Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1920, Side 11

Ægir - 01.04.1920, Side 11
Æ GIR 43 böggulinn og smella umbúðunum á, líka fyrir mann, sem ekki hefir þvegið sér. Pappírsræmur eru brotnar um umbúða- rendurnar og getur maður haldið þar um án þess að snerta sjálfar umbúðirnar. Silkiþráður og sárasaumnálar eru ætl- aðar sjómönnum til þess að þeir geti i viðlögum sauraað saman sár. Vandinn er að visu litill, en þó svo mikill, að sjald- an er gripið til þess. Nú á timum þegar allflest skip eru knúð af vélum og geta fljótt komist inn til hafna til læknis, er þörfin á að hefjast handa ekki sérlega brýn. Þvi ef að öðru leyti er vel um sár búið má gjarnan dragast i einn eða tvo sólarhringa að sauma sárið. Eins má segja að sjaldan verði þörf á að laka þvag ef manni út á sjó. Eigi að siður er gott að vita af tækjum til þeirra þarfa á hverju skipi, Það lá nærri, að eg vildi bæta einu lyfi við i kistilinn. Það var konjak. Því verður ekki neitað að það getur verið gott lyf í slæmri kvefsótt og lungnabólgu og gott að gripa til þess i kuldahroll eftir vosbúð. En áfengi er það lyf, sem öiest er misbrúkað, og tlaskan er veniu- lega tóm þegar til á að taka og veruleg þörf er á. Ómissandi finst mér áfengið ekki vera, einkum þar sem kamfóru- dropar eru um borð, er gera svipað gagn. Eg hefi því slept öllu áfengi, til að jreista ekki þeirra sem veikir eru á svell- mu. Það kynni að gera meira ógagn en gagn. Skipstjórar sem endilega vilja það innanborðs geta hvort sem er óefað feng- ið reseft hjá einhverjum lækninum. Vélstjórapróti luku þessir menn 29. april: Guðmundur Agústsson, Óli Andrea- sen, Hafliði Jónsson, Jóh. Jónsson, Aðal- stemn Björnsson, Guðbjartur Guðmunds- s°n, Sigurður Kr. Einarson. t Otti Guömundsson skipasmiður. 0 Það sorglega slys bar við 20. april, að Otti skipasmiður Guðmundsson hrapaði niður af smiðapalli, þar sem hann var að vinna á bátasmiðastöð sinni, og beið bana af. — Var fallið ekki nema rúm mannbæð, en Otti heitinn hefir komið niður á höfuðið og voru allmikil meiðsli að sjá á honum einkum hjá öðru gagn- auganu. Var læknis vitjað samstundis, en hann fékk ekki við ráðið og andað- ist Otti eftir 2 klukkustundir. Otti heitinn var fæddur i Engey 24. jan. 1860 og ólst þar upp. Fyrir 37 ár- um fluttist hann hingað til bæjarins og hefir stundað hér skipasmíði. Hafði hann virðing allra, er kyntust honum og var inn nýtasti maður. Hann var kvæntur Helgu Jónsdóttur og lifir hún mann sinn og 6 börn þeirra hjóna: Pétur og Kristinn skipasmiðir, Guðrún gift Kristni Péturssyni blikksmið, Margrét, Laufey og Guðríður. Skátapróf. Hinn 19. apríl var haldið skátapróf i K. F. U. M. Sex ungir og röskir drengir gengu þá undir hið svo kallaða meira skátapróf, sem gerir þá að fullkomnum skátum. Maður sannfærðist fljótlega um það að skátahreyfingin hefir i hæsta máta uppalandi áhrif á drengi. Þeir læra að verða siðprúðir, eftirtektarsamir, hug- rakkir og einbeittir, læra að hjálpa sjálf- um sér og öðrum. Því eitt af því sem

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.