Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 8

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 8
40 Æ GI R ig að vefja gúmmípappír utan um votu bórvatnsríurnar þannig að hann lyki um þær og út fyrir þær. Þar utan yfir kem- ur bindisvafið. Með þessu móti haldast riurnar blautar og verka sem bakstur á bólguna um leið. Bórvatnsbakstur! Þann- ig kemur bórvatnið að sem beztum not- um. IJað skal játað, að karbólvatnið er sterkara sóttkveikjueitur en bói’vatn, en það getur líka verið eitur fyrir sár og þess vegna tvíeggjað sverð. Sumir hafa tröllatrú á karbóli, en það er af því, að þeir hafa ekki reynt að bórvatnið gerir sama gagn, en aldrei skaða. Ef karból- vatn er haft i bakstur um fingurmein eins og fyr er ritað um bórvatnið, getur karbólvatnið gert óbætanlegt tjón. Það getur valdið drepi í fingrinum svo hann verði ónýtur og þurfi að taka hann af. Þó ekki væri nema fyrir að þetta eitt getur af karbólvatni hlotizt, vildi eg helzt ráða frá þvi að karbólvatn sé nokkurn- tíma notað við sár. Bórvatn kemur ætíð að fult eins góðum nolum. Hins vegar getur karbólvatn komið sér vel til að þvo sér um hendurnar og sótthreinsa úr ýmsa sóttmengaða muni. Joðáburður er öílugt sóttkveikjueitur og lcemur því að góðu gagni við sáragræðslu. Þegar einhver sker sig eða særir á ann- an hátt þá skal sótthreinsa húðina kring- um sárið og sárrendurnar með því að pensla joðáburðinum á hörundið. Kom- ast þá engar sóttkveikjur frá yfirborðinu i sárið. Nú skyldu menn ætla að bezt væri einnig að pensla sárið sjálft úr joð- áburðinum, en svo er ekki. Bæði er, að það veldur sviða mildum og gerir ógagn með því að ýfa sárið, og svo getur það alls eigi náð til þeirra sýkla sem kunna að leynast í fylgsnum sársins. Það getur ekkert sótthreinsunarlyf í einni svipan og græðikraftar náttúrunnar sjálfrar eru þar hollari til hjálpar. Sé hörundið mjög óhreint er sjálfsagt að þvo hin mestu óhreinindi burtu áður en joðið er borið á; en gæta skal þó þess að skola ekki óhreinindunum niður í sárið, heldur halda yfir sárið klút vættum í bórvatni og þurundnum, og þurka síðan húðina med sótthreinsaðxi bómull áður en joð- inu er penslað á. Sé aðeins um lítið sár að ræða, stungu eða rispu, þá skal einnig pensla yfir sár- ið. En el'tir joðhreinsunina eru sótthreins- aðar þurrar umbúðir lagðar yfir. Joð er ennfremur gott lyf til að eyða bólgu og getur stundum komið í veg fyrir að grafi. Er þá joðinu penslað á bólguna 2svar —3svar á dag, unz dregur úr bólgunni. Þó skal gæta þess, að ef þetta er endur- tekið mjög oft, þá gelur joðið sjálft vald- ið bólgu og viðkvæmum húðflagningi. Grisja eða sáralín. Eg hefi oft oi'ðið þess var, að sjómenn kunna lítt að fai'a með umbúðaböggla þá, sem þeim eru ætlaðir i kistlinum. Og þessir bögglar endast lítið þegar mikið er um fingur- mein eða skeinur um borð. Það er því engin vanþörf á að hafa nóg af sái'alíni. Umbúðabögglarnir eru nauðsynlegir og ágætir til umbúnaðar á bólgulausum sár- um, lil þess að varna því að bólga komi í sárin. En sé um óhrein sár og igerðir að ræða, þá er það mesta eyðsla og óþarfi að eyða svo dýrmætum umbúðum í hvert skifti sem leyst er til sái'sins. Við smáskeinur þarf ekki aðra viðhöfn en binda um trafi úr hreinu lérefti eða grisju, en við meiri háttar ný sár skal ætið hafa þunnar sótthreinsaðar umbúð- ii'. Séu bögglarnir uppgengnir, þá má í þeii’ra slað nota venjulega grisju sem maður sótthreinsar sjálfur. Vandinn er ekki annar en að rífa niður hæfilega

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.