Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 22

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 22
54 ÆGIR nauðsyn þeim ei’ heima biðu. Mannúð var hér áður fyr og ekki sizt hjá sjó- mönnum. Er hún eitt af því, sem hér á að strikast út vegna peningagræðgi? 20. mai 1920. Sveinbjörn Egilson. Aih. Við grein þá, sem eg ritaði í Morgun- blaðið 20. mai og sem hér birtist, vil eg geta þess, að mér er vel kunnugt um það, að formenn á smáskipum, eru það illa undirbúnir, til þess að mæta ýmsum flækjum fyrir sjórétti, að ekki veitir af að gefa þeim bendingu. Hvort sú bend- ing á að koma frá mér, getur verið álita- mál, en einhver verður að minnast á þetta. Enn þá hefi eg ekki lært að vera svo, að eg ekki vildi með athygli, hlusta á hvern og einn, sem um sín sjómálefni vildi við mig tala. Þeir eru þegar orðnir margir, sem það hafa gert. Eg hef séð svarið fyrir dómurum og sú athöfn er svo, með öllum þeim formælingum, sem henni fylgja, að hver og einn ætti að vanda sín verk, til þess með góðri sam- vizku að sverja. Sv. E. Atvinna. Flest blöð landsins hafa flutt sand af auglýsingum eftir verkafólki yfir vortím- ann, og sagt er að ráðningaskrifstofan hafi ekki nærri nóg af fólki að bjóða. Hér í bænum er eftirspurnin afar-mikil og margir í vandræðum með verkafólk. »En hve lengi stendur þetta?«, spyrja menn, Peningakreppan dynur yfir eins og helli-skúr úr heiðríku lofti, um há- bjargræðistímann, einmitt um þær mundir sem menn eru að undirbúa sumar-at- vinnuna, síldarútgerð o. íl. En hér er fleira að athuga. Síldin liggur óseld og enginn vill við henni líta sem stendur. Rar standa fastar nokkrar milj. króna, sem eru vonarpeningur nema vel takist til. Og ekki gengur betur með kjötið; það vill enginn eiga. Jafnvel að bændur verði að kaupa það aftur af sjálfnm sér, eða með öðrum orðum, að skila aftur fyrsta andvirðinu, eins og það væri rang- fengið fé. Oft hefir bændum þótt þröngt fyrir dyrum hjá sér með sölu afurðanna, en aldrei þvilíkt sem nú. Hversu hátt kaup geta þeir goldið um vikuna í sumar ef þessu fer fram? Reir eru litlu betur settir en sildarútvegsmennirnir með að bjóða hátt kaup, því að síðastl. ár var ullin í hraklega lágu verði eftir öðrum varningi. og horfurnar eru litlu betri nú, Þessar eru ástæðurnar fyrir þvi að ekki allfáir verkamenn í kaupstöðum hugsa daprir til sumarsins og kvíða þvi, að kaupgjaldið muni lækka þegar líður á vorið. Sjálfur ríkissjóðurinn er ekki bet- ur staddur en svo, að stjórnin verður að fresta sumum framkvæmdum er henni voru faldar af þinginu og heim- ilað fé til í fjárlögum. Jökull fjáreklunn- ar er að leggjast yfir landið jafnóðum og snjófannirnar hverfa. Þvi olla kaldir straumar úr Elivogum ófriðarlandanna. Skeggi. Upplýsingar um fyrirkomulag námsskeiða í verk- legri sldpavinnuu mun Ægir bráðlega flytja- liitstj.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.