Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.1925, Qupperneq 7

Ægir - 01.05.1925, Qupperneq 7
ÆGIR 85 áður getur, fer oft svo, að ýmsar truíl- anir i loftstraumum geta breytt veðri á annan veg en auðið var að sjá fyrir, en það er ekki oft nú orðið og verður sjaldn- ar og sjaldnar. Þegar svo er komið, verður næst að athuga hvernig hún bezt geti komið að liði í veiðislöðum. Vil eg þá benda á, að tími er nú kominn til, að aðvörunarmerki séu dreg- in upp þar, þegar stöðin fyrirskipar að gera svo, eða skeyti frá henni sýna, að þess sé þörf. Skeð getur að aðvörunar- merkin verði dregin upp og sjóveður virðist vera eða verði, en þau benda á hættu og geta orðið til þess að formenn komi saman og ræði um útlit og reyndir menn segi álit sitt. Það verður affara- sælla en hver fari sínu fram, einn út af fyrir sig, og reyndir menn sóma síns vegna verði að elta óreyndan, djarfan formann, sein fer hugsunarlaust út á sjóinn og hefir ekki þekkingu þá á út- liti, sem eldri og reyndari menn hafa. Það eitt er full ástæða til, að þessu sé komið í framkvæmd. Þá hefir það atriði ekki verið forsómað, hvernig sem það verður notað. Fáist ekki leiðarljós á þann stað, þar sem skiptapar verða árlega sökum þess það vantar, og fáist ekki aðvörunar- merki í aðalvetrarveiðistöðvar — hvað fæst þá til þess að afstýra slysum, og til hvers er verið að kjósa nefndir og halda fundi um björgunarmál í uppljómuðum hlýjum stofum, tala um kaup á björg- unarbátum, sem aldrei hefðu verið kall- aðir í öllum þeim tilfellum, sem mann- skaðar og tjón hafa orðið á þessu nefnda svæði? Að likindum verður borið við, að peninga vanti; það er ekki ráð til þess, en landið hefir þó ráð til að missa fjölda manns i sjóinn, það er skrítinn reikn- ingur. Áttavitar eru meira eða minna vitlausir á flestum mótoibátum og það eykur hætluna, þegar formönnum er skekkjan elcki ljós. Nú er sumarið að byrja og verður þá að koma i ljós hvort það sé alvara og einlægur vilji manna að slysum sé reynt að afstýro, og sé það ljóst, að landið hefir ekki ráð til að missa unga hrausta menn eins og vcrið hefir síðustu árin. Bíðið ekki þang- að til nefndin skilar af sér. Það er ofseint að hefjast handa þá, því mörg slys geta orðið á nefndu svæði á sex vikum. Að björgunarskip hefði bækistöðu sína á höfninni við Sandgerði á vertíðinni ætti að vera áhugamál allra, er um þetta vel- ferðarmál hugsa, en hér verður ekki farið út í það atriði. Minnast verður á, að sökum þess hve kompásar sýna skakkar stefnur á flest- um mótorbátum og vart auoið að halda þeim réttum, þá verður sigling til lands i dimmviðri oflast hæltuleg einkum þeim, sem eru að byrja formensku í Sandgerði. Lóðið er ávalt leiðbeining, en mér er kunnugt, að á vetrarvertið síðustu hafði formaðui’ einn, þurran kompás, f.sprilt- lausan) frammi í hásetaklefa, auk þess, er stýrt var eftir. Reyndist kompásinn þurri réttur, alla vertiðina, og vissi for- maður ávalt hve mikil skekkja hins var og hagaði stefnum eftir þvi. Eitt verða menn að hafa fast í huga; er það stærsti liður alls þess, er nefnt er björgunarstarf, björgunarmál eða aðstoð veitt á sjó. Sá liður er áhugi, athuganir og góður vilji formanna að færa sér í nyt alt það, sem bent er á, og sannan- legt er að geti i kröppum dans orðið að notum, gleyma aldrei lóðinu, logginu né öðru er leiðbeiningu gefur, og svo er aðalatrið, að muna það, að takmörk eru fyrir, hvað bjóða má mótorbátum i skammdegis veðraham hér við land. Hinn 22. apríl s. 1. var Járviðri á Ntw-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.