Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 16

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 16
48 ægir Orsakirnar til þess, að síldin er svona illa verkuð eru margar. í fyrsta lagi mun frummatið á síldinni eigi hafa verið nægi- lega strangt, í öðru lagi notaðar lélegar tunnur um síldina og í þriðja lagi eftir- litið með tunnunum eftir að síldin var komin í þær ófullkomið. Yfirmatsmenn verða að gæta þess, að skipa eigi aðra matsmenn en þá, sem þeir þekkja, að árvekni og einbeittni gegn síldareigend- um og þeim, er hlut eiga í síldinni eða á annan hátt liafa hag af því, að sem mest af sildinni úr hverri veiðiför verði tekið til söltunar. Þá er og eigi síður nauðsynlegt, að matsmenn þvertaki fyrir, að síldin sé söltuð i lélegar tunnur, og að síðustu, að þeir hafi gott eftirlit með pæklum sísldarinnar, þar til hún flyzt út. í stuttu máli, má aldrei linna, að á- minna menn um að vanda vöru sína sem bezt að unt er og menn hafa frek- ast þekkingu til. Þess er þvi frekar þörf, sem samkepnin eykst með hverju ári. Fyrri hluta janúarmánaðar tók eg að búa mig undir ferðina til suðurlanda. Tók það alllangan tíma, þvi ég varð að fara til sendiherranna úr öllum þeirra löndum, sem eg ætlaði að ferðast um, til að fá skrifað upp á vegabréf mitl. Varð ég á Ilestum stöðunum að skrifa umsókn og vitja svo um vegabréfið tveim til þrem dögum seinna. Sumir sendi- herrarnir höfðu að eins opna skrifstofu tvisvar í viku. Um þetta leyti var Bennetts Rejse- bureau í Kaupmanuahöfn að undirbúa ferð til Svisslands. Réð ég þá af, að ferðast með fyrsta hópnum til Basel í Svisslandi og fara svo þaðan með járn- brautinni til Genua. Hafði nú verið sagt að milli þeirra staða væri sæmilegt járn- brautarsamband. Eg lagði svo af stað frá Ivaupmanna- höfð 27. janúar að morgni. Þann dag var þreifandi bylur og hvassviðri í Dan- mörku og á Norður-fyzkatandi. Atli fólkið fremur illa æfi á ferjunni, því að fólksfjöldinn var svo mikill að ekki nærri helmingur fólksins gat rúmast undir þiljum og við borðið varð að margskifta því. Svo hafði verið ráð fyrir gert, að lest- in færi burt frá Warnemiinde til Heidel- berg og að ferðafólkið alt fengi svefn- vagna, þar sem ferðin suður til Rýzka- lands átti að vera að næturlagi. En í Warnemúnde breyttist þetla alt saman svo, að fólkið varð alt að fara til Berlín, því svetnvagnar voru eigi til handa helmingi fólksins, en það vildi heldur fara til Berlin og hvíla sig þar yfir nóttina, en að vera á ferð um nótt- ina og sitja uppi, án þess að fá svefn- vagna. í Berlin dvaldi eg um nóttina og fram til kl. 5 daginn eftir. Þá fór eg með næturlest til Heidelberg og varð að eins þrent af samferðafólkinu samferða. Hitt vildi heldur bíða í Berlin yfir nóttina til að komast hjá að vera á ferð að nóttunni. í Berlin var ill að vera, því að kal'alds- bylur var og allmikið frost, en engin kol til í bænurn. Urðum við að ganga um gólf í svefnherbergjunum í vetrar- kápum og gátum þó ekki haldið á okk- ur hita. Að öðru leyti var ekki að sjá, að mikill skortur væri á matvælum, nema á sykri, það var alls ekkert til og var í þess stað haft saccarin og er það neyðarkostur. Um kl. 772 að morgiii 29. janúar kom lestin til Heidelberg. Hafði svo verið ráð fyrir gert, að við biðum þar til kl. 9 f. hd. eftir morgunlestinni, sem þá átti að koma með samferðafólkið frá Berlin. En svo illa vildi til, að lestinni, sem við vorum með, seinkaði um 7* klst. svo

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.