Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 818
806
VERZLÁN A ÍSLANDJ.
1871-72.
til Suður-umdæmisins, og þá einkum til Revkjavíkur og Gullbríngu-
sýslu; því af þeim 30,396 pundum, sem árið 1871 fluttust til alls
landsins, voru 28,306 pund ílult til Reykjavíkur- og Gullbríngu-
sýslu, en árið 1872 fluttust þángað 24,479 pund af 26,488 pundum
til alls íslands. Allt jafnara verður þar á móti hlutfaliið milli um-
dæma landsins þegar maður skoðar aðflutnínginn á færum og
köðlum á ^þessum árum; árið 1871 fluttust þannig 24,580, og
árið 1872: 24,012 færi til alls íslands, og koma þaraf á Suður-
umdæmið 9724 og 8798, á Vestur-umdæmið 9311 og 9900, en á
Norður- og Austur- umdæmið 5545 og 5314 færi; af köðlum fluttust
lil alls labdsins árið 1871: 39,299 pund, en árið 1872: 43,370
pund, og koma þar af á Suður-umdæmið 11,449 og 13,157, á
Vestur-umdæmið 9,255 og 12,553, en á Norður- og Austur um-
dæmið 17,660 pund kaðla.
Aðflutníngurinn á járni á þessum árum báðurn var töluvert
rneiri til alls landsins en árið næst á undan; árið 1871 fluttust
nefnilega alls 101,511 pund, og árið 1872 voru það 112,698 pund
(árið 1870 voru það ekki nerna 76,174 pund, smbr. V., bls. 427);
eins og áður var mest flutt á hvorutveggju þessum árum til Suður-
umdæmisins af þessari vörutegund. Af stáli. var einnig á báðurn
þessum árum flutt miklu meir'a til landsins en árið 1870, því 1871
fluttust 6165 pund alls, og árið 1872 alls 6391 pund (en árið 1870
voru það ekki nema 3813 pund, smbr. V., bls. 427).
Einnig af allskonar trjávið (stórvið, plaunkum, borðum og
spírum) fluttust á þessum árum miklu meira lil landsins en næst
undanfarið ár; þá var aðflutníngurinn nefnilega 69,843 tals (smbr.
V„ bls. 427); en árið 1871 fluttust alls 122,373 tals, og árið 1872
jafnvel 131,056 tals. Eins og áður var aðflutníngurinn lángmestur
til Suður-uinrlæmisins, eða meir en til beggja hinna að samtöldu;
því af trjávið þeirn, sem fluttist tii landsins árið 1871, var flutt
80,970 tals til Suður-umdæmisins eins, og af því sem fluttist árið
1872, var til þessa umdæmis l'lutt 69,239 tals.
Vér höfum þannig stuttlega gjört nokkrar athugasemdir við
hinar hel/.tu vörutðgundir, seni taldar eru í skýrslunum A. og 6.
iiér að framan að lluttar hafi verið til íslands á árunum 1871 og