Ægir - 01.04.1913, Síða 8
48
ÆGIR
skildi nokkra menn eftir um borð, að einhverju leyti
vopnaða. Var sá sektaður og afli og veiðarfæri
gjörð upptæk og seld hér. Það hefir reynst svo,
að þó menn hitti hér á bletti sern fiskur er á, hafa
trollararnir spilt því óðara, dregið þar þangað til
alt er eyðilagt. Það er hörmulegt, ekki síst í ann-
ari eins ótíð og ( vetur að bátarnir skuli vera neydd-
ir til að fara svo langt út á djúpið vegna þessara
ræningja, að varla er hugsandi að verði að veru-
legu gagni, auk tímans sem til þess fer og hætt-
unnar sem því er samfara".
Eiiuskipafélagið.
Hlutasöfnunin hér í höfuðstaðnum gengur eftir
vonum. Eftir síðustu fregnum sem Ægir hefir feng-
ið eru líkur til að hér í bænum fáist eitthvað yfir
ioo þúsund kr. eins og áætlað var í fyrstu.
Erlendis
Pýsk eimskipafélög
hafa grætt mjög árið sem leið, segir „Berliner
Tageblatt. Sum þeirra, eins og t. d. Norddeutche
Lloyd höfðu liðið nokkurn halla árin á undan en
hann hafa þau unnið upp og greiða þó góðan hlut-
arð. Nordd. Lloyd greiðir 7°/o hlutarð Ástraliu-
línan i4°/o, Deutsche Levantlinie 7°/o, Hamburg-
Siidameria-félagið i4°/o og //atisa-eimskipafélagið
20°/o.
Nýtt efni til að hreyfa mótora
segir „Hamburger Fremdenblatt" að sé fundið á
Þýskalandi. Er það framleitt á likan hátt og ben-
zín en á að vera þrisvar sinnum ódýrara að minsta
kosti. Ransakað hefir það verið af vísindamönnum
og reynt á vélum sem annars eru notaðar fyrir
benzín. Er sagt að það kvikni á því eins vel og
benzíni og þensluaflið sé fult svo mikið. Fylgir
sögunni að myndað sé félag með 2 miljón króna
stofnfé til þess að framleiða þetta nýja efni.
Rafmagnsljós við flskiyeiðar.
Menn hafa lengi vitað að ljós hænir fiska að sér
og eru byrjaðar tilraunir ( Noregi með það að nota
rafmagnsljós ( því skyni að fiskarnir safnist utan
um það og léttara verði að ná þeim ( net og næt-
ur. Rafljósið hefir sem sé þann kost að það er
hægt að sökkva ljóskúlunni niður á hvaða dýpi
sem er, án þess að það hafi nokkur áhrif á ljósið.
„Norsk Fiskeritidende" segir frá fáeinum tilraunum
sem einstakir menn hafa gjört, en sem hafa verið
fremur ófullnægjandi. Leggur blaðið til að tilraun-
irnar verði reknar fyrir opinbert fé, því að menn
vænta sér góðs af þeim einkum við veiðar á smá-
síld.
Dísilskipin.
Austurasíufélaginu danska hafa reynst þau svo
vel, að það hefir nú pantað smíði á 7 nýjum dísil-
skipum 61,000 smálestir samtals, og lætur félagið
auk þess setja dísilvélar í 3 af eimskipum þeim,
sem það nú á. OKueyðsla dísilskipanna Selandía
og Jútlandía hefir verið 8—9 tonn á móti 24 tonn-
um af kolum ef eimvélar hefðu verið ( þeim. Nýj-
ustu oltuvélarnar eyða þó tiltölulega enn minna að
sögn.
Meðal kosta dísilvélanna má ennfremur telja að
sívalningarnir 1 þeim eru hver öðrum óháðir og
vinna einir þótt aðrir bili. Eimvél verður að kynda
12—24 klukkutíma áður en hún hefir náð fullum
krafti en dísilvélar eru tilbúnar á fárra mínútna
fresti- í eimskipum þurfa katlarnir og næstu plöt-
ur ( skipsskrokknum all-fljótt að endurnýjast, en
dísilvélar hafa enga katla. Seglfesta af sjó, sem
eimskip verða oft að nota, skemma fljótt járnið, en
dísilskip nota olíuseglfestu og hún varnar ryði. Dísil-
vélar eru einfaldari en eimvélar og slitna ekki fyr.
Léttari eru þær en eimvélar og olían sem þær nota
léttari en kol, en við það eykst burðarafl skipsins.
Mikið sparast við að þurfa ekki að taka kol og
launa kolamokurum í vélinni. Miklu Iéttara er að
halda dísilskipum hreinum og þokkalegum en eim-
skipurn.
Síðan Selandía var bygð hafa verið gjörðar ýms-
ar endurbætur á dísilvélunum samkvæmt fenginni
reynslu, og eru nú líkur til að hinir miklu kostir
þessara véla gjöri það að verkum að þær útrými
að miklu leyti eimvélum úr skipum. Hættan við
þær virðist ekki önnur en sú, að ölíuverslunin hefir
nú um hríð verið í svo fárra manna höndum að
eðlilegt jafnvægi olíuverðsins hefir orðið minna en
á kolaverðinu.
(Tekið úr „Meddelelser fra Norges Oplys-
ningskontor for Næringsvejene" is.mars 1913)
Prentsraiðjan Gutonberg —
1913.