Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.05.1935, Qupperneq 6
38
Ljós og Sannleikur
seigasti byg'gingameistari, sem mannkynssag-
an getur um“. Höfuðstaður hans, Babýlon, var
helmingi stærri en hin risavaxna Lundúna-
borg, og telst, með hinum skrautlegu og há-
reistu höllum sínum, musterum, hengigörðum
o. s. frv., með undraverkum fornaldarinnar.
Öll þessi dýrð skyldi þó líða undir lok. Risa-
borg fornaldarinnar slcyldi verða að „grjót-
hrúgu, að sjakalabæli, að skelfing og háði, og
enginn búa þar“. Jer. 51, 37. Les viðkomandi
þessu ríki og örlögum þess eftirfarandi: Jes.
13, 17 -22: 47, 5; Jer. 51, 13. 41. 37. 11.
MEDÍA-PERSÍA
Ríkið sem kemur á eftir Babýlon og koll-
varpar henni, er tnedeo-persneska ríkið, sem
og ofan-tilfærðar tilvitnanir og mannkynssagan
yfirleitt sanna. Arið 538 vann Kýrus Persa-
konungur Babýlon, (Jes. 45, 1. 2.), og þessi
sami duglegi herforingi gerði þetta ríki, sem
Medar og Persar höfðu sameinað, að voldugu
heimsríki, „silfurbrjóstinu“, sem stóð þangað
til orð Daníels rættust.
GRIKKLAND
„Og því næst hið þriðja ríki af eiri, sem
drotna mun yfir allri veröldu“. Það var Alex-
ander, sem reisti heitnsríki Hellena á rústum
hinna áður nefndu ríkja í Asíu.