Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 19

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 19
ÆGIH 51 stjórninni. Kvað hann það hið fyrsta islenzkt skjal, er sér hefði borizt. Herra Enberg benti mér á ýmsa menn, er hann áleit að gæti gefið mér upplýs- ingar og sagði mér ýmislegt, er mér kom að gagni. Daginn áður en eg kom til Barcelona, hafði gufuskipið Mjölnir komið þangað með fiskfarm heiman af íslandi. Sldp- stjóri á Mjölni er Kroníka tengdasonur Kristjáns hæstaréttardómstjóra Jónssonar. Hitti eg hann af hendingu úti á götu og sagði honum hvar eg byggi, Daginn eftir heimsótti hann mig á gistihúsið, á- samt Kaj Andersen Swanholm, úr firm- anu Berg, Wang & Swanholm. Hafði hr. Kronika sagt Swanholm, að eg væri i bænum. Firmað Berg, Wang & Swanbolm er nýstofnað og ætlar aðallega að verzla með islenzkan fisk. Berg og Wang eru Norðmenn en Swanholm er sonur hins alkunna járn- steypu kaupmanns Andersen i Kaup- mannahöfn. Vildi firmað ná í islenzkan mann á skrifslofu sína, svo að íslend- ingar gætu skrifað firmanu á sínu eigin máli. (Framh.). Björgunarlaun. Björgun úr sjávarháska hefir víðast um heim allan verið álitin fremur mann- úð en gróðafyrirtæki og sum lönd krefj- ast mikils af sjómönnum i þessa átt, svifta þá rétlindum, sem réttindi hafa, ef þeir sýna vanrækslu, klaufaskap eða kæruleysi i þvi að veita nauðstöddum á sjó þá aðstoð, sem auðið er, en verð- launa aftur á móti dugnað og karl- mannlega framgöngu við björgun, og ætti svo hvervetna að vera. ótalin eru þau mannúðarverk, sem unnin hafa verið hér við strendur, og lítil hafa stundum verðlaun verið, þótt formaður legði sig, skipshöfn og skip út í fyrirsjáanlegan dauða og eyðileggingu, til þess að bjarga þeim sem ver voru staddir en hann á sjónum, enda hefir til þessa lítið verið hugsað um að ver- laun ættu við; björgun hefir verin álitin sjálfsögð. Fegar skipshöfn er bjargað frá dauða á sjó þá eru það ekki að eins þeir menn, sem bjargað er, sem koma til greina, heldur og þeir aðstaðendur þeirra, sem i landi eru. Hað er einnig verið að bjarga fjölskyldunum, því björgunin hefir áhrif á konurnar og börnin og þeirra uppeldi, á örvasa föður éða móður eða heilsu- laus systkini, því í sjóinn fara að öllu jöfnu þeir, sem fyrir öðrum eiga að sjá, eða leggja sinn skerf til framfærslu heimila og uppeldis næstu kynslóðar, þvi sjónum er ekki boðið annað en kjarni þjóðarinnar til að leika sér að og gleipa; hann er voldugur herra og aðrir geta eigi varist gegn dutlungum hans en þeir, sem gæddir eru kjarki og þreki. Þegar að þessu er gætt, þá er björgun- arverkið svo víðtækt, að verðlaun ættu í það minsta að vera sjálfsögð, en hér er sjaldan farið lengra en að snara út fáeinum aurum fyrir þakkarávarp i blöð- um og gott ef ekki verður rifrildi út úr öllu saman, eins og t. d. i »Ægi« fyrir 2—3 árum, þar sem eg varð að ganga á milli til að stöðva stæluna. Minna má það aldrei vera, en að þeir, sem bjargað er, geti þess og þakki þeim opinberlega í blöðunum sem bjarga. Að þegja er ræfilsháttur.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.