Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 435
1870.
VERZLAN A ISLANDI.
423
Til frekari skýríngar við skýrslur þær, sem hér á undan eru
prentaðar, þykir rétt að gjöra nokkrar athugasemdir, og skal þá taka:
I. ADFLUTTAR VÖRUR.
Af kornvörum þeim (rúgi, byggi, höfrum, bánkabyggi, baun-
nm, bygg- og bókliveitigrjónurn og rúgmjöli), sein fluttust til íslands
árið 1870, og sem samtals voru 44636 tunnur (þetta er töluvert
meira en næst undanfaríð ár 1869, þar sem það þá einúngis voru
42,787 tunnur, smbr. V., bls. 134, en þó nokkuð minna en árið
1867, þegar það voru 45,900 tunnur), fluttust 14,407 tunnur til
Suður-umdæmisius, 11,822 tunnur til Vestur-umdæmisins og 18,407
tunnur til Norður- og Austurumdæmisins; hlutfallið milli umdæma
landsins er því á þessu ári nokkuð líkt og áður heflr átt sér stað,
nefnilega að töluvert meira er flutt af kornvöru til Norður- og
Austurumdæmisins en til hvors hinna, þó ekki kveði fullt eins
mikið að þessu nú eins og að undanförnu. Á þessu ári var að-
flutníngurinn mestur at' rúgi, eins og alltaf hefir átl sér stað, nefni-
lega 25,560 tunnur, eða rúmlega þriðjúngi meira en af öllum hin-
iini korntegundunum samtöldum. í þessari grein má einnig telja
bveitimjö.l og hrísgrjón, og var af hinni fyrtöldu vörutegund
á þessu ári flutt til alls landsins 55,934 pund (árið næst á undau
ekki nema 35,934 pund), og þaraf mest til Norður- og Auslur-
inndæmisins, eða 26,502 pund), en af hrísgrjónum var aptur á móti
á þessu ári lángmest flutt til Suður-umdæmisins, nefnilega 260,470
Pund, eða rúmur helmíngur þess sem fluttist til alls landsins, sem
voru 466,330 pund (árið 1869 voru það ekki nema 353,580 pund
61 alls landsins), en til Vestur-umdæmisins Öuttist af þessari vöru-
tegund á þessu ári aðeins 65,183 pund.
Afbrauði (hveitibrauði allskonar og svarlabrauði) lluttust á þessu
ári til alls landsins samtals 207,661 pund (og er það ekki svo lítið
'oeira en næst undanfarið ár, smbr. V., bls. 135), nefnilega til Suður-
umdæmisins 73,012 pund, til Vestur-umdæmisins 91,495 pund, en
61 Norður- og Austur-umdæmisins einúngis 43,154 pund. Eptir
Þessu hefir þá árið 1870 aðflutníngurinn á brauði verið lángmestur