Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 20

Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 20
52 ÆGIR Kröfur fyrir björgun á skipi og farrai, og aðra aðstoð á sjó. Til skams tíma var björgun talin mannúðarverk, en nú er svo komið, að hún er orðin gróðafyrirtæki, sem kveð- ur svo ramt að, að menn þeir, sem komast í þær raunir á sjónum að sjá eigi annað fyrir en opinn dauðan, þora varla að biðja skip um hjálp, vegna þess að þeir vita, að hin minsta aðstoð kostar oífjár, hvað þá hin milda hjálp. Af þessu stafar það, að dregið er að biðja um hjálpina þangað til það er um seinan. Hér er það orðin tizka að skip án allra tækja til björgunarverksins setji upp sömu björgunarlaun og vel útbúið björg- unarskip með dýrum björgunartækjum. Það skipið sem ekkert getur ef út af ber, heimtar sama og það skip, sem ó- hætt er að treysta ef í hart fer og er stjórnað af þeim, sem kunna alt er lýtur að þvi, að alt lánist og heppnist. Björgunar og aðstoðarlaun eru sjálf- sögð, en lítilvæga hjálp má ekki skrúfa svo upp, að hún verði sú grýla, að sjó- menn fari að hætta að leita aðstoðar í tæka tíð, ef þess er kostur, og að koma þannig í veg fyrir stórtjón. Það er nú komið svo, að hin minsta aðstoð veitt á sjó kostar þras og málaferli og er það illa farið, og kveður svo ramt að þessu, að skip þau, sem •vátrygð eru í samábyrgð Islands og eru skyld samkvæmt lögum stofunarinnar að aðstoða hvert annað, er þess gerist þörf, setja upp hvert viðvik, sem fyrsta ílokks björgunarskip væri. Þannig man eg eftir aðstoð, sem í góðu veðri tafði skip í 7 klukkustundir, það var dráttur, þó á taug þess skipsins, sem dregið var; það átti að kosta 20,000 kr., það var Samá- byrgðaraðstoð. Hvert yrði verðið hjá björgunarskipinu »Geir« ef hann ætti að ákveða björgunarlaun, þegar þetta virðist sanngjarnt hjá Samábyrgarskipum fyrir aðstoð í bezta veðri? Því upphceðin var liltekin sem sanngjörn krafa. Þegar um smásldpin er að ræða þá fer þetta okur- verð fyxár veitta hjálp að verða ískyggi- legt. Svo hagar til, að þegar eitthvað laskast á bátum eða smáskipum þá get- ur verið nauðsynlegt að kalla á hjálp, enda þótt skipstjóri hafi von um að geta sjálfur bætt úr skemdum, og er orsökin sú, að hann álítur skipið ekki beint í voða statt, en hann þorir ekki að eiga það á hættu, að láta það skipið frá sér fara, sem hann liefir beðið um hjálp, vegna skipshafnarinnar, því lífi hennar er stofnað í hættu sökum bátaleysis, eða þá að skipsbáturinn ber ekki alla. Hvort er nú heldur hér um að ræða björgun á mannslífum, sem til þessa hefir ann- aðhvort kostar 200 kr. gullúr, kikir eða því um líkt, þegar bezt hefir látið, nokkr- ar krónur fyrir þakkarávarp í blöðum eða þá að þessa hefir alls ekki verið getið — þetta fyrir mannslifin. Sé um það að ræða, að aðstoða eða bjarga skipinu sjálfu, þá fer nú verðið að stíga. — 20—40,000 krónur kostar nú á tím- um lítil aðstoð, og fákunnátta formanna á smáskipunum er svo mikil, að þeim dettur stundum ekki í hug að grenslast eftir því hjá skipstjói-a þeim, er hjálpina veitír, hversu mikið hann muni setja upp fyrir ómakið, því þeir formenn hljóta hér að vera og eiga að vera sem mundu gera alt, er í þeii’ra valdi stend- ur, til þess að þurfa ekki að þiggja að- stoð með því vei’ði, sem nú fer að tiðk- ast. Sé álit skipstjórans og skipshafnar það, að þessi krafa sé með öllu ósann- gjörn og sýni þekking skipstjórans hon- um það, að koma megi skipi áleiðis án aðstoðai’, þá neitar hann að þiggja hjálp,

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.