Tíminn - 10.12.1991, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 10. desember 1991
Jólahandbókin 19
NÝ SKÁLDSAGA ÓLAFS
JÓHANNS
Samningar um útgáfu á bókinni í
Bandarikjunum og á Noröurlöndum
á lokastigi
Fyrirgefning synd-
anna
heitir ný skáldsaga eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson sem Vaka Helgafell gefur
út. Petta er þriðja bók Ólafs Jóhanns,
en báðar fyrri bækur hans, smá-
sagnasafnið Níu lyklar (1986) og . .
skáldsagan Markaðstorg guðanna
(1988) urðu metsölubækur og voru
margprentaðar.
Nýja skáldsagan mun ekki einungis
koma út hér á landi því að fjögur stór
bandarísk bókaforlög hafa óskað eftir
henni til útgáfu vestra. Samningar
eru nú á lokástigi og er áætlað að frá
þeim verði gengið á næstu vikum. Þá
hafa allmörg bókaforlög á Norður-
löndum falást eftir skáldsögunni til
útgáfu eftir að.þau fengu þýddan
efnisútdrátt bókarinnar og nokkra
kafla til lesturs. Má búast við að end-
anlegir útgefendur verði valdir fyrir
jól og erlendar útgáfur bókarinnar
komi á markað á næsta ári.
Bók Ólafs Jóhanns, Fyrirgefning
syndanna, er umfangsmildð epískt
skáldverk, nær 300 síður að stærð, og
sögusviðið vítt. Sagah berst frá ís-
landi á árunum milli stríða til Dan-
merkur í heimsstyrjöldinhi síðari
meðan landið er hersetið af þýskum
nasistum o'g síðan aftur til íslands í
lok stríðsins og til Bandaríkjanna. Át-
burðir sögunnar tengjast eirini aðal-
persónu, Pétri Péturssyni. Lífsferill
hans birtist lesandanum í minninga- .
leiftrum frá liðinni tíð sem mynda
loks eina heild, - sögu af marlnlegri
reynslu og átökum. Á bókarkápu er
spurt: Hverjar eru syndir Péturs?
Hvað er það sem liggúr honum svo
þungt á hjarta?
í kynningu á.Fyrirgefningu synd-
anna segir enn fremur: Á síðum bók-
arinnar birtast miklar andstæður: Ást
og hatiu, glæpur og refsing, líf og
dauði. Einstæðir hæfileikar Óíafs J6-
hanns njóta sín til hins ýtrasta. Hver
setning er meitluð af kunnáttu og
mannþekkingu. Stlllinn er látlaus við
fyrstu sýn en fyrr en varir verður les-
andirrn gagntékinn af galdri textans.
Fyrirgefning syndanna er tímamóta-
verk.
Bókin er prentuð og bundin hjá
Prentsmiðjunni Odda hf.
Raggi í sveit
IÐUNN hefur gefið út bókina
„Raggi Iitli í sveitinni" eftir Harald S.
Magnússon með skemmtilegum
myndskreytingum eftir Brian Pilk-
ington.
í kynningu útgefanda segir: Raggi
litli í sveitinni er fjörug og skemmti-
leg saga sem allir kraldcar hafa gam-
an að. Raggi litli hlakkaði mikið til að
fara í sveitina aftur og hitta vini sína
þar, Bjössa og öll dýrin. Þegar hann
kom þangað brá honum þó í brún,
því að það voru svo mikil læti í kún-
um þegar þeim var hleypt út... Raggi
og Bjösi eru hressir strákar og þeir
lentu í ýmsum ævintýrum í sveitinni
um sumarið. Þeir fóru í reiðtúra,
hjálpuðu til við heyskapinn, léku sér
við dýrin - ogeinú sinni týndust þeir
meira að segja!
Óðfluga
Ljóðabók handa bömum eftir Þórar-
in Eldjám
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur gef-
ið út bókina „Óðfluga", ljóðabók fyrir
böm eftir Þórarinn Eldjám. Systir
hans Sigrún Eldjám myndskreytti
bókina sem er litprentuð.
í kynningu FORLAGSINS segir:
„Hér vinná tvö fjölhæf systkini að
gerð óvenjulegrar ljóðabókar sem
leiftrar af fjöri og hugmyndaflugi í
leik sínum að tungumálinu. í þessari
bók verða bílamir sófasett á hjólum,
tjáið rennur í tundrið og hvippurinn
er út um hvappinn. Kýrin skýra
Klara klórar sér um hupp, og óð fuga
nálgast óðfluga.
Sigrún og Þórarin Eldjám hafa áður
unnið saman að bókum fýrir böm.
Hér hafa skáldið og myndlistarmað-
urinn endaskipti á veröldinni og
sýna bömunum óvæntar hliðar á
hversdagslegiun hlutum."
Óðfluga er 32 bls. Prentstofa G. Ben.
prentaði.
Línur þrjár ogDepill
Komin er út hjá Máli og menningu
myndabókin „Grænalín, Brúnalín og
Bláalín" sem er ein af sígildum sög-
um Elsu Beskow.
Elsa Beskow var sænsk og einn af
brautryðjendum í gerð myndabóka
fyrir böm. Þær innihéldu bæði vísur
og ævintýri og einkenndust af gam-
ansömum texta og skrautlegum og
lifandi myndum. Bækumar njóta vin-
sælda víða um heim enn í dag.
„Grænalín, Brúnalín og Bláaíin"
segir frá þremur systrum sem búa í
litlu húsi þar sem þær hafa hvert sitt
hlutverk. Einn sunnudaginn lenda
þær í óvæntu ævintýri ásamt litla
hundinum, Depli. Þá er gott að eiga
að vinum tvö böm sem koma til að-
stoðar svo allt fer vel að lokum.
Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi þessa
fyrstu bók Elsu Beskow sem kemur
út á íslensku.
Enn eykst úrval íslandsbóka
frá Iceland Review
„Iceland,- Life and Nature on a North Atlantic Island" heitir ný bók sem Ice-
land Review sendir frá sér um þessar mundir.
Bókin; sem er á enskú, er prýdd fjölda litmynda, sem ásamt léttum og lifandi
texta gera náttúru landsins og þjóðlífi hin bestu skil. Hún skiptist í nokkra að-
alkafla, og er fjallað í máli og myndum um legu landsins og strandlengjuna,
andstæður í náttúmnni og þá ofurkrafta sem hafa mótað landið og em enn að
verki. Þá er sagtfrá villtum dýmm og fuglum og fjallað er um mannlíf og
menningú, atvinnulíf til sjávar og sveita og lokakaflinn er um byggðir landsins.
Flestar myndimar í bókinni em eftir Pál Stefánsson, en einnig hafa nokkrir
aðrir ljósmyndarar lagt hönd á plóginn. Textann skrifaði Bemard Scudder.
Bókin er 96 blaðsíður í all stóm broti og kostar 2.990,- krónur með virðisauka-
skatti.
Fuglar handa bömum
Mál og menning sendi nýlega frá sér tvær bamabækur eftir Guðmund P. Ól-
afsson, höfund bókanna Fuglar og Perlur í náttúm íslands.
Bækumar em „Sjófuglar" og „Land- og vatnafuglar" sem kynna íslenska
fugla og umhverfi þeirra fyrir bömum. Litljósmjmdir á hverri síðu sýna fugl-
ana í varpbúningum sínum og texti gefur upplýsingar um nöfn og heimkynni,
Bækumar em sterkar og handhægar til að grípa til heima, í skóla eða á ferða-
lögum og þær em fljótar að svara spumingunni: Hvaða fugl er þetta? Prent-
smiðjan Oddi hf. sá um vinnslu bókanna.
Skuggaleg
myrkraverk
Þriðja bókin f bókaflokknum
GALDRAMEISTARINN eftir Margit
Sandemo er komin út. Hún nefnist
SKUGGAR. Eins og fyrri bækumar
tvær fjallar bókin um norsku stúlk-
una Tiril og leitina að því sem í fortíð
hennar býr. Sagan tengist íslandi þvl
að þaðan er ættuð ein af höfuðper-
sónunum, Móri, sonarsonur galdra-
mannsins Jóns Jónssonar frá Kirkju-
bóli.
Upphaf þeirra atburða sem þessi
unga stúlka mátti þola er að finna í
þremur galdrabókum frá íslandi, frá
þeim tíma er Gottskálk biskup hinn
grimmi réði lögum og lofum við Lat-
ínuskólann á Hólum. Hann kunni
talsvert fyrir sér í göldmm, enda
menntaður úr Svartaskóla við Sor-
bonne.
Móri stefnir að því að verða fremst-
ur allra galdrameistara. Hann fer til
Noregs þar sem hann hittir Tiril. Og
nú hefst mikil saga, sem ekki sér fyrir
endann á.
í þessari bók halda þau Tiril og Móri
ásamt vinum sínum frá Kristjaníu
um álagaskóginn Tiveden, en þar
stendur dularfull höll, hulin sjónum
alls dauðlegs fólks. í höllinni er fal-
inn fjársjóður sem tengist fjölskyldu
Tirilar á Ieyndardómsfullan hátt.
Leiðin er illfær og þau lenda í hinum
verstu ógöngum. Móri beitir yfimátt-
úmlegum kröftum sínum til að eyða
höllinni og leysa skóginn úr álögum.
Vinimir snúa aftur til Kristjaníu. Þar
frétta þau að illmennin séu enn að
leita Tlrilar...
Undir stjömum
Út er komin Ijóðabókin „Undir
stjömum og sól" eftir Einar Svans-
son. Þetta er fyrsta bók höfundar og
hefur að geyma 49 Ijóð. Nokkur Ijóð-
anna birtust á sínum tíma í tímaritinu
Lystræningjanum.
Kápumyndina gerði Svanur Jóhann-
esson faðir höfundar og félagi i JAM-
klúbbnum. Bókin er 96 bls., prentuð
hjá Félagsprentsmiðjunni, bundin hjá
Félagsbókbandinu Bókfell en dreif-
ingu annast fslensk bókadreifing.
Höfundur er útgefandi bókarinnar.
Bragi Ólafsson
Ansjósur
Ný bók eftir Braga Ólafsson
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent
frá sér Ijóðabókina „Ansjósur" eftir
Braga Olafsson. Þetta er önnur ljóða-
bók Braga sem sendi frá sér bókina
„Dragsúgvu" 1986. Hann hefur feng-
ist við Ijóðagerð um árabil og birt ljóð
í tímaritum og Ijóðasöfnum auk þess
að starfa að útgáfu á vegum Smekk-
leysu sm. hf.
I kjmningu FORLAGSINS segir: „í
ljóðum Braga er bmgðið upp mynd-
um á barmi fáránleikans. Borgir,
menn og hugtök opinbera skáldinu
innri togstreitu sína og það festir
hana í varfærin og hógvær Ijóð sem
hvísla nánast boðskap sínum að les-
ómdanum. Yrkisefnin eru oft á tíðum
þættir úr Iífi mannsins sem eru svo
fínlegir að þeir verða vart greindir,
sýnir sem hverfa ef þær eru skoðaðar
of grannt, orð sem missa marks ef
þau eru lesin of hátt."
Ansjósur er 64 bls. Einar Öm Bene-
diktsson gerði mynd á kápu. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
• iáíí'V'
Svefnpokar
* ■ ajungilak.
Skátabúðin selur hina heimsþekktu
Ajungilak svefnpoka, en Ajungilak er einn
stærsti svefnpokaframleiðandi í heimi. Við
hjá Skátabúðinni aðstoðum við val á þeim
poka er hentar þínum þörfum. Okkar ráð-
leggingar eru byggðar á áratuga reynslu.
-SMWK FRAMÚK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045