Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 7

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 7
ÆGIR 39 skamtar ágætis lyf, og er það ópiuminu að þakka. Aðeins vil eg vara við ópíumsdropum i magaverkjum, sem eru samfara niður- gangi, eða til að stöðva niðurgang. Þó verkirnir hætti í bili, þá tefur ópium venjulega fyrir batanum. Laxérolía er þá niiklu betra lyf, ásamt sveltu eða mjög ^uðmeltri næringu. í sambandi við kvalastillandi lyf má minna á að heitir bakstrar eru bæði út af fyrir sig og ásamt lyfjunum ágætt að g' ípa til við hvers konar verkjum. Einna hentugastir eru þurrir saltbakstrar. Saltið bakað á pönnu og sett i lítinn léreftspoka. Aspirin er gigtarmeðal, sem er orðið alkunnugt, en jafnframt er það hitaeyð- andi meðal á borð við antifebrín og kin- 'n sem áður voru mest notuð. Við verkj- um, sem almenningur skirir gigt, er asp- h’ín oft sérlega gott og í öllu falli mein- laust t. d. við höfuðverkjum, tannverkj- Uru, hlustarverk og margskonar liða- vöðva- og taugagigt. I hitaveiki framleið- 'r það svita um leið og það eyðir hitan- um. Þetta þykir oft koma að góðu liði til að eyða byrjandi veiki úr líkamanum. Aspirín getur í flestum hitasóttum gert svipað gagn og kinín, nema vera skyldi 1 köldusótt þeirri sem Malaria nefnist og sjómenn geta fengið í heitu löndunum. Við þeirri veiki er ekkert lyf betra en kinín. Kamillute er gamalt góðkunnugt heim- 'lislyf sem margir hafa að góðu kynst frá barnsaldri. Við snöggri köldu er gott að drekka heitan bolla af þessu tei og er Það tilbúið á sama hátt og venjulegt te. Ennfremur er gufan af heitu teinu góð bl innöndunar við hæsi og kverkasárind- um og þyngslum fyrir brjósti. Hellir mað- Ur þá teinu sjóðheitu í könnu, vefur klút utan um könnubarminn og lætur sjúkl- inginn gapa yfir því. Enn má geta þess^ að bakstrar undnir upp úr heitu kamillútei gefast oft vel við bólgumeinum. Bórsýra er sóttkveikjueitur og sáralyf, en ekki nærri því eins eitrað og hættu- legt og karbólsýra. Við karbólsýru þarf að hafa milda var- úð. Þegar búið er til karbólvatn kemur það stundum fyrir, að sýran blandast illa saman við vatnið af því blandan er ekki hrist. Karbólsýran legst á botninn í glasinu og getur brent illa ef menn vara sig ekki á þessu. Bórsýran er venjulega leyst upp í vatni og notuð sem bórvatn við sár. Eg hefi tiltekið 25 grömm af henni; en það næg- ir til að leysa upp í 3 pelum af volgu vatni. Þannig lagað er það hæfilega sterkt til sins brúks, til að draga úr bólgu og eyða sóttkveikjum. Við augnveiki kemur það oft að haldi og er í öllu falli mein- laust til að baða augun úr. Við bólgu í munni og kverkum er gott að skola sig með því og kemur þá ekki að sök þó eitthvað fari óvart ofan í mann. En al- gengast er að nota bórvatnið sem sáralyf — til að þvo gröft úr sárum og væta með því riur þær sem lagðar eru við igerðarsár og bólgumein. Sé um hrein sár að ræða, sem ekkert vessar úr eða grefur i, þá þarf ekki neitt sóttvarnarlyf nema joð eins og seinna skal sagt frá, og binda þá um með hinum sótthreins- uðu umbúðum sem eru í ldstlinum. Má um leið minna á, að engin ástæða er til að skifta þeim umbúðum fyrstu vikuna ef enginn verkur kemur. En þegar um bólgusár er að ræða, þá er bórvatn ágætt sáralyf. Nú vilja umbúðir oft tolla ofan í sár- um sem grefur i. Við þvi má gera þann-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.