Íslenzkt verzlunarblað - 15.08.1913, Síða 2
2
ÍSLENZKT VERZLUNARBLAÐ
Nr. 1
Taktu eftir öllu. Pú skalt
iafnvel veita eftirtekt því smá-
vægilegasta imjanbúðar.
Ver því ávalt athugull, svo
að þú veitir öllu eftirtelct og
munir alt.
Hvernig þú átt að nema! Náms-
tíminn er sá tími, þá er menn
eiga að nema. En ekki er alt
undir því komið, hvar menn læra
og hvað menn læra, heldur er
eins mikið um vert, hvernig menn
læra. Kaupmaðurinn hefir nú á
tímum ekki tíma til þess 'að vera
skólakennari. Láttu þér því ei
koma til hugar, að þú fáir verzl-'
unarþekking þína í skömtum frá
húsbónda þínum og yfirmönnum,
en gjör þér far um að nema af
sjálfs dáðum án kenslu. Menn
segja við skólanemann, að hann
eigi ekki að nema skólans vegna,
heldur til þess að búa sig undir
lífið. Eins skalt þú segja við
sjálfan þig, sem sé, að þú viljir
nema, ekki vegna yfirmanns þíns,
heldur til þess að þú skulir verða
dugandi og öðlast reynslu. Pér
gefst betra færi á að hljóta sér-
þekking á meðan þú ert verzl-
unarnemi en þegar þú hefir lokið
námi, því að þá átt þú að kunna
að nota þekkingu þína og eigi
þurfa að útvega þér hana.
Vinn með gaumgæfni.
Leys af hendi verk það, sem þér
vinna ber, fljótt og vandlega. Ekk-
ert er ógeðfeldara, en að menn þurfi
að ávíta þig fyrir skort á kost-
gæfni og gaumgæfni. Umönn-
unarskortur er stundum verri en
þekkingarskortur. Lát þér ei
líka miður, þó að þú sért ávít-
aður, því að í níu skifti af tíu
eru ávíturnar réttmæter. Ef
þér er hælt, þá lát þáð hvetja
þig til þess að leysa verk þitt
vel af hendi framvegis.
Aflaðu þér frekari mentunar.
Nota hverja tómstund til þess
að efla mentun þina með því að
lesa góðar bækur og læra útlend
tungumál, o. s. frv. Pú hefir
meira gagn af því en af skemt-
unum. Gættu þess, að alt sem
þú nemur, getur seinna komið
þér að góðu haldi og að þá
þekking, ■ sem þú hefir nú, þartt
þú ekki að fá seinna.
Afgreiðslumaðurinn. Áhugi á
verzlunarstörfunum.
Þér á að vera eins ant um
vöxt og viðgang verzlunarinnar
eins og þinn eiginn, því að að eins
þá hlýtur þú hærri stöðu og
meiri laun hjá yfirmanni þínum, er
hann sér, að þú ert skyldurækinn
og hefir áhuga á vinnu þinni. Met
því jafnmikils hagsmuni þína og
hagsmuni yfirmanns þíns. Hafir
þú unnið við verzlun yfirmanns
þíns eins og þú ættir hana sjálf-
ur, þá veizt þú, hvað þú getur og
getur treyst dugnaði þítium. En
hugsir þú þér aftur á móti, að
talca upp nýtt lag, þegar þú
sjálfur byrjar að verzla, þá verð-
ur þú vanalega fyrir vonbrigðum.
Vertu jafnskyldurækinn, hvort
yfirmaður þinn er viðstaddur
eða ei.
Afgreiðslumenn sín á millum.
Gér þú þér far um, að leysa
verk það, sem þér er á hendur
falið, betur af hendi en aðrir. Pví
að að eins með því móti getur
þú komist lengra. Lát þér vera
minnisstætt, að kostgæfni þín er
yfirmanni þínum jafnverðmæt og
fé, eyð því ekki tímanum til
einkis.
Grunir þú nokkurn um óráð-
vendni, þá seg yfirmanni þínum
{)að, til þess að hann geti sjálfur
grenslast fyrir um það. Ef þú
gjörir það ekki, þá getur þú átt
það á hættu, að verða sjálfur
grunaðar um óráðvendni. Vertu
kurteis og alúðlegur gagnvart
starfsbræðrum þínum, gjör eng-
um greiða á þann hátt, að þú
gjörir jafnframt ráð fyrir því, að
sá, sem í hlut á, gjöri þér annan
greiða í staðinn.
Gorta aldrei af því, að þú
hafir meiri þekking, hærra kaup
eða af því, að þú hafir fengið
betra uppeldi; þess er ekki þörf.
Tala heldur ekki illa um starfs-
bræður þína. Afla þér sífelt
þekkingar á þínu sérsviði og við-
víkjandi starfi þínu í heild sinni,
svo aö þér séu kunnir jafnvel
rj ^1 n«* I^L*
I BUCKA & NISSEN jf
K0BENHAVN
i
____________
Sýnishorn og tiTboð eru send ef krafist er. Serstök postilínsmálun. fö
93
93 VESTERGAGE 26 Mesta útflutningsverzlun á NorðurlÖndum.
93
93 Leirvörur, postulín, glervörur, majolika, terrakotta, járnvörur etc.
53 Með lægsta verði.
93
36