Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1913, Blaðsíða 6

Ægir - 01.04.1913, Blaðsíða 6
46 ÆGIR ist að svo komnu, en hitt leiðir af sjálfu sér að þegar félagið er formlega stofnað þá ráða hluthafar því hvenær þeir kaupa skipin og hvort þeir hafa þau með kola- vélum eða olíuválum. Vafalaust væru olíu- vélar okkur hentugii þegar trygging er fengin fyrir því að olíuverðið geti lialdist nokkurnveginn skaplegt, enda eru nú kol orðin alldýr á síðustu tímum. Er tyrirtækið tryggilegt? Þannig spyrja margir, sem beðnir eru að kaupa hluti. En spurningin er barnaleg. Ekkert fyrir- tæki undir sólinni er altrygt; þau þurfa öll á mentun og mannviti að halda, sum meira og sum minna, og ef það brestur sem til þarf, þá er skollinn laus. En um þetta félag er það að segja, að það er að mestu á þjóðarinnar valdi sjálfrar að láta það borga sig. Eitt er víst og það er að við þurfum að fá mikið af nauðsynjum okkar frá útlöndum og sömuleiðis að flytja út vöru okkar og við komumst engan veg- inn hjá því að borga það sem slíkurflutn- ingur kostar til og frá. Að við getum annast þetta eins ódýrt og útlendir keppi- nautar ætti að vera nokkurn veginn víst, svo að spurningin er þá aðeins sú, hvort við viljum veita sjálfum okkur vinnu við þetta eða láta aðra taka hana af okkur orðalaust, setja okkur alla skilmálana og sitja sjálfir með hendur í skauti, vælandi af vinnuleysi og peningaskorti. Hér gjöri eg ráð fyrir að samkeppnin sé alveg frjáls milli hérlendra manna og útlendra. En um leið mætti benda á það, að aðrar þjóð- ir sem eiga að heita sjálfum sér ráðandi, eru svo sem ekki að spyrja að slíku. All- ar skara þær eld að sinni köku og útiloka útlenda borgara frá frjálsri samkeppni við sína menn allstaðar þar sem þær bara koma því við. — Að hve miklu leyti löggjöf okkar gæti stuðlað að vernd þess- arar nýju atvinnugreinar og þar með hvatt menn til nýrra framkvæmda á öðrum sviðum, skal ekki farið hér út í að sinni, það þarf grandgæfilegrar í-annsóknar og athugunar við. Það er viðurkent máltæki að »argur er sá sem engu verst«. Og þótt svo kunni að vera, að sjálfstæðishugmyndir okkar mæti einhverju tómlæti hjá öðrum þjóð- um á meðan við erum fáskiftnir um eigin hag, og úrræðalitlir, þá er hitt eins víst að enginn hlutur er til, sem mætir jafn- mikilli samúð og skilningi meðal allra þjóða eins og ærleg og þolgóð viðleitni til að rækta í sér mannseðlið, lifa og bjarga sér. H. Frysting á fiski í saltlegi. í siðasta blaði var getið um nýja frysti- aðferð, sem Ottesen í Thisted hefir fundið upp. — í »Norsk Fiskeritidende« 3. mars er grein eftir Bull forstöðumann fiskiveiða- tilraunastöðvar Norðmanna um þetta efni, og skulu þýdd hér aðalatriði hennar: »Áður en eg byrja á aðalefninu, frystingu á fiski og síld, þá vil eg til skilningsauka minnast á tvö atriði, sem standa í nánu sambandi við þetta og það er frysting saltvökva og um svo kölluð »enzym«. Frysting: saltvökva. Þegar venjulegt saltvatn frýs, þá verður ísinn, sem kunnugt er nærri salt- laus, og vatnið 1 kring verður þá saltara en það var áður, er það hefir tekið við saltinu úr því sem varð að ís. Ef maður hefir t. d. ioo kíló af sjó sem hefir í sér 3% (3 kíló) af salti og læt- ur það frjósa þangað til komin eru 50 kíló af ís, þá eru í þvf vatni sem eftir er ófrosið 6% af salti. Ef haldið er áfram að frysta vatnið mun seltan aukast í því sem eftir er, en aðeins miklu hraðar. Um leið má taka eftir því að kuldinn vex í saltvökvanum eftir þvf sem meiri ís myndast. Hið upprunalega sjóvatn frýs við

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.