðum. Hann skoðar Framsóknarflokkinn ekki sem félagshyggjuflokk, jafnaðar- og sam- vinnumanna heldur sem miðflokk, sem velur sér samstarfsaðila í samræmi við TÍMANS Samtök, sem kalla sig „Möðruvalla- hreyfinguna“, hafa að undanförnu dreift bréfi í þúsundum eintaka um alit Iand. Kjarni þess er soralegur rógur um for- ystumenn Framsóknarflokksins og framkvæmd þeirra á stefnu flokksins. Þar segir m.a: „Þótt Framsóknarfiokkurinn hafi um skcið veitt forystu vinstri stjórn, hefur fráhvarf frá kjarna stefnunnar haldið áfram. Á undanförnum árum hefur jafnt og þétt eflzt að völdum í fiokknum fá- mennur hópur manna, sem skeytir lítt um grundvallarstcfnu og sýnist í verki vera sumum þáttum hcnnar bcinlínis andstæður. Þessir nýju herrar eru i dag hin raunverulega forysta fiokksins. Þeir eiga lykilmcnn í æðstu stöðum og þeir ráða málgagni fiokksins, húseign- um hans og skrifstofuliði í Reykjavík ásamt ýmiss konar aðstöðu, sem reyn- ist áhrifamikil við stjórnarstörf. Þessi hópur telur sig í reynd lítt bundinn af kjarnaþáttum í stcfnu flokksins. Hann telur einkarekstur æðri samvinnustarfi. Ilann lítur á byggðastefnu fyrst og fremst sem loforðaglamur, en ekki rót- valdahagsmuni á hverjum tíma. Hann vill sem lengst tengja Island við erlent herveldi enda margvíslega aðstöðu að hafa upp úr slíkum tengslum. Að hópur af þessu tagi skuli jafnt og þétt ná sterkari ítökum á sama tíma og Fram- sóknarflokkurinn veitir vinstri stjórn formlega forystu er meðal sérkennilegri þverstæðna í íslenzkri stjórnmálasögu. IV. Til að sporna gegn þesari óheilla- þróun og standa vörð um kjarnann í stefnu flokksins, hafa liðsmenn úr öll- um landshlutum, yngri sem eldri, tekið höndum saman og myndað hreyfingu fé- lagshyggjufólks innan Framsóknar- flokksins. Markmið hreyfingarinnar, sem nefnd hefur verið Möðruvallahreyfingin, er að halda á lofti innan flokksins þeim hugsjónum, sem eru grundvöllur tilveru hans, og efla tengslin við þau stjórn- málaöfl önnur, sem eiga mesta samleið með slfkri hugsjónabaráttu. Möðruvalla- hreyfingin mun starfa í anda þeirra kjarnaþátta í stefnu flokksins, sem að framan voru greindir að veita hugsjón- um jafnaðar og samvinnu brautargengi, að efla í reynd róttæka byggðstefnu, að útrýma margvíslegri fjármálaspillingu, að skapa varanleg tengsl milli stjórn- málaflokka félagshyggjufólksins, að standa vörð um sjálfstæði þjöðarinnar og efla samstöðu með smáþjóðum og friðaröflum. I samræmi við þessi grundvalarstefnu mið mun Möðruvallahreyfingin fyrst um sinn helga sig eftirfarandi einstökum baráttumálum. Sýnishorn einstakra sfefnumála 1. Byggöamál a) Að tekin verði ákvörðun á Alþingi um útvegun þess fjármagns, sem raun- hæfar úrlausnir í byggðamálunum krefj- ast. Sá vandi, sem landsbyggðin á nú við að glíma, er f reynd margfaldir þeir erfiðleikar, sem urðu vegna náttúru- hamfaranna í Vestmannaeyjum. Þar eð tækt þjóðfélagslegt verkefni. Hann hlú- ir að vafasamri gróðamyndun og fjár- málaspekúlasjónum á fjölmörgum svið- um. Hann skoðar Framsóknarflokkinn ekki sem félagshyggjuflokk, jafnaðar- og samvinnumanna, lieldur sem miðflokk, sem vclur sér samstarfsaðila í samræmi við valdaliagsmuni á hverjum tíma. Hann vil sem lengst tengja fsland við erlent herveldi, enda margvíslega aðstöðu að hafa upp úr slíkum tengslum. Að hópur af þessu tagi skuli jafnt og þétt ná sterkari ftökum á sama tíma og Fram- sóknarflokkurinn veitir vinstri stjórn formlega forystu er meðal sérkennilegra þvcrstæðna f íslenzkri stjórnmálasögu“. Með þcssum orðum er formaður flokksins og aörir f æðstu stjórn hans og trúnaöarstööum, framkvæmdastjórn. þingflokkur og ráölierrar, svo og rit- stjórar Tímans svívirtir í einni kippu. Framsóknarflokkurinn hefur oft orðið að sæta slíkum og þvílíkum árásum frá andstæðingum sinum. Nú ber liins vegar svo við, að Iíkur benda til, að liöfunda dreifingaaðila rógsins sé aö finna inn- an félagsbanda Framsóknarflokksins. Að vandamál landsbyggðarinnar eru dreifð um fjölmörg héruð, sveitir og kauptún, hvetja þau ekki á líkan hátt til aðgerða og erfiðleikar eins bæjarfélags, sem náttúruhamfarir leika grátt. Það fjár- magn, sem á næstu árum þarf sérstak- lega til að rétta hlut landsbyggðarinnar er margfalt framlag ríkisins vegna jarð- eldanna. Þess vegna er nauðsynlegt, að á næstu tíu árum verði lagt árlega sem nemur 3% af þjóðartekjum f byggða- sjóð. Þetta fjármagn komi til viðbótar öðrum aðgerðum f byggðamálum. Til að skapa hinum einstöku landshlutum auk- inn íhlutnarrétt um ráðstöfun fjár- magns úr byggðasjóði verði sjóðnum skipt í deildir eftir landshlutum. Sveit- arfélög hvers landshluta kjósi stjórn sinnar deildar. Stjórnir landshlutadeild- anna ráðstafi því fjármagni, sem kemur í þeirra hlut, en heildarstjórn byggða- sjóðs hafi einungis það verkefni að skipta fjármagni sjóðsins í þá hluta. sem deildirnar fá til ráðstöfunar. Utanríkismál a) Ríkisstjórnin framkvæmi loforð sitt um brottför hersins á kjörtímabilinu. Vara ber við nýjum varnarsamningi, sem einungis fæli í sér nafnbreytingu á herstöðinni og nýja borgaralega bún- inga fyrir hina hernaðarlega menntuðu starfskrafta. b) Aðild Islands að Atlantshafsbanda laginu verði tekin til endurskoðunar. Atburðir siðustu missera hafa varpað nýju ljósi á samskipti Islands við banda- lagið og einstök aðildarríki þess. Þjóð- in verður að draga lærdóma af þessari reynslu. c) Þróun landhelgismálsins hefur sýnt íslendingum, að fyrstu og bestu banda- menn okkar er að finna meðal smá- þjóða, ríkja þriðja heimsins og ýmissa óháðra friöarafla. íslendingar eiga í framtíðinni að taka á alþjóðavettvangi skýra afstöðu með þessum aöilum og vinna með þeim að útrýmingu arðráns, hungurs og fátæktar, auknu réttlæti og traustari friði í heiminum. Framh. á bls. 8 vísu er ávarp „Framkvæmdanefndar Möðruvallahreyfingarinnar“ ekki undir- ritað ncinu nafni. Af skiljanlegum ástæðum hefur Þjóð- viljinn haft mikinn áhuga á vexti og viðgangi „MööruvaIIalireyfingar“ og hinn 17. október s.I. skýrir liann frá því í forsíðufrétt, að hreyfingin hafi komið saman og samþykkt stefnuskrá. Hann skýrir þar frá, að eftirtaldir menn skipi framkvæmdanefnd „Möðruvalla- hreyfingar,“ og skv. lieimild Þjóðviljans eru það þessir menn: Arnþór Karls- son, Elías Snæland Jónsson, Friðgeir Björnsson, Hákon Hákonarson, Kristján Ingólfsson, Magnús Gíslason og Ólafur Ragnar Grímsson. Allir þessir menn, sem fylgjast vel með blaðaskrifum, hafa látiö þvi ómótmælt, að þeir skipi fram- kvæmdanefnd, „MöðruvaIIalireyfingar“ og beri þar með ábyrgð á þeim rógi um Framsóknarflokkinn og forystumenn hans, sem nú er dreift um landið. Hollir flokksmenn þurfa að svara svona vinnu- brögðum með viðeigandi hætti. —TK“ Hákon Hákonarson Kristján Ingólfsson Magnús Gíslasoa Ólafur Ragnar Grímsson Leiðari í Tímanum 31. okt.: Rógsbréf á ferli eftir Tómas Karlsson. Framhald: Hannes Jónsson, blaöafulltrúi, gerist hugmyndafræðingur Framsóknarfl. eftir 20 ára „útlegð“.

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.