Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1920, Side 9

Ægir - 01.04.1920, Side 9
Ægir 41 slórar ríur og sjóða pœr i vatni 1 hálfa klst. Sömu aðferð skal liafa þegar skifta slcal umbúðum hvað eftir annað á fing- urmeinum eða bólgusárum. Grisjubindi er bezt að hafa sem ílest, til að geta sparað umbúðabögglana. (Því þegar einu sinni er búið að opna þá, eru þeir ekki lengur gerilsnej^ddir. Þarf þá að sótthreinsa innhald þeirra á ný ef þeir eiga að gera gagn). Bindin i umbúðabögglunum eru helzt of lítil þegar t. d. vefja þarf um læri eða kvið. Þess vegna er gott að hafa stærri bindi við hendina. í rauninni má vel komast af án þess að útvega sér bindi ef nóg er af grisju. Því úr grisjunni getur hver og einn rifið bindisræmur og undið úr bindi eftir geðþótla. Gummípappír hefir verið talað um hvernig nota skal. Eins og til að hylja hórvatnsbakstra má nota pappírinn til hylja pjötlur smurðar græðismyrslum Jrfir hruflur og sár. Áburðurinn þornar þá síður og nýtur sín betur. Pjötlurnar tolla ekki ofan í sárunum. Annars vil eg 1 þvi sambandi geta þess, að eg tel bór- teiti (ungventum boricum) miklu heppi- tegri sárasmyrsl enn bórvaselin, af því hún græðir jafnvel eða betur og hefir þann kost, að hún þvæst vel úr umbúð- oni þar sem bórvaselín setur bletti. sem hla nást burtu, bórfeiti hefir þann ókost að hún þránar við gemyslu, og er því ekki eins hentug fyrir sjómenn, eins og hórvaselin. Vattplöiur, þykkur pappi og flónelsbindu Petta þrent eru veltiþing að hafa ef bein- r°t ^er að hendi. Úr pappanum skal ^hppa alt að þverhandar þykkar ræmur til að nota sem spelkur við hinn brotna lim. Eftir að brotni limurinn hefir verið flettur klæðum (oft verður það ekki gert nema með þvi að risla upp stigvél og föt), er með lægni togað í liminn til að koma brotunum í rélt horf. Vattinu er þvínæst vafið utanum liminn. Spelkur síðan settan sín hvoru megin eða tvær saman hvoru megin og flónelsbindi vafið utanum. Spelkurnur er bezt að hafa svo langar, að þær nái út yfir bæði næstu liðamól t. d. við fótbrot þannig að spelk- urnar nái bæði niður fyrir öldalið og upp fyrir knéð. Vattið má rífa niður í ræmur og vinda hverja þeirra upp sem bindi. Þá gengnr betur að vefja því hag- lega um liminn. Flónelsbindi eru góð til að vefja um fólleggi þeirra sem hafa æðahnúta. Brunabindi eru úr venjulegri grisju en gegndrepa af innþornaðri bismútleðju. Þessum bindum er vafið um brunann, eða samanbrotin pjatla af bindinu lögð yfir brunann ef að eins er litið um að vera. Því næst er hvít hómull lögð yfir (hún er til í bögglum í kistlinum) og þar utan yfir grisjubindi. Bezt er siðan að láta umbúðirnar liggja óhreyfðar meðan ekki vessar gegnum þær og sjúklingnum líður vel, og vitja læknis þegar hægt er. Við brunaslys er alvanalegt, að fólk í fáti og ráðaleysi hellir ýmsu yfir bruna- sárin í þeim tilgangi, að draga úr þeim sviða, eins og t. d. mjólk, lýsi, laxerolíu, hveiti o. íl. Ennfremur eru lagðar yfir þau óhreinar tuskur og óvandaðar um- búðir. Síðan er læknisins viljað. En þá kemur læknirinn of seint til að geta orðið að verulegu liði, því sárið er orðið óhreint, og óhreint sár er erfitt eða ómögulegt að hreinsa. Þess vegna riður á, að það sem gert er við sár, sé af viti gert, að ekki sé annað við þau látið, en það sem hreint er. Brunabindin eru bæði hrein

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.