Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 443
1870.
VERZLAN Á ÍSLANDI.
431
árið 1869. árið 1870.
Axlabönd pör . . 162 90
Ullarkambar, — . . 2388 2912
Aunglar, tals . . . . . 417900 923100
Silkitvinni, pund . . 204 191
Hörtvinni, — . . 347 650
Hattar, tals . . . . . 2400 3149
Ilúfur, — ... . . 3372 4422
Áles, pund . . . . . 30 22.
Strax við fljóta yfirskoðun sýnir yfirlit þetta, að aðflutníngur
til landsins befir verið meiri árið 1870 en árið 1869 á miklu fleiri
vörutegundum en þar sem hið gagnstæða heflr átt sér stað, og á
mörgum þeirra jafnvel svo að töluverðu nemur. Til þess samt að
gjöra mönnum hægra fyrir, þykir rétt hér að lelja þær vöruteg-
undir , sem annaðhvort hefir verið flult meira eða minna af árið
1870 en næst undanfarið ár. það sýnir sig þá, að meira hefir
verið flutt til landsins árið 1870 en árið 1869 af 63 vörulegundum,
°g eru þær þessar: rúgur, hafrar, bánkabygg, hveitimjöl, hveiti-
brauð, svartabrauð, brennivín, romm, vín, kryddvín, bjór, edik,
kaffebaunir, kafferót, sjokólade, tegras, kandissykur, hvítasykur,
púðursykur, síróp, hrísgrjón, blaðatóbak, neftóbak, munnlóbak,
kardustóbak, salt, steinkol, tjara, stórviður, plánkar, spírur, hampur,
fffiri, seglgarn, skinn sútuð, indigó, litunartré, álún, pappír, púður,
blý og högl, naglar, skæri, hestajárn, skóflur, sagarblöð, lásar,
bandprjónar, hnappar, Ieirker, rokkar, speglar, höfuðkambar, alman-
ök, klæði, lérept, boldáng, herðaklútar, ullarkambar, aunglar,
liörtvinni, hattar og húfur. Aptur á hinn bóginn hefir minna
verið flutt árið 1870 en árið 1869 af 33 vörutegundum, sem eru:
öygg, baunir, bygggrjón, rúgmjöl, byggmjöl, jarðepli, púnsextrakt,
mjö8ur, gráfíkjur, steinfíkjur, rúsínur, vindlar, járn, stál, borð, hör,
kaðlar, skinn ósútuð, korkur, sápa, látún, hverfusteinar, brýni,
Pottar, katlar, hnífar, þjalir, dúkur, léreptsklútar, silkiklútar, axla-
^önd, silkitvinni og áles.
V.
33