Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 14

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 14
46 ÆGIR Átti heima á Njálsgötu 19. Var kvæntur og átti eitt barn. Lárus Elíasson frá Berserkseyri 25 ára. Ólafur Jónsson frá Einarslóni. Kvænt- ur maður. 27 ára gamall. Bróðir Frið- riks, er talinn er hér að framan. Peder Anderssen, norskur maður af Mjóaíirði. 40 ára. Páll Júniusson frá Stokkseyri. 30 ára. Sigurður Bjarnason frá Bingeyri við Dýrafjörð. 20 ára. Sigurður Guðmundsson frá Breiðuvík i Barðastrandarsýslu. 30 ára. Kvæntur, átti 3 börn. Stefán Guðmundsson frá Litlakambi. Kvæntur maður, 24 ára. Vigfús Ilansson frá Sandi. Ógiftur mað- ur, 21 árs. Hann og bræðurnir frá Ein- arslóni voru bræðrasynir. Valdimar Ólafsson, Vesturgötu 23 hér í bænum. Ókvæntur maður, 23 ára. Eins og sjá má af þessari sorglegu upptalningu, voru allir mennirnir á bezta aldri, allílestir milli tvítugs og þrítugs og tveir innan við tvítugt. Margir voru þeir ókvæntir, en munu samt flestir hafa átl fyrir vandafólki að sjá. Þau verða þvi mörg heimilin, er mist hafa aðalstoð sina við þetta hryggilega slys. Fundarg’erð. Árið 1920 föstudaginn 5. marz var að- alfundur fiskifélagsdeildarinnar »Garðar« i Húsavík, settur og haldinn í fundar- sal hreppsins. Fundarstjóri var kosinn Jón Einarsson og Sigurður Sigfússon skrifari. Á fundinum gerðist: 1. Arsreikningur deildarinnar upplesinn og samþyktur í einu hljóði. 2. Lesin lög deildarinnar. 3. Tveir menn gengu í deildina, þeir: Ásgeir Eggertsson og Jón Sigurðsson Valbergi. 4. Kosin stjórn: Formaður: Asgeir Eggertsson, féhirðir: Jón Einarsson, ritari: Einar Sörensson. Til vara: Karl Einarsson, Páll Sig- urðsson og Sig. Sigfússon. Endurskoðendur: Sigurjón Þorgríms- son og Páll Kristjánsson. 5. Þá urðu ýmsar umræður á víð og dreif, um verkefni deildarinnar. í sambandi við það kom fram og var samþ. þessi tillaga: Fundurinn skorar á stjórnina að gera nú á þessu ári, tilraun með að kaupa kúfiskplóg og gera tilraun með kú- fisksleit, enda fari verð hans ekki teljandi fram úr kr. 200,00. í öðru lagi kom fram þessi yfirlýsing: Fundurinn skorar á sjómenn hér í veiðistöðinni yfirleitt, að kynna sér sem bezt gildandi lög frá 1915 um atvinnu við siglingar á bátum og skipum, 6. Félagsstjórnin hreyfði þvi, að æski- legt væri að koma hér á námsskeiði fyrir sjómenn, hér í veiðistöðinni á næsta vetri í ýmsum verklegum æf- ingum. Fundurinn felur sljórninni að athuga og undirbúa mál þetta með þvi, að setja sig i samband við erindreka Fiskifélagsins norðanlands, um út- búnað og ýmislegt annan viðvikjandi máli þessu. 7. Fundurinn skorar á stjórn deildarinn- ar að útvega hjá stjórn Fiskifélags íslands, sem beztar og ábyggilegastar

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.