Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1920, Page 4

Ægir - 01.04.1920, Page 4
ÆGÍft 36 biður Matth. Ólafsson fyrir hans hönd að senda honum það, sem eftir er af styrk hans, sem farareyrir lieim, en þar eð það er í ósamræmi við fundarálykt- un gerða 9. sept. 1918 var ekkert fé sent, en samið við skipstjóra á »Lagar- fossi« um að sjá honum farborða hingað, gegn ábyrgð Fiskifélagsins og var Jóni ritað sama dag og honum tilkynt góðar undirtektir skipstjórans, en svo fór þetta alt, að Jón kom alls eigi með Lagar- fossi og er ókominn enn. Hinn 9. sept. 1919 voru Súgfirðingum veittar 600 kr. til leiðarmerkja á firðin- um. Hafði verið heitið að veita alt að 500 kr. til þessa, en stjórnin bætti 100 kr. við, þar eð kostnaður við þetta hafði orðið meiri en búist var við eða nál. 1100 kr. Laxaldak. Styrkur til Gisla Árnasonar til þess að læra laxa- og silungaklak í Noregi, er nú að ílullu greiddur, þar eð Gísli er nú heim kominn og hefir lagt fram vottorð sín og gefið skýrslu um ferð sína, sem prentuð er í Ægi I. tbl. 1920. Er nú ætlun hans að ferðast um landið í sumar, athuga laxaklaks- staði og gefa þeim leiðbeiningar er þess óska og hefir honum, samkvæmt um- leitun hans, verið heitinn styi’kur alt að 1000 kr. gegn því, að hann geti útvegað sömu upphæð annarsstaðar frá. 10. Námskeið. Á fundi stjórnarinnar hinn 15. nóvember s. 1. var samþykt að veita hverjum fjórðungi landsins 500 kr. og Vestmannaeyjum sömu upphæð sem styrk til námskeiða. Höfðu bréf borist stjórninni um áhuga manna fyrir nám- skeiðum yfirleitt, en kennara vantaðí og kom það í ljós, að óskað væri eftir að þeir væru sendir héðan um hávetur til Ijarlægra héraða, en slikir menn og ferðalag þeirra kosta nú ærna peninga og óskiljanlegt, að nokkur kaupstaður landsins sé það tæpur, að þar séu ekki einhverjir, sem færir væru til ekki um- fangsmeiri kenslu en námskeið þessi út- heimta, þar sem um langt skeið mikill fjöldi manna hefir stundað margskonar námsgreinir í Reykjavík og dreifst svo út um land alt. Ekkert af styrk þessum er enn greiddur, en hið vanalega nám- skeið í siglingafræði var haldið á ísa- firði í haust og mótornámskeið var hald- ið hér í Reykjavík, sem endaði rétt fyrir jólin. — Var það hið síðasta verk hr. ólafs Sveinssonar, fyrir Fiskifélagið. Samábyrgðin. Hinn 11. nóv. f. á. héldu þeir form. Hannes Hafliðason, skipstjóri Geir Sigurðsson, samábyrgðarstjóri Jón Gunnarsson, skrifstofustjóri Oddur Her- mannsson og skólastjóri Páll Halldórs- son, fund með sér um breytingu á sam- ábyrgðarlögunum, samkv. fundarályktun siðasta Fiskiþings og á þeim fundi lýsti stjórn Samábyrgðarinnar því yfir, að breyting á lögum hennar skyldi lögð fyrir Alþingi 1921. 12. Ráðningarskrijslofa sú, sem ákveð- ið var á síðasta Fiskiþingi, að Búnaðar- félagið og Fiskifélagið kæmu á fót, el' nú tekin til starfa. Hinn 20. des. s. 1- kom formaður Búnaðarfélagsins ásamt ráðunaut þess á fund stjórnar Fiskifé' lagsins til þess að ræða um hvernig störfum skrifstofunnar skyldi hagað. Eft- ir það voru nokkrir fundir haldnir með formönnum Fiskifélagsins, Búnaðarfe- lagsins, Útgerðamannafélagsins og Al' þýðusambandsins og varð það ákvörð- unin, að Fiskifélagið og Búnaðarfélagið legðu til sinn manninn hvort til þess að annast dagleg störf skrifstofunnar, sem Búnaðarfélagið lánar. Skrifstofan tók ti starfa í byrjun marz. Var hr. Geir Sig' urðsson þann mánuð fyrir félagsins hön

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.