Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.1925, Qupperneq 11

Ægir - 01.05.1925, Qupperneq 11
ÆGIR 89 orðnir kaldir. Hann sagði, að eftirlits- menn kæmu endrum og sinnum og gerðu athugasemdir, en þeirra staða væri örðug, þar sem flestir þeirra væru kunn- ingjar og vinir eigenda skipasmiðaslöðv- anna og vissu, að eigendur skipanna vildu fá þau sem ódýrust og á sem stystum tima, og auk þess væri kaup eflirlitsmanna af skornum skamti, svo ekki væri grunlaust að fá mætti þá ti) að ganga fram hjá ýmsu, og svo væri glas af kampavini á sínum stað, við ýms tækifæri. Þegar eigendur vilja kosta upp á góð skip, þá smíðum við góð slcip, en þegar það ekki er, fá þeir skip sam- svarandi þvi, er þeir vilja greiða fyr- ir þau. Eg kvaddi manninn og litaðist um við önnur skip, sem voru i smiðum. Eg sá sama tærða járnið og sprungna i þeim, og er eg að lokum virti fyrir mér hið nýmálaða fagra skip, sem daginn eftir átti að fara á sjóinn, hugsaði eg: »Allir þínir gallar, tærð og sprungin bönd eru nó mönnum hulin, það gerir mátningin og gyllingin, nú átti þú að reyna þig við haföidurnar og mennirnir hafa sett þig í flokkinn 100 a 1, þrátt fyrir ónýtu nagtana og aðra galla, sem að réltu lagi ættu að setja þig í sama flokk og lik- kislur þær, sem skipað hefir verið að höggva upp«. Nú fer eg að skilja hvað orðið hefir af skipunum »Ismaelia«, »Bernina«, »Bayard«, »Homer«, »Stam- fordham«, »Telford«, »Zanzibar«, »Tox- ford«, »Sylvia«, »Surbiton«, »Joseph Pease« og hinum 40 bresku gufuskipum, sem burfu árið 1892. Voru naglar of rýrir og losnuðu plöturnar hver frá ann- ari er þeir hrukku i sundur, eða hvað? »Board of Trade« og »Lloyd« má ekki ásaka. Fker stofnanir velja menn i hið vandasama starf, sem skipaeflirlitið er. Ressir menn hafa kaup rétt í meðallagi og þar sem svo er, má beita ýmsu til þess að rugla góðum ásetningi, en bregð- ist alt, þá er reynt að láta þá skoða hið versta í gegnum kampavinsglasið«. Þetta er að eins stutlur útdráttur úr grein þessa manns. Er hann viða harð- orður mjög um, hvernig lífi sjófarenda sé stofnað i hæltu sökum þess sleifar- lags, sem eflirlitsmenn sýni. »Board of Tradc« og »Lloyd« eru úr allri sök, þau hafa sína trúnaðarmenn (skipaeftirlits- mennina) og eigendur skipanna hafa skoðunarvottorðið, sem segir skipið gott. Hann minnist á gamalt seglskip, sem hafði fengið sjóferðaskírteini (Södygtig- hedsattest) undirskrifað af »Board of Trade« manni Ferðalag þess skips var hörmung og hann kallar það, sem fram kom i réttarhöldum svivirðingu fyrir hina bresku þjóð og sé gott dæmi upp á, að trúnaðarmenn flokkunarfélaga (eftirlits- menn) stofni visvitandi, eigum og lífi manna i hæltu, og séu þannig sjálfir hættulegir menn fyrir mannfélagið. Siðan grein þessi kom út, hefir mikil bót orðið á frágangi öllum á skipum og eftirlit batnað, en meðan á heimsstyrj- öldinni sfóð, urðu menn að flýta öllu, jafnt skipasmíðum og öðru, og óvönduð skip munu enn vera i ferðum á hafinu, og óvönduð getur vinna ávalt orðið, sé eftirlit ekki gott. Umsjón með skipum og smíðum þeirra verður að vera nákvæm og góð; sé svo, er fyrsta og aðalskilyrði til öryggis á sjónum fullnægt, hvort heldur átt er við mannslíf eða góz, er flutt er. Góðir eftir- litsmenn geta ekki búist við vináttu eig- enda skipasmíðastöðva, eru jafnvel illa þokkaðir menn hvervetna, þar sem spor þeirra eru aukin útgjöld, en þeir verða

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.