Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 436
424
VERZLAN Á ÍSLANDI.
ÍB'U.
til Vestur-umdæmisins (árið næst á undan var hann mestur til
Suður - umdæmisins) en minnstur til Norður- og Austurumdæmisins
(ekki helmíngur þess sem fluttist til Vestur-umdæmisins). Aðílutn-
íngurinn á svartabrauði hefir á þessu ári, eins og á hinum síðari
árum, verið miklu minni en af hveitibrauði, nefnilega einúngis
21,912 pund, eða tæpur níundi hluti mót hveitibrauði.
Af allskonar ölfaungum (brennivíni, rommi, púnsextrakt, víni,
kryddvíni, miði og bjór) tluttist þetta ár samtals til íslands 481,550
pottar (árið næst á undan var það töluvert minna, nefnilega 443,113
pottar, smbr. V., bls. 135), og þar af til Suður-umdæmisins
215,485 pottar, til Vestur-umdæmisins 122,082 pottar, og tilNorður-
og Auslur-umdæmisins 143,983 pottar. Aðflutníngurinn af ölfaung-
um hefir þá á þessu ári, eins og að undauförnu, þegar frá eru
skilin árin 1865 og 1866, þegar mest var flntt ti! Norður- og Austur-
umdæmisins, verið lángmestur til Suður-umdæmisins, eða nærfelt
helmíngur þess sem flutt var til alls landsins, og er þá ldutfallið
millum umdæmanna nokkuð líkt og það var árið 1867 (smbr. IV.,
bls. 621). Skoði maður þessu næst hverja tegund ölfánga þeirra,
sem hér eru talin, þá verður nokkuð líkt ofau á, nefnilega að mest
hefir á þessu ári verið flutt af hverri tegund til Suður-umdæmisins,
og á þelta sér einkum stað um bjór, því af þeim 40,170 pottum
(árið 1869 ekki nerna 33,321 pottar sinbr,, V., bls. 135), sem á
þessu ári fluttust til alls landsins, voru 31,749 poltar fluttir til
Suður-umdæmisins, eða milli þrefalt og fjórfall meira en til beggja
hinna umdæmanna að samtöldu. þarámóti var það lítið af miði
(einúngis 179 pottar), sem var talið flutt til Norður- og Austur-
umdæmisins.
Árið 1870 fluttust af kaffebaunum lil alls landsins 402,956
pund, og er það að vísu töluvert meira en næst undanfarið ár (þá
var aðflutníngurinn til alls landsins ekki nema 354,131 pund,
smbr. V., bls. 136), en þó á það sama sér stað á þessu ári eins
og þá, að lángrnest hefir verið flutt af þeim til Suður-umdæmisins,
eða nær því eins mikið og til beggja hinna umdæmanna að sam-
töldu , nefuilega til Suður-umdæmisins 196,776 pund, til Vestur-
umdæmisins 119,958 pund, en lil Norður- og Austur-umdæmisins