Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1925, Síða 15

Ægir - 01.05.1925, Síða 15
Æ GIR 93 Fiskimarkaðurinn 13. maí. Til Barcelona komu fyrri helming maímánaðar, 7 skip með fisk. Var sá innflutningur alls 1,346,260 kg. og alt is- lenzkur fiskur að 760 kg. undanskiidum, sem komu frá Noregi. Sala hefir verið sæmileg, en verð fer lækkandi, og er 13. maí fyrir beztu tegund 96—98 pes. fyrir kvintal; (40 kíló) úr húsi og lakari tegundir i samræmi við það. Birgðir voru þann dag35—40,000kvintal. Bilbao 19. mai. Siðustu viku flutt inn 13,000 kvintal norskur fiskur, 2560 kv. islenzkur. Birgðir þann dag, 10,000 kv. norskur, 20,000 kv. islenzkur. Verð: norskur 100—105 ptas kvintal, islenzkur 100—105 ptas kvintal. Gengi 1 £ = 33, 49 ptas. Lissabon 22. mai. Innfiutt 179 tons norskur, 87 tons newfoundl., franskur 12 tons. Birgðir: norskur fiskur 510 tons, islenzk- ur 180 tn., newfoundl. 240 tons, portú- galskur 30 tons, franskur 42 tons. Verð: 200—300 esc. fyrir norskan fisk, islenzkur 300-380 esc., newfoundl. 200 —300, portúgalskur 200 -360, franskur 180—240 esc. miðað við kvintal (60 kiló). Gengi 1 £ = 98, 75 esc. Lög um breytingu á lögum nr. 40, 19. júní 1922, um atvinnu vid siglingar. 1. gr. Fyrsta málsgrein 8. gr. falli burtu eins og hún er nú orðuð. í stað hennar komi ný málsgrein svohljóðandi: Próf það er um getur í 7. gr. skal halda í Reykjavik, Vestmannaeyjum, Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði. Orðin »bæjarstjórnar« i enda 2. máls- greinar falli burt. í hennar stað komi Fiskifélag íslands. Á eftir 3. málsgrein komi ný máls- grein, er svo hljóði: Prófverkefni skulu samin af forslöðu- manni Stýrimannaskólans í Reykjavík. 2. gr. í stað orðanna »30 rúmlestir« i upp- hafi 18. gr. komi: »20 rúmlestir«. Við greinina bætist ný málsgr. svo hljóðandi: í veiðistöðvum, þar sem báiar koma að jafnaði daglega úr róðri, skal þó eigi skylt að hafa stýrimann auk skipstjóra á þeim bátum, er þannig stunda veiðar, þótt um báta all að 30 rúmlesta sé að ræða. 3. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar i stað. Samþykt á Alþingi 11. mai 1925. Úr bréfi. Skipstapar þeir og sjóslys, sem nýlið- inn vetur skilur eftir, eru óminnilegir og ekki skemtilegt umhugsunarefni. Þó tel eg blöðin hafa gert rétt í því að minnast hlýlega margra þeirra afbragðs- drengja, er látið hafa líf sitt á sjónum s. ár. Mætti sjálfsagt minnast ýmsra þeirra nokkru ger en gerl hefir verið, og skal það þó ógert látið að þessu sinni. En jafnframt og látinna manna er minst, er og eigi síður maklegt að geta þeirra, er bera sigur úr bítum i viður- eigninni við Ægir og komast heilu og höldu til lands.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.