Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.01.1935, Blaðsíða 7

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.01.1935, Blaðsíða 7
LJÓS OG SANNLEIKUR 7 Á sannleiksgildi Nýja-Testamentisins tekur Jesú ábyrð með fyrirheitinu um Heilagan Anda, er skyldi „leiða pá í allan sannleikann". Jóh. 14, 26; 16, 12. 13. Pess vegna getum vér heldur ekki meðtekið Jesúm án pess að taka alla Bibliuna gilda. Matt. 24, 35. Henry van Dyke skrifar pannig um Biblíuna: „Dótt Biblían sé til orðin í Austurlöndum og íklædd austrænu skrúði og líkingamáli hefur hún samt lagt leið sína um alla jörðina. Hún nemur hvert landið á fætur öðru og heldur innreið sina til allra pjóðflokka heimsins. Hún hefur lært að tala tungum svo hundruðum skiftir. Hún ratar inn í konungshöllina og segir einvalds drotnaranum að hann sé pjónn hins Hæsta, og hún sneiðir ekki hjá fátæklingnum, heldur fullvissar beiningamanninn um, að hann eigi Quð himinsins að föður. Barnið hlýðir á hinar furðulegu sagnir hennar með undrun og gleði, og hinn lærði rannsakar hana sem likingar og leyndardóma lífsins. Hún talar friðar orð á skelfinga-tímum, og flytur hugg- unarboðskap á degi neyðarinnar og lif og ljós á dimmu dögunum. Boðskapur hennar er endurtekinn á samkomum fólksins; hinn drambsami vitringur nötrar er hann heyrir aðvörunar-raust hennar, en hinni særðu og sundurkrömdu sál er hún sem huggandi móðurrödd. Sá sem á pennan dýrgrip, er ekki fátækur né einmana. Degar útlitið er ískyggilegt, og hinn pjakaði vegfarandi kemur að „skugga- dalnum“ er hann óhræddur að fara par um. Hann tekur „staf“ Ritningarinnar, og með hann í hendi sér leggur hann öruggur af stað, er hann hefur kvatt ættingja og vini, og með pað i huga, að fá að sjá pá aftur, sem eftir verða, heldur hann ferð sinni áfram og sækir fram gegnum myrkrið til ljóssins", — „The Century Magazine". ÞAÐ SEM BIBLÍAN SEQIR UM SJÁLFA SIG 1. Hvað er sagt um innblástur Heilagrar Ritningar? 2. Tím. 3, 15 — 17; 2. Pét. 1, 21.

x

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók
https://timarit.is/publication/555

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.