Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 147
1800.
VEKZLAN Á ÍSLANDÍ.
135
nefnilega 236,668 pnnd af 353,580 pundum til alls landsins (árið
1868 voru það ekki neina 215,423 pund).
Af brauði (hveitibrauð allskonar og svartabrauð) flnltust á
þessu ári til alls landsins samtals 197,085 pund (og er það nokkuð
minna en næst undanfarið ár, smbr. IV'., bls. 860), nefnilega til
Suður-umdærnisins 86,279 pund, til Vestur-umdæmisins 71-435
Pund, en til INorður- og Austnr-uindæmisins einúngis 39,371 pund.
Eptir þessu lietir þá á þessu ári aðflutníngurinn á brauði verið
mestur til Suður-umdæmisins (eins og árið næst á undan), en
lángminnst til Norður- og Austur-umdæmisins. Aðflulníngurinn á
svartabrauði beflr á þessu ári, eins og á hinum síðari árum, verið
ffliklu rninni en af hveitibrauði, nefnilega einúngis 18,841 pund,
eða hérumbil rúmur níundi iiluti mót hveitibrauði.
Af allskonar ölfaungum (brennivín, romin, púnsextrakt, vín,
kryddvín, mjöður og bjór), duttust þetta ár samtals til íslands
443,113 pottar (árið næst á undan var það töluvert meira, nefni-
lega 484,133 pottar, smbr. IV., bls. 861 og 862), og þar af til
Suður-umdæmisins 167,844 pottar, til Vestur-umdæmisins 112,794
pottar, og lil Norður- og Austur-umdæmisins 152,475 potlar. Að-
flutníngurinn af ölfaungum hefir þá á þessu ári, eins og að undan-
förnu, að vísu verið mestur til Suður-umdæmisins, en þó hvergi
nærri í sama hlutfalli og það var árið 1867 (smbr. IV., bls. 621);
og árin 1865 og 1866 var aðflutníngurinn af þessu enda mestur
til Norður- og Austur- umdæmisins. Skoði maður þessu næst
hverja tegund ölfánga þeirra, sem hér eru talin, þá verður nokkuð
líkt ofan á, nefnilega að mest heflr ílutt verið á þessu ári til
Suður-umdæmisins, og á þetta sér einkum stað um bjór, því af
þeim 33,321 pottum (árið 1868 ekki nema 31,684 pottar, smbr.
IV., bls. 862), sem á þessu ári fluttust til alls landsins, voru
23,918 pottar fluttir til Suður-umdæmisins, eða milli tvöfalt og
þrefalt meira en til beggja hinna umdæmanna að samlöldu. þará-
móti var á þessu ári til Norður- og Austur umdæmisins fluttir
7833 pottar af víni, eða bátt uppí það sem ílutt var til beggja
binna umdæmanna að samtöldu (lil Suður-umdæmisins 5471, og til
Vestur-umdærnisins 5181 pottar), eins og það lítið sem flult var af