Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.05.1935, Blaðsíða 7
Ljós og Sannleikur
39
RÓMAVELDIÐ
Eí’tir gríska ríkið kemur Rómaveldið, sterkt
„sem járn og þess meg'nugt, eins og járnið er
sundurbrýtur alt, að mola og brjóta öll hin
ríkin“. Skipting Rómaríkisins í marga parta
en af þeim er nokkur hlutinn við líði enn
þann dag í dag, og þekkist undir nöfnum eins
og t. d. England, Þýzkaland, Frakkland, Spánn,
Italía o. s. frv. er táknuð með fótunum,
er sumpart voru af járni og sumpart af leiri,
og merkir, að hörku járnsins jafnt sem veik-
leika leirsins skyldi verða vart hjá þeim ríkj-
um er risu upp af Rómaríkinu. Samblöndun
járnsins og leirsins skyldi ennfremur tákna,
að ríkin myndu „blandast saman með kvon-
föngum, og' þó ekki samþýðast“ hvort öðru.
Að þetta kemur heim að því er snertir Norð-
urálfu-ríkin, á það þarf ekki einu sinni að
minnast; það eru alþekt sannindi.
STEINNINN
Hið alvarlegasta við sýnina er lýsingin á
eyðileggingu allrar líkneslcjunnar. Þessi lýsing
er jal’n greinileg og hún er alvarleg: „En á
á dögum þessara konunga mun Guð himn-
anna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga,
og það ríki skal engri annari þjóð í hendur
fengið verða. Það mun knosa og að engu